Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Háskólastúdentar í yfir 80 háskólum í Bandaríkjunum hafa síðustu vikur mótmælt stríðinu á Gaza og hvatt til þess að háskólarnir slíti fjárhagsleg tengsl við Ísrael. Mótmælin hafa vakið mikil viðbrögð, ekki síst meðal stjórnmálamanna í Bandaríkjunum, eins og við ræddum við Jón Óskar Sólnes, sem er búsettur í Washington DC og fylgist vel með bandarískum þjóðmálum.
Þættirnir Fuglafit hafa vakið verðskuldaða athygli meðal hlustenda Rásar 1 undanfarið. Í þeim segir Hlynur Steinsson frá fuglasöng út frá bæði líffræðilegum og menningarlegum hliðum, ræðir samskipti fugla, menningu þeirra og mállýskur. Þeir syngja nefnilega ekki allir eins. Þröstur í byggð syngur öðru vísi en þröstur í sveit. Hlynur kom til okkar og sagði frá áhuga sínum og rannsóknum á fuglum.
Við heyrðum líka brot úr erindi sem Katrín Pálsdóttir, félagsmálafrömuður, flutti í útvarpið um kyninn og muninn á þeim árið 1948. Við fjölluðum um Katrínu á miðvikudaginn.
Tónlist:
Springfield, Dusty - You don't have to say you love me.
Springfield, Dusty - The look of love.
Presley, Elvis - The wonder of you.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir - Lítill fugl.
Hjálmar - Lítill fugl.
Winckler, Gustav - Hvide måge.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
HARA systur frá Hveragerði komu sáu og næstum því sigrðu X Factor keppnina árið 2007. Þær lentu í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Jogvan Hansen, sem þær höfðu reyndar nokkrum mánuðum áður skráð til leiks ásamt sér. Systurnar urðu á skömmum tíma gríðarlega vinsælar og í kjölfarið gáfu þær út plötu og voru bókaðar út um allt land. En það hefur ekki mikið heyrst til þeirra undanfarin ár. Hvar eru þær í dag og hvað hefur á daga þeirra drifið? Við tókum vel á móti Hara systrum, Rakel og Hildi Magnúsdætrum í dag og fórum með þeim yfir þessa miklu reynslu sem keppnin var, æskuárin í Hveragerði, aðdraganda þess að þær skráðu sig í keppnina sem breytti lífi þeirra, skuggahliðar þess að slá í gegn svona snögglega og svo hvað þær hafa verið að gera undanfarið.
Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag var ítalskt þema þar sem leikkonan Sophia Lauren var í aðalhlutverki, en Sigurlaug Margrét keypti matreiðslubók fyrir 15 árum þar sem Sophia deilir uppskriftum sínum og sögum á bak við þær og okkur skilst að Sigurlaug hafi prófað að matreiða hverja einustu þeirra.
Tónlist í þættinum í dag:
Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
Hvernig veit ég? / Hara systur (Hildur Magnúsdóttir og texti Rakel Magnúsdóttir)
Framtíðin / Hara systur (Pernille Rosendahl, Jonas Struck, Emil Jörgensen og texti Rakel Magnúsdóttir og Hildur Magnúsdóttir)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Yfir hundrað þúsund manns hafa flúið borgina Rafah syðst á Gaza vegna yfirvofandi innrásar Ísraelshers. Bandaríkin hætta vopnasendingum til Ísraels ef af innrás verður, en forsætisráðherra Ísraels segir landsmenn þá berjast með kjafti og klóm ef þörf krefur.
Skammvinn smáskjálfthrina gekk yfir gosstöðvarnar við Sundnhnúksgíga í nótt. Náttúruvársérfræðingur segir að mögulega hafi þetta verið lítið kvikuhlaup.
Kíghóstafaraldur gengur yfir Evrópu og fimmtíu og fimm hafa greinst með sjúkdóminn hérlendis. Landlæknir biður veika að sýna sérstaka aðgát. Fólk getur verið smitandi í allt að fimm vikur.
Ekki liggur fyrir hversu mörg börn fá pláss á leikskólum borgarinnar. Fyrsta hluta innritunar lýkur í dag.
