16:05
Víðsjá
Lyktarheimur Íslendinga og áhrif tunglsins á líf og ljóð

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Sagnfræðingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir hefur síðustu misseri legið yfir heimildum og skrifað ritgerð um lyktarheim Íslendinga á tímabilinu 1870-1920. Við rannsóknir sínar styðst hún við aðferðir svokallaðrar tilfinningafræði, með samanburði á sjálfsbókmenntum og skilgreiningum millistéttarinnar á æskilegri hegðun. Hún heldur fyrirlestur um efnið á Minjasafni Akureyrar á fimmtudag, en lítur við í hljóðstofu í Víðsjá dagsins. Auk þess veltum við fyrir okkur ljóðasöng undir áhrifum tunglsins og hjátrú um tengsl kvartilaskipta tunglsins við ýmsa stóra atburði í lífi manna, svo sem slys, fæðingar og dauða.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,