Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í nýútkominni hagspá til næstu tveggja ára spáir hagfræðideild Landsbankans litlum hagvexti í ár og næstu ár: háir vextir halda aftur af umsvifum í hagkerfinu. Verðbólgan verður þrálát og vextir taka fyrst að lækka í haust. Í dag var einmitt vaxtaákvörðunardagur, Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, var gestur okkar.
Borgþór Arngrímsson talaði um jafn ólík mál og danska herinn og fæðingarorlof og leikskóla í Danmörku, í spjalli um dönsk málefni.
Við rifjuðum upp sögu Katrínar Pálsdóttur, sem var bæjarfulltrúi í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar og mikil baráttukona fyrir réttindum mæðra og kvenna. Sigurrós Þorgrímsdóttir, barnabarn Katrínar og fyrrverandi bæjarfulltrúi og alþingismaður, hefur skrifað bók um baráttusögu Katrínar og hún sagði okkur frá sögu ömmu sinnar.
Tónlist:
Getz, Stan og Byrd, Charlie - One note samba.
Hoff, Karl Otto, Børsum, Ivar, Ringstad, Øistein, Bergheim, Kristian - Lady be good.
Wilke, Birthie og Winckler, Gustav - Skibet skal sejle i nat.
Jones, Norah, Staples, Mavis - I'll Be Gone.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hún, ásamt Elísabetu Jökulsdóttur, eru verndarar menntunarsjóðsins. Með Unni kom Lilja Kristjánsdóttir, sem hefur þegið styrk til náms úr sjóðnum. Þær sögðu okkur frá menntsjóðinum og Lilja sagði okkur sína sögu.
Jónatan Garðarsson kom svo aftur í þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í síðustu viku sagði Jónatan okkur frá Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu og í dag fræddi Jónatan okkur um Alfreð Clausen, einn af frumkvöðlum í íslenskum dægurlagasöngi.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá víðavangshlaupinu Puffin Run sem fram fór um liðna helgi á Heimaey. Þar hlupu næstum ellefu hundruð manns í blíðskaparveðri. Magnús veltir fyrir sér af hverju hlaupið er kallað Puffin Run en ekki „bieg maskonurów“ uppá pólsku því töluvert fleiri pólverjar en bandaríkjamenn tóku þátt í hlaupinu. Hann segir líka frá heimsókn sinni til Víkur í Mýrdal þar sem fleiri tala ensku en íslensku, en hann endar á Ítalíu þar sem bæir og borgir eru að taka til á heiðursborgaralistum sínum.
Tónlist í þættinum í dag:
Þú og ég / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Æskuminning / Alfreð Clausen (Ágúst Pétursson og Jenni Jóns)
I Can’t Give You Anything But Love / Alfreð Clausen (Dorothy Fields og Jimmy McHugh)
On the Road Again / Canned Heat (Alan Wilson & Floyd Jones)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Verðbólguvæntingar eru enn miklar og það er einn helsti vandinn í glímu við verðbólguna, segir Seðlabankastjóri. Hún hefur reynst þrálát og stýrivextir eru óbreyttir. Forystumenn verkalýðsfélaga telja bankann lesa stöðuna rangt.
Ísraelsher heldur áfram árásum á Gaza á meðan vopnahlésviðræður fara fram í Egyptalandi. Bandaríkin frestuðu vopnasendingu til Ísraels vegna andstöðu við yfirvofandi innrás í Rafah.
Ellefta mánuðinn í röð var hitamet slegið á heimsvísu. Áhrifa gætir víða og óttast loftslagsvísindamenn að meðalhiti eigi enn eftir að hækka.
Mæting í brjósta- og leghálsskimun hefur dregist saman síðustu ár. Yfirlæknir segir að efla þurfi upplýsingagjöf til kvenna af erlendum uppruna.
Starfsmenn Norðurþings hafa unnið að því í dag að fjarlægja hræ af kindum og selum úr landi sveitarfélagsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hræ eru skilin eftir á þessum slóðum, í óþökk heimamanna.
Grænlendingar ætla að draga sig úr Norðurlandaráði. Formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir að Grænlendingar hafi verið útundan í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum aðildarríkjanna.
Ísland komst ekki áfram í Eurovision í gær. Mun færri horfðu á undankeppnina á RÚV en hafa horft síðustu ár.
Karlalandsliðið í handbolta mætir Eistlandi í fyrri umspilsleik liðanna um sæti á HM í handbolta Í kvöld. Með sigri í einvíginu tryggir Ísland sér sæti á HM í áttunda sinn í röð.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Fjáröflunin Met gala vekur jafnt athygli sem einstakur tískuviðburður en þykir líka hrópandi fáranleiki í miðjum stríðsátökum. Hundruðir mótmælenda og stuðningsmanna Palestínu marseruðu saman að safninu til að mótmæla samkomunni í ár en mættu brynvörðum lögreglumönnum New York ríkis. Við ræðum um hvers vegna Met gala er svona fyrirferðarmikill viðburður, heyrum af langri sögu hans, tilgangi og öllu umstanginu. Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas og Stefán Svan Aðalheiðarson ræða málið við Þóru Tómasdóttur.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að fjalla um evrópusamvinnu. Þrítugsafmæli EES-samningsins er fagnað í dag - með málþingi og uppskeruhátíð. Þessi samningur hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskt samfélag - áhrifa hans gætir í viðskiptum og nýsköpun, rannsóknum, menntamálum, hann hefur haft áhrif á menningu, íþróttir og æskulýðsmál, skapað ýmis tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki, en hann er líka umdeildur, hefur í för með sér ýmsar kvaðir - og ekki gulltryggt að aðild Íslands að honum verði eilíf. Við ætlum að ræða þessi tímamót við Ágúst Hjört Ingþórsson, forstöðumann Rannís.
Svo sláum við á þráðinn til Önnu Berg Samúelsdóttur, stjórnarmanns í Dýraverndarsambandi Íslands. Samtökin halda því fram að of mörg dýr á Íslandi búi við hungur, ótta og þjáningu, víða sé illa búið að dýrum og eftirlit bitlaust. Hátt í fjögur þúsund skrifuðu undir áskorun sem samtökin afhentu forsætisráðherra fyrr í vikunni.
Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspall í lok þáttar. Við ræðum rannsóknir sameindalíffræðinga á áhrifum hreyfingar á hin ýmsu líffæri - einkum nýrnahettur.
Tónlist:
LAY LOW - Vonin.
THE LUMINEERS - Stubborn Love.
Fleet Foxes - Mykonos.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-08
Leadbelly - Fort worth and Dallas blues.
Mikael Máni Ásmundsson - Innermost.
Sunna Gunnlaugsdóttir - Sound of summer.
Aldana, Melissa - I know you know.
Lester Young - Teddy Wilson Quartet - All of me.
Bley, Carla, Jeffers, Jack, Valente, Gary, Goodrick, Michael, Haden, Charlie, Freeman, Sharon, Pepper, Jim, Slagle, Steve, Cherry, Don, Mantler, Michael, Motian, Paul, Redman, Dewey - Too late.
Armstrong, Louis and his Orchestra - If we never meet again.
Samúel Jón Samúelsson Big Band - Afróbít (with Tony Allen).
Thor Wolf - Jam funk.
Bivens, Cliff, James, Elmore, Campbell, Dave, Wilkins, Joe, Williamson, Sonny Boy, O'Dell, Frock - Eyesight to the blind.