Matvælaráðherra bíður enn gagna áður en ákvörðun verður tekin um hvort leyfi verði gefin út til hvalveiða í sumar. Hvalveiðivertíðin ætti að hefjast í næsta mánuði.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar á fjölskyldusameiningu í frumvarpi dómsmálaráðherra. Breytingin felur í sér tveggja ára biðtíma áður en hægt er að sækja um sameiningu.
Formaður félags framhaldsskólakennara segir að vanfjármögnun framhaldsskólastigsins komi fyrst og fremst niður á mikilvægri stoðþjónustu. Fjármagn fylgi ekki metnaðarfullum væntingum ráðuneytis menntamála.
Ágreiningur vegna þjálfarateymis er sagður vera ástæða þess að Óskar Hrafn Þorvaldsson lét af störfum sem þjálfari norska liðsins Haugesund.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Íþróttastarf Ungmennafélags Grindavíkur heldur áfram þótt það verði með breyttu sniði. Félagið hefur háð baráttu fyrir tilvist sinni í vetur en á nú í viðræðum við ríkið, sveitarfélög og önnur íþróttafélög um að tryggja áframhaldandi starfsem í einhverri mynd. Meistaraflokkar félagsins í körfubolta og fótbolta eru á fullri ferð og Þetta helst leit við á leik karlaliðsins í körfubolta í Smáranum í vikunni.
Verkefni framkvæmdstjóra félagsins í vetur hafa verið ólík því sem gengur og gerist hjá íþróttafélögum. Enginn heimavöllur, ekkert íþróttahús, en stuðningurinn úr stúkunni er engu líkur og Grindvíkingar sækja leiki ekki síður til að hittast og koma saman. Ef stúkan er gul, þá er það heimavöllur, segir stuðningsmaður Grindavíkur. Íþróttastarfið er hjartað í bænum og því þarf að halda gangandi.
Rætt er við framkvæmdastjóra UMFG Þorleif Ólafsson, Huldu Björk Ólafsdóttur íþróttakonu ársins í Grindavík og stuðningsmenn félagsins.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um hugmyndir um orkuframleiðslu í geimnum. Þetta hljómar dálítið eins og vísindaskáldskapur en slíkar hugmyndir hafa verið uppi í hálfa öld. Og nú hefur íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Space Solar sem hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verða á sporbaug um jörðu. Þar mundu þau virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum. Kjartan Örn Ólafsson framkvæmdastjóri Transition Labs segir okkur meira.
Guðlaug Steingrímsdóttir, kaupmaður í söluturninum Skalla við Hraunbæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík, bauð öllum sem vildu upp á ís úr vél í gær í tilefni af fjörutíu ára starfsafmæli sínu - við ræðum við hana um þessi tímamót, sjoppurekstur og það hvað einkennir sjoppuna Skalla sem á sér meira en hálfrar aldar sögu.
Við heyrum málfarsmínútu, og svo fræðumst við um fjölskyldulíf þeirra Jóns og Söru, sem nýlega fluttust í Hafnarfjörðinn. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður og dýravinur, hefur kynnst þessu álftapari vel og aðstoðað þau við að koma ungum á legg. Hann kemur til okkar í lok þáttar.
Tónlist:
GDRN - Ævilangt.
KLASSART - Landamæri.
Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-10
Marino Rivero, René - Mirinaque.
Khumalo, Sibongile - Mayihlome.
Cherkaoui, Abdeslam - Ya hbibi malek sahi.
Teta - Havelo = Living.
D'Gary, Jihé - Miady mafy.
La India de Oriente - Como se baila el son.
La Sonora Poncena - No bebo mas.
Machito and his Afro Cubans, Machito - Novio mio.
Barros, Maria de - Rosinha.
Fjallað er um sögu fjármálamarkaða og mannlegt eðli í heimi peninga, freistingar og græðgi. Íslenska efnahagshrunið er borið saman við þekkt söguleg flugeldahagkerfi s.s. ENRON. Hagfræðingar, geðlæknar, siðfræðingar, sagnfræðingar og þátttakendur í íslenska efnahagsunrinu tjá sig um þá atburði sem leiddu til hrunsins mikla í október 2008. Í þáttunum er ennfremur rifjaðar upp fréttir, viðtöl og samsæriskenningar í bland við tónlist og fróðleik um manninn, fjármál og heimssöguna.
Höfundur þáttanna er Þórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík.
(Áður á dagskrá 2010)
Í þættinum er m.a. rifjað upp hvernig fjármálamarkaðir þróuðust og afhverju þeir urðu svo hættulegir staðir fyrir manninn. Saga fyrsta alvöru flugeldahagkerfisins rifjuð upp og sögur af útrásarvíkingum rifjaðar upp. Meðal þeirra sem koma fram er séra Bolli Pétur Bollason sem fjallar m.a. um þá siðfræði sem birtist í trúarbrögðum.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Plata vikunnar er fyrsta stóra plata fjórmenningana sem skipuðu lengst af þjóðlagahópinn Lítið eitt, en platan var gefin út árið 1973. Áður en lögin af þessari plötu hljóma í þættinu verða leikin lög af fjögurra laga plötu sem tríóið Lítið eitt gerði árið 1972.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fyrst koma fjögur lög ef EP plötu frá árinu 1972:
Við gluggann
Endur fyrir löngu
Syngdu með
Ástarsaga
Lögin af fyrstu LP plötunni frá árinu 1973 eru:
Hlið 1
Tímarnir líða og breytast
Piparsveinninn
Tvö ein
Grjót-Páll
Sjómannsástir
Jól
Hlið 2
Hæ Kalli
Heilræðavísur
Lestin mikla
Mánudagur
Á kvöldin
Hin vinnandi stétt
Kvöldfréttir útvarps
Forsetakosningarnar virðast vera tveggja kvenna keppni, segir stjórnmálafræðingur. Miklar breytingar hafa orðið á fylgi nokkurra frambjóðenda síðustu daga.
Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram á sama hraða og áður. Fyrirvari á nýju eldgosi getur verið stuttur eða jafnvel enginn. Hálft ár er síðan Grindvíkingum var gert að yfirgefa bæinn.
Matvælastofnun er bótaskyld fyrir að afhenda fréttamönnum RÚV gögn um starfsemi Brúneggja í tengslum við umfjöllun Kastljóss. RÚV var sýknað í málinu.
Á níunda hundruð seiða höfnuðu utan kers í fiskeldi Samherja í Öxarfirði. Óhappið gæti leitt til stroks eldislax.
Ísland kaus með ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Ályktunin var samþykkt á neyðarfundi þingsins í dag.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það verður almyrkvi á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þótt það sé enn langt í þennan atburð eru erlendir ferðamenn þegar farnir að sýna því áhuga að koma til landsins. Látrabjarg gæti orðið vinsælasti staðurinn þar sem almyrkvinn stendur hvað lengst. Fjallað verður um þetta í Speglinum og meðal annars rætt við Sævar Helga Bragason. Fyrst verður hins vegar rætt við Viktor Traustason, einn þeirra tólf, sem eru í framboði til forseta Íslands. Hann setur þrjár reglur á oddinn í framboði sínu og ætlar að fylgjar þeim en ekki eigin geðþótta.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem Ronnie Wood kemur við sögu. Lögin eru með Jef Beck Group og Faces auk þriggja laga af fyrstu sólóplötu hans. Lögin sem hljóma í þættinum eru Plynth (Water Down the Drain) með Jeff Beck Group, Flying, Around the Plynth, Stay With Me, Ooh La La og Cindy Incidentally með Faces, Far East Man, I Can Feel The Fire, If You Gotta Make A Fool of Somebody og Mystifies Me af sólóplötum Ronnie Wood.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjallað er um sögu fjármálamarkaða og mannlegt eðli í heimi peninga, freistingar og græðgi. Íslenska efnahagshrunið er borið saman við þekkt söguleg flugeldahagkerfi s.s. ENRON. Hagfræðingar, geðlæknar, siðfræðingar, sagnfræðingar og þátttakendur í íslenska efnahagsunrinu tjá sig um þá atburði sem leiddu til hrunsins mikla í október 2008. Í þáttunum er ennfremur rifjaðar upp fréttir, viðtöl og samsæriskenningar í bland við tónlist og fróðleik um manninn, fjármál og heimssöguna.
Höfundur þáttanna er Þórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík.
(Áður á dagskrá 2010)
Í þættinum er m.a. rifjað upp hvernig fjármálamarkaðir þróuðust og afhverju þeir urðu svo hættulegir staðir fyrir manninn. Saga fyrsta alvöru flugeldahagkerfisins rifjuð upp og sögur af útrásarvíkingum rifjaðar upp. Meðal þeirra sem koma fram er séra Bolli Pétur Bollason sem fjallar m.a. um þá siðfræði sem birtist í trúarbrögðum.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um hugmyndir um orkuframleiðslu í geimnum. Þetta hljómar dálítið eins og vísindaskáldskapur en slíkar hugmyndir hafa verið uppi í hálfa öld. Og nú hefur íslenska loftslagsfyrirtækið Transition Labs gert samstarfssamning við breska fyrirtækið Space Solar sem hefur hannað sólarorkuver sem staðsett verða á sporbaug um jörðu. Þar mundu þau virkja geisla sólarinnar og miðla orkunni til jarðar með útvarpsbylgjum. Kjartan Örn Ólafsson framkvæmdastjóri Transition Labs segir okkur meira.
Guðlaug Steingrímsdóttir, kaupmaður í söluturninum Skalla við Hraunbæ í Árbæjarhverfi í Reykjavík, bauð öllum sem vildu upp á ís úr vél í gær í tilefni af fjörutíu ára starfsafmæli sínu - við ræðum við hana um þessi tímamót, sjoppurekstur og það hvað einkennir sjoppuna Skalla sem á sér meira en hálfrar aldar sögu.
Við heyrum málfarsmínútu, og svo fræðumst við um fjölskyldulíf þeirra Jóns og Söru, sem nýlega fluttust í Hafnarfjörðinn. Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður og dýravinur, hefur kynnst þessu álftapari vel og aðstoðað þau við að koma ungum á legg. Hann kemur til okkar í lok þáttar.
Tónlist:
GDRN - Ævilangt.
KLASSART - Landamæri.
Una Torfadóttir, Sigurður Halldór Guðmundsson Tónlistarm. - Þetta líf er allt í læ.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
HARA systur frá Hveragerði komu sáu og næstum því sigrðu X Factor keppnina árið 2007. Þær lentu í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Jogvan Hansen, sem þær höfðu reyndar nokkrum mánuðum áður skráð til leiks ásamt sér. Systurnar urðu á skömmum tíma gríðarlega vinsælar og í kjölfarið gáfu þær út plötu og voru bókaðar út um allt land. En það hefur ekki mikið heyrst til þeirra undanfarin ár. Hvar eru þær í dag og hvað hefur á daga þeirra drifið? Við tókum vel á móti Hara systrum, Rakel og Hildi Magnúsdætrum í dag og fórum með þeim yfir þessa miklu reynslu sem keppnin var, æskuárin í Hveragerði, aðdraganda þess að þær skráðu sig í keppnina sem breytti lífi þeirra, skuggahliðar þess að slá í gegn svona snögglega og svo hvað þær hafa verið að gera undanfarið.
Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag var ítalskt þema þar sem leikkonan Sophia Lauren var í aðalhlutverki, en Sigurlaug Margrét keypti matreiðslubók fyrir 15 árum þar sem Sophia deilir uppskriftum sínum og sögum á bak við þær og okkur skilst að Sigurlaug hafi prófað að matreiða hverja einustu þeirra.
Tónlist í þættinum í dag:
Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
Hvernig veit ég? / Hara systur (Hildur Magnúsdóttir og texti Rakel Magnúsdóttir)
Framtíðin / Hara systur (Pernille Rosendahl, Jonas Struck, Emil Jörgensen og texti Rakel Magnúsdóttir og Hildur Magnúsdóttir)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Hulda tók föstudagsvaktina að venju og lék ljúfa tóna, allt frá Sextett Ólafs Gauks til Tom Petty og GDRN.
Lagalisti:
Sextett Ólafs Gauks - Villtir strengir.
Elvis Presley - Love me tender.
GDRN - Ævilangt.
TOTO - I won't hold you back.
The Police - Wrapped around your finger.
Amy Winehouse - Love is a losing game.
Mannakorn - Á meðan sumar framhjá fer.
Vök - Ég bíð þín.
Stevie Wonder - For once in my life.
ABBA - When all is said and done.
Tom Petty and the Heartbreakers - Into the great wide open.
Madonna - Live to tell.
Simon og Garfunkel - Mrs. Robinson.
David Bowie - Absolute beginners.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í torfæru, Sindratorfæran, fer fram í gryfjunum við Gunnarsholtsveg, austan við Hellu, á morgun laugardag. Það eru Flugbjörgunarsveitin Hellu og Akstursíþróttanefnd Ungmennafélagsins HEKLU sem standa að keppninni en í ár hafa ekki verið fleiri þátttakendur síðan 2006. Hátt í 5000 manns koma árlega til þess að fylgjast með. Kári Rafn Þorbergsson, keppnisstjóri, var á línunni.
Grænlendingar hafa sagt sig úr Norðurlandaráði í mótmælaskyni við það sem forsætisráðherrann, Múte B. Egede, kallar mismunun meðlima ráðsins. Bryndís Haraldsdóttir forseti Norðurlandaráðs og Oddný Harðardóttir varaforseti þess komu til okkar að ræða norrænu pólitíkina.
Drake og Kendrik Lamar, tveir risar í rappheiminum eiga í harðvíruðum útistöðum þessa dagana. Deilurnar hafa að mestu leiti farið fram í formi ásakana í rapptextum en þær náðu mögulega hámarki í fyrradag þegar að lífvörður Drake var skotinn í bringuna fyrir utan heimili rapparans. Hvað er í gangi? Daníel Ólafsson, betur þekktur sem plötusnúðurinn Danni Deluxe fór yfir málið með okkur.
Fréttir vikunnar voru að sjálfsögðu á sínum stað til að koma föstudeginum almennilega í gang. Við fórum yfir það helsta sem var að frétta með menningarspegúlantinum og lestarstjóranum Lóu Björk Björnsdóttur og áhrifavaldinum Tinnu Miljević.
Lagalisti:
Björgvin Halldórsson og Ragga Gísla - Ég gef þér allt mitt líf
The Pretenders - Don't Get Me Wrong
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir - Hetjan
Bríet - Sólblóm
Bubbi Morthens og Katrín Halldóra - Án Þín
Kendrick Lamar - Poetic Justice (feat. Drake)
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það var líf í tuskum Hjartagosa í dag, Daníel Hálmtýsson mætti með Barrett Martin úr m.a. grugg-sveitinni Screaming Trees og Duke Garwood og spiluðu þeir strákar í beinni útsendingu rétt eins og gleðiflokkurinn Babies sem gerðu betur og tóku tvö lög í beinni en allir þessir menn ætla að koma fram á Kex um helgina.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-10
Magnús Þór Sigmundsson - Crossroads (LP).
Í SVÖRTUM FÖTUM - Dag Sem Dimma Nátt.
Emilíana Torrini - Miss flower.
SIMPLE MINDS - Don't You (Forget About Me).
GDRN - Háspenna.
AMERICA - A Horse With No Name.
Bubbi Morthens - Dansaðu.
T REX - Get it on.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
FALCO - Rock me Amadeus.
200.000 NAGLBÍTAR - Hæð Í Húsi.
YEAH YEAH YEAHS - Spitting Off the Edge of the World (ft. Perfume Genious).
RAVEN & RÚN - Handan við hafið.
ISLEY BROTHERS - That Lady.
CAROLINE POLACHECK - Smoke.
Fatboy Slim - Praise you.
CONTOURS - Do You Love Me.
Selma Björnsdóttir - All Out Of Luck.
UMBERTO TOZZI - Gente di Mare.
DANA - All Kinds Of Everything.
Pravi, Barbara - Voilà (Frakkland).
Hasselgård, Jostein - I'm not afraid to move on.
Katrina and The Waves - Love shine a light.
Ingibjörg Stefánsdóttir Jógakennari ; leikari - Þá veistu svarið.
Sébastien Tellier - Divine.
BRÖDRENE OLSEN - Fly On The Wings Of Love.
Brotherhood of Man - Save your kisses for me.
Herrey's - Diggi-loo Diggi-ley.
Paparizou, Helena - My number one.
Urban Symphony - Randajad.
WIG WAM - In My Dreams.
BLANCHE - City lights (Eurovision 2017 - Belgía).
SALVADOR SOBRAL - Amar Pelos Dois (Eurovision 2017 - Portúgal).
SVALA - Paper.
Stokkan, Ketil - Romeo.
THE COMMON LINNETS - Calm After The Storm (Eurovision 2014 Holland).
ABBA - Waterloo.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Yfir hundrað þúsund manns hafa flúið borgina Rafah syðst á Gaza vegna yfirvofandi innrásar Ísraelshers. Bandaríkin hætta vopnasendingum til Ísraels ef af innrás verður, en forsætisráðherra Ísraels segir landsmenn þá berjast með kjafti og klóm ef þörf krefur.
Skammvinn smáskjálfthrina gekk yfir gosstöðvarnar við Sundnhnúksgíga í nótt. Náttúruvársérfræðingur segir að mögulega hafi þetta verið lítið kvikuhlaup.
Kíghóstafaraldur gengur yfir Evrópu og fimmtíu og fimm hafa greinst með sjúkdóminn hérlendis. Landlæknir biður veika að sýna sérstaka aðgát. Fólk getur verið smitandi í allt að fimm vikur.
Ekki liggur fyrir hversu mörg börn fá pláss á leikskólum borgarinnar. Fyrsta hluta innritunar lýkur í dag.
Matvælaráðherra bíður enn gagna áður en ákvörðun verður tekin um hvort leyfi verði gefin út til hvalveiða í sumar. Hvalveiðivertíðin ætti að hefjast í næsta mánuði.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar á fjölskyldusameiningu í frumvarpi dómsmálaráðherra. Breytingin felur í sér tveggja ára biðtíma áður en hægt er að sækja um sameiningu.
Formaður félags framhaldsskólakennara segir að vanfjármögnun framhaldsskólastigsins komi fyrst og fremst niður á mikilvægri stoðþjónustu. Fjármagn fylgi ekki metnaðarfullum væntingum ráðuneytis menntamála.
Ágreiningur vegna þjálfarateymis er sagður vera ástæða þess að Óskar Hrafn Þorvaldsson lét af störfum sem þjálfari norska liðsins Haugesund.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Matti og Lovísa voru Popplandsverðir dagsins. Franz Gunnarsson kíkti við og rifjaði upp feril tónlistarmannsins Steve Albini sem féll frá á dögunum. Póstkassinn opnaður upp á gátt, Eva Ruza fór með okkur alla leið og mikið af nýrri íslenskri tónlist.
Moses Hightower - Sjáum hvað setur.
Unnsteinn Manuel Stefánsson, GDRN - Utan þjónustusvæðis.
Julian Civilian - Tölum saman í september.
Ásdís, Purple Disco Machine - Beat Of Your Heart.
RIHANNA - Diamonds.
Kiriyama Family - Disaster.
TAME IMPALA - Let It Happen.
NIRVANA - Dumb.
Ensími - Böstaður í tollinum.
Ensími - Postulín.
Ensími - Tungubrögð.
Taylor Swift, Post Malone - Fortnight.
Jerry Heil, alyona alyona & Jerry Heil, alyona alyona & Jerry Heil - Teresa & Maria (Úkraína).
KALUSH ORCHESTRA - Stefania (Úkraína).
Jerry Heil - Teresa & Maria (Úkraína).
SOFT CELL - Tainted Love.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
PAUL McCARTNEY & WINGS - Band On The Run.
MARKÚS - É bisst assökunar.
DAVID BOWIE - Changes.
The Libertines - Run Run Run.
Artemas - I like the way you kiss me.
Baby Lasagna - Rim Tim Tagi Dim (Króatía).
Lenny Kravitz - Human.
Carpenter, Sabrina - Espresso.
Jungle - Back On 74 [Radio Edit].
Kaleo - Lonely Cowboy.
Soffía Björg - Á áfangastað.
SOFFÍA BJÖRG - Promises.
Laufey - Goddess.
Talking Heads - This must be the place - Naive melody.
SYSTUR - Furðuverur.
Lorde - Take Me to the River.
PRINCE - 1999.
ULTRAFLEX - Never forget by baby.
Ultraflex - Say Goodbye.
POINTER SISTERS - Automatic.
Baby Lasagna - Rim Tim Tagi Dim (Króatía).
NEMO - The Code (Sviss).
STUÐMENN - Í bláum skugga.
BASHAR MURAD - Stone.
MICAHEL MARCAGI - Scared To Start.
TRAUSTI - Gömul tár.
JÓHANNA GUÐRÚN - Hetjan.
FRED AGAIN & OBONGJAYAR - Adore u.
DUA LIPA - Illusion.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Mæðradagurinn er næstkomandi sunnudag. Hjá mörgum vekur þessi dagur aðrar og erfiðari tilfinningar t.a.m. hjá mæðrum og foreldrum sem syrgja börnin sín. Gleym mér ei er félag sem er til staðar fyrir foreldra sem missa á meðgöngu og við heyrum í stjórnarformanni félagsins Hólmfríði Önnu Baldursdóttur.
Í vikunni var mælt fyrir frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2024. Ef það gengur eftir munu ráðstöfunartekjur fjölskyldna aukast verulega á samningstímanum eða um 500 þúsund kr. á ári. Ágúst Bjarni Garðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, er hérna til þess að segja okkur hvað þetta þýðir fyrir ungt fólk á Íslandi.
Eiríkur Ingi Jóhannsson varð landsfrægur árið 2012 þegar hann lifði af ótrúlegan sjávarháska. Nú er hann kominn í framboð til forseta Íslands. Hann verður á grillinu í dag.
Er maðurinn í útrýmingarhættu? Eru Palestínumenn Palestínufólk og hvað er Kanadafólk? Sumir eru farnir að temja sér kynhlutlausara orðaval eins og upp úr því hafa sprottið athyglisverðir punktar um málnotkun í fjölmiðlum. Eiríkur Rögnvaldsson uppgjafarprófessor í íslensku eins og hann titlar sig sjálfan, og Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur RÚV, ætla að ræða við okkur um þessa þróun.
Kvöldfréttir útvarps
Forsetakosningarnar virðast vera tveggja kvenna keppni, segir stjórnmálafræðingur. Miklar breytingar hafa orðið á fylgi nokkurra frambjóðenda síðustu daga.
Kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram á sama hraða og áður. Fyrirvari á nýju eldgosi getur verið stuttur eða jafnvel enginn. Hálft ár er síðan Grindvíkingum var gert að yfirgefa bæinn.
Matvælastofnun er bótaskyld fyrir að afhenda fréttamönnum RÚV gögn um starfsemi Brúneggja í tengslum við umfjöllun Kastljóss. RÚV var sýknað í málinu.
Á níunda hundruð seiða höfnuðu utan kers í fiskeldi Samherja í Öxarfirði. Óhappið gæti leitt til stroks eldislax.
Ísland kaus með ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Ályktunin var samþykkt á neyðarfundi þingsins í dag.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Það verður almyrkvi á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þótt það sé enn langt í þennan atburð eru erlendir ferðamenn þegar farnir að sýna því áhuga að koma til landsins. Látrabjarg gæti orðið vinsælasti staðurinn þar sem almyrkvinn stendur hvað lengst. Fjallað verður um þetta í Speglinum og meðal annars rætt við Sævar Helga Bragason. Fyrst verður hins vegar rætt við Viktor Traustason, einn þeirra tólf, sem eru í framboði til forseta Íslands. Hann setur þrjár reglur á oddinn í framboði sínu og ætlar að fylgjar þeim en ekki eigin geðþótta.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á föstudögum er sulta dagsins indie disco.
Fréttastofa RÚV.
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.