07:03
Morgunútvarpið
Mið Austurlönd,fegrunaraðgerðir,Jim Carey og á að lögleiða veðmálasíður?

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Bandaríkin og Ísrael réðust á skotmörk í Íran um helgina. Íran réðist í kjölfarið á skotmörk í Mið-Austurlöndum og í gær bárust fréttir af sprengingum nálægt orkuinnviðum í Katar. Guðrún Hulda Jónsdóttir Johannessen er búsett í Doha, höfuðborg Katar. Hún bíður nú eftir því að maðurinn hennar komist heim til fjölskyldu sinnar en hann er flugmaður og situr fastur í Suður Ameríku. Við heyrðum í Guðrúnu Huldu.

Internetið fór á hliðina á dögunum þegar Jim Carey birtist í viðtali á frönsku Sesar-kvikmyndhátíðinni og virtist breyttur. Fólk hóf að bera skjáskot úr viðtalinu saman við eldri myndir af leikaranum og komst að skapandi niðurstöðum; allt frá því að hann hafi misst sig í bótoxinu yfir í að hinn raunverulegi Jim Carrey væri látinn og að honum hefði verið skipt út fyrir tvífara. Málið fór svo annan hring þegar þekktur búningameistari steig fram og sagðist hafa verið á staðnum í gervi Jim Carrey. Málið er allt hið snúnasta en Morgunútvarpið kafaði ofan í það í leita að sannleikanum.

Straumar og stefnur í fegrunaraðgerðum sveiflast fram og til baka. Undanfarið höfum við séð áhrifavalda láta fjarlægja fyllingar úr vörum sínum og fjölmiðlar á borð við Cosmopolitan hafa fjallað um auknar vinsældar fegrunaraðgerða sem erfitt er að greina. Á sama tíma sjáum við fólk beita öfgafullum aðferðum til að breyta útliti sínu sjálft. Jóhannes Árnason, sérfræðingur í lýtalækningum, kíkti til okkar í Morgunútvarpið og við tókum spjallið um það sem er að gerast í þessum áhugaverða heimi.

Morgunútvarpið greindi frá því í gær að fjárhættuspil sæki í sig veðrið, samkvæmt nýjum rannsóknum. Kallað var eftir því að Ísland nái utan iðnaðinn í kringum fjárhættuspil með lagasetningu, líkt og nágrannar okkar á Norðurlöndunum og að ástandinu í dag megi líkja við villta vestrið. Veðmálabransinn og íþróttafélögin tengjast ýmsum böndum og Máni Pétursson, stjórnarmaður hjá KSÍ, hefur kynnt sér hvernig þau gera þetta í Danmörku og Svíþjóð. Hann kom til okkar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,