07:03
Morgunvaktin
Íran, Berlínarspjall og harmonikkan

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Upp er runninn fjórði dagur átaka í Miðausturlöndum. Ísraelar gerðu árásir á Íran og Líbanon nú í morgun, Íranir réðust gegn sendiráði Bandaríkjanna í Sádi-Arabíu, og ráðamenn í Bandaríkjunum og Ísrael segja enn harðari árásir væntanlegar. Við ræddum um söguna og rætur óvildarinnar við Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.

Arthur Björgvin Bollason flutti okkur tíðindi frá Þýskalandi í spjalli frá Berlín.

Harmonikkuleikarinn Flemming Viðar Valmundsson kom svo í þáttinn og spjallaði um harmonikkuna og feril sinn, og spilaði svolítið fyrir okkur.

Tónlist:

Cozy Cole - Minnie the moocher.

Harmóníkukvintettinn í Reykjavík - Sveitin milli sanda.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,