James, Elmore - Goodbye baby.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Brynhildi Halldórsdóttur á Syðra-Lóni, sjávarbýli sem er spölkorn utan við þorpið á Þórshöfn á Langanesi. Brynhildur giftist að Syðra-Lóni árið 1958. Hún segir frá búskapnum á fyrri tíð, hvernig sjórinn var sóttur samhliða kúa- og sauðfjárbúskap, talar um æðarvarpið sem var og er mikilvægur hluti af búskapnum á Syðra-Lóni, um árin sín sem hreppstjóri og fleira. Því næst er Guðbjörg Guðmundsdóttir heimsótt. Hún hefur lengst af búið á Þórshöfn en ólst hins vegar upp á Skálum á Langanesi til níu ára aldurs. Þorpið á Skálum fór að mestu í eyði árið 1948 og endanlega 1955. Guðbjörg segir frá lífsbaráttunni á Skálum, rafmagnsleysi, vatnsburði, leikjum barnanna, óblíðum veðrum o.s.frv. Umsjón: Pétur Halldórsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Steingrímur Karl Teague er söngvari, djazzpíanisti, lagahöfundur og bókmenntafræðingur, sem ólst upp á Seltjarnarnesi með viðkomu í Bandaríkjunum. Hann er hvað þekktastur fyrir að vera einn af meðlimum hljómsveitarinnar Moses Hightower, sem setti alveg nýjan tón í íslenska tónlistarflóru árið 2010 með plötunni Búum til börn. Sálarskotinn fönk hljóðheimurinn í bland við hrífandi íslenska texta hefur svo þróast áfram á fjórum plötum, nú síðast Lyftutónlist sem kom út 2020.
Steingrímur hefur auk þess spilað og sungið með fjöldanum öllum af tónlistarfólki í gegnum árin, þar á meðal Of Monsters and Men og Uppáhellingunum sem einmitt gáfu út plötuna Tempó Primo. Árið 2021 gaf Steingrímur út plötuna More Than You Know með söngkonunni Silvu Þórðardóttur þar sem dúóið útsetur og leikur sér með fræga djazzstandarda.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Við höldum áfram að velta fyrir okkur umræðunni í kringum Eurovision. Á að sniðganga? Eða ekki? Bjarni Daníel rölti út í Kringlu og tók púlsinn á gestum og gangandi.
Kolbeinn Rastrick fór að sjá myndina Four Daughters sem nú er sýnd í Bió Paradís, en hún hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda. Myndin segir sögu mæðgna frá Túnis og er í leikstjórn Kaouther Ben Hania.
Í Tjarnabíói annað kvöld fara fram útgáfutónleikar, þar sem plötunni Our Daily Apocalypse Walk verður fagnað, en hún kom út um miðjan september í fyrra. Platan er innblásin af draumadagbók Maríu Carmela, MSEA, sem hún hélt utan um í heimsfaraldrinum - hún kíkti í heimsókn fyrr í dag og sagði frá.
Kvöldfréttir útvarps
Ríkisstjórnin var á Alþingi í dag sökuð um óstjórn og stefnuleysi í efnahagsmálum þegar rætt var um þá ákvörðun peningstefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Viðræður um vopnahlé á Gaza standa enn yfir í Egyptalandi. Stjórnandi bandarísku leyniþjónustunnar CIA reyndi að liðka fyrir þeim á fundi með forsætisráðherra Ísraels í dag.
Ekki er útilokað að fleira en ofbeldi geti skýrt andlát karlmanns í Bátavogi í Reykjavík síðasta haust.
Hratt hefur dregið úr hraunflæði við Sundhnúksgíga og mælingar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri á sekúndu síðustu vikur.
Stjórnvöld bera ábyrgð á að ryðja úr vegi hindrunum fyrir að konur mæti betur í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameini - en dregið hefur úr mætingu undanfarin ár. Þetta segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
8. maí 2024
Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira.
Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til að ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar eiga aðild að. Margar breytingar hafa verið gerðar á samkomulaginu frá því að það var fyrst lagt fram og nú er svo komið að fulltrúar Hamas segjast reiðubúnir að undirrita það eins og það er. Ísraelsstjórn segir enn vanta nokkuð upp á að það uppfylli þeirra kröfur, en segist þó viljug til að halda viðræðunum áfram.
Forsvarsmenn verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins eru vonsviknir vegna þess að Seðlabankinn heldur stýrivöxtum enn óbreyttum í 9,25%, eins og þeir hafa verið frá því í fyrrasumar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nauðsynlegt sé að lækka verðbólgu og að stýrivextir séu verkfærið til þess. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásgeir.
Veðurstofa Íslands.
Tónleikahljóðritanir frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson.
Hljóðritun frá kammertónleikum sem fram fóru í Kioi tónleikasalnum í Tókýó í september sl. þar sem fiðluleikararnir María Dueñas og Suyoen Kim og sellóleikarinn Pablo Ferrándes léku kammerverk á strengjahljóðfæri smíðuð af Antionio Stradivari. Með þeim lék píanóleikarinn Akira Aguchi og á efnisskrá voru verk eftir Sergej Rakhmanínov, Ludwig van Beethoven, Maurice Ravel, Pjotr Tsjajkovfskíj, Dmítrí Shostakovitsj og Erich Wolfgang Korngold.
Umsjón: Sigrún Harðardóttir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að fjalla um evrópusamvinnu. Þrítugsafmæli EES-samningsins er fagnað í dag - með málþingi og uppskeruhátíð. Þessi samningur hefur haft mikla þýðingu fyrir íslenskt samfélag - áhrifa hans gætir í viðskiptum og nýsköpun, rannsóknum, menntamálum, hann hefur haft áhrif á menningu, íþróttir og æskulýðsmál, skapað ýmis tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki, en hann er líka umdeildur, hefur í för með sér ýmsar kvaðir - og ekki gulltryggt að aðild Íslands að honum verði eilíf. Við ætlum að ræða þessi tímamót við Ágúst Hjört Ingþórsson, forstöðumann Rannís.
Svo sláum við á þráðinn til Önnu Berg Samúelsdóttur, stjórnarmanns í Dýraverndarsambandi Íslands. Samtökin halda því fram að of mörg dýr á Íslandi búi við hungur, ótta og þjáningu, víða sé illa búið að dýrum og eftirlit bitlaust. Hátt í fjögur þúsund skrifuðu undir áskorun sem samtökin afhentu forsætisráðherra fyrr í vikunni.
Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspall í lok þáttar. Við ræðum rannsóknir sameindalíffræðinga á áhrifum hreyfingar á hin ýmsu líffæri - einkum nýrnahettur.
Tónlist:
LAY LOW - Vonin.
THE LUMINEERS - Stubborn Love.
Fleet Foxes - Mykonos.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Mæðradagurinn er á sunnudaginn og í gær var hleypt af stokkunum söfnunarátaki Menntunarsjóðs mæðrastyrksnefndar, þar sem tilgangurinn er að styrkja efnalitlar konur til náms og þannig veita þeim tækifæri til að bæta lífskjör sín og sinna. Sjóðurinn hefur undanfarin ár styrkt um 500 konur til náms og Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikari og leikstjóri kom í þáttinn í dag, en það var tilkynnt í gær að hún, ásamt Elísabetu Jökulsdóttur, eru verndarar menntunarsjóðsins. Með Unni kom Lilja Kristjánsdóttir, sem hefur þegið styrk til náms úr sjóðnum. Þær sögðu okkur frá menntsjóðinum og Lilja sagði okkur sína sögu.
Jónatan Garðarsson kom svo aftur í þáttinn í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í síðustu viku sagði Jónatan okkur frá Soffíu Karlsdóttur söng- og leikkonu og í dag fræddi Jónatan okkur um Alfreð Clausen, einn af frumkvöðlum í íslenskum dægurlagasöngi.
Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins segir frá víðavangshlaupinu Puffin Run sem fram fór um liðna helgi á Heimaey. Þar hlupu næstum ellefu hundruð manns í blíðskaparveðri. Magnús veltir fyrir sér af hverju hlaupið er kallað Puffin Run en ekki „bieg maskonurów“ uppá pólsku því töluvert fleiri pólverjar en bandaríkjamenn tóku þátt í hlaupinu. Hann segir líka frá heimsókn sinni til Víkur í Mýrdal þar sem fleiri tala ensku en íslensku, en hann endar á Ítalíu þar sem bæir og borgir eru að taka til á heiðursborgaralistum sínum.
Tónlist í þættinum í dag:
Þú og ég / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Æskuminning / Alfreð Clausen (Ágúst Pétursson og Jenni Jóns)
I Can’t Give You Anything But Love / Alfreð Clausen (Dorothy Fields og Jimmy McHugh)
On the Road Again / Canned Heat (Alan Wilson & Floyd Jones)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Við höldum áfram að velta fyrir okkur umræðunni í kringum Eurovision. Á að sniðganga? Eða ekki? Bjarni Daníel rölti út í Kringlu og tók púlsinn á gestum og gangandi.
Kolbeinn Rastrick fór að sjá myndina Four Daughters sem nú er sýnd í Bió Paradís, en hún hlaut tilnefningu til óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda. Myndin segir sögu mæðgna frá Túnis og er í leikstjórn Kaouther Ben Hania.
Í Tjarnabíói annað kvöld fara fram útgáfutónleikar, þar sem plötunni Our Daily Apocalypse Walk verður fagnað, en hún kom út um miðjan september í fyrra. Platan er innblásin af draumadagbók Maríu Carmela, MSEA, sem hún hélt utan um í heimsfaraldrinum - hún kíkti í heimsókn fyrr í dag og sagði frá.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans var tilkynnt í morgun. Í hádegisfréttum í gær kom fram að fjármálaráðherra teldi ekkert því til fyrirstöðu að Seðlabankinn lækki stýrivexti. Hann sagði jafnframt vísbendingar um að hávaxtastefna bankans komi í veg fyrir að verðbólgan hjaðni. Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og doktor í fjármálum mætti í spjall um málið.
Í dag hefst átakið Hjólað í vinnuna í tuttugasta og annað sinn en átakið er á vegum almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÍSÍ. Linda Laufdal og Þórarinn Alvar Þórarinsson frá ÍSÍ komu til okkar.
Okkar heimur er stuðningsúrræði fyrir börn sem eiga foreldra með geðrænan vanda og var sett á laggirnar vegna skorts á stuðningi og fræðslu fyrir börn í þessari stöðu hér á landi. Sigríður Gísladóttir, framkvæmdarstjóri og einn stofnanda Okkar heims kom til okkar.
Þrátt fyrir yfirburðarstöðu á markaði streymisveitna hefur Spotify aldrei skilað hagnaði. Við ræddum fjármál í tónlistarbransanum við Björn Berg Gunnarsson.
Í gær biðlaði Antonio Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna til allra sem gætu mögulega haft áhrif á stjórnvöld í Ísrael að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að stöðva enn frekari hörmungar. Hann sendi neyðarkallið ekki út að ástæðulausu. Við fórum yfir stöðuna með Silju Báru Ómarsdóttir prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Reykjavíkurmaraþonið fagnar 40 ára afmæli í ár og í tilefni þess verður öllu til tjaldað til að gera hlaupið sem glæsilegast. Þá verður því einnig fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Fríða Bjarnadóttir hljóp fyrst íslenskra kvenna maraþon á Íslandi. Við fengum til okkar þau Hrefnu Hlín Sveinbjörnsdóttur frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur, ÍBR, og fyrrum þingmanninn Vilhjálm Bjarnason, sem hefur hlaupið yfir 30 hálf maraþon.
Tónlist:
BUBBI - Dansaðu.
COLDPLAY - Speed Of Sound.
GDRN - Háspenna.
LEON BRIDGES - Beyond.
GDRN - Háspenna.
STING - Shape Of My Heart.
PELICAN - Jenny darling.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Andri Freyr sat einn við borðið í dag en gerði sitt allra besta.
Lagalisti þáttarins:
Magnús Þór Sigmundsson - Jörðin sem ég ann.
SIXPENCE NON THE RICHER - Kiss Me.
MUGISON - Stóra stóra ást.
Jóipé x Króli, USSEL, JóiPé, Króli - Í Fullri Hreinskilni.
OASIS - Supersonic.
BLUR - Sing.
THE CARS - Drive.
Friðrik Ómar Hjörleifsson - Ómissandi fólk.
Retro Stefson - She Said.
Lorde - Take Me to the River.
Malen Áskelsdóttir - I don?t know what i saw in you.
GRAFÍK - Himnalagið.
STEVIE WONDER - Pastime paradise.
Julian Civilian - Tölum saman í september.
LADDI - Sandalar.
Kings of Leon - The bucket.
THE BEATLES - I Want To Hold Your Hand.
THE BEATLES - Can't Buy Me Love.
SHERYL CROW - All I Wanna Do.
DORIS TROY - Just One Look.
Fontaines D.C. - Starburster.
BOTNLEÐJA - Þið eruð frábær.
GUS GUS - Obnoxiously (radio edit).
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Sjalið.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
PRINCE - Cream.
Emilíana Torrini - Miss flower.
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Veldu stjörnu (ft. John Grant).
Friðrik Ómar Hjörleifsson - Líttu sérhvert sólarlag.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar Er Draumurinn?.
SUEDE - Animal Nitrate.
TOTO - Rosanna.
MR. BIG - To Be With You.
U2 - Atomic City.
Goldies - Vitleysingur.
Herra Hnetusmjör - Upp til hópa.
GDRN - Parísarhjól.
LAUFEY - Everything I know about love.
UNKNOWN MORTAL ORCHESTRA - So Good At Being In Trouble
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Verðbólguvæntingar eru enn miklar og það er einn helsti vandinn í glímu við verðbólguna, segir Seðlabankastjóri. Hún hefur reynst þrálát og stýrivextir eru óbreyttir. Forystumenn verkalýðsfélaga telja bankann lesa stöðuna rangt.
Ísraelsher heldur áfram árásum á Gaza á meðan vopnahlésviðræður fara fram í Egyptalandi. Bandaríkin frestuðu vopnasendingu til Ísraels vegna andstöðu við yfirvofandi innrás í Rafah.
Ellefta mánuðinn í röð var hitamet slegið á heimsvísu. Áhrifa gætir víða og óttast loftslagsvísindamenn að meðalhiti eigi enn eftir að hækka.
Mæting í brjósta- og leghálsskimun hefur dregist saman síðustu ár. Yfirlæknir segir að efla þurfi upplýsingagjöf til kvenna af erlendum uppruna.
Starfsmenn Norðurþings hafa unnið að því í dag að fjarlægja hræ af kindum og selum úr landi sveitarfélagsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hræ eru skilin eftir á þessum slóðum, í óþökk heimamanna.
Grænlendingar ætla að draga sig úr Norðurlandaráði. Formaður grænlensku landsstjórnarinnar segir að Grænlendingar hafi verið útundan í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum aðildarríkjanna.
Ísland komst ekki áfram í Eurovision í gær. Mun færri horfðu á undankeppnina á RÚV en hafa horft síðustu ár.
Karlalandsliðið í handbolta mætir Eistlandi í fyrri umspilsleik liðanna um sæti á HM í handbolta Í kvöld. Með sigri í einvíginu tryggir Ísland sér sæti á HM í áttunda sinn í röð.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hin annálaða álfasala SÁÁ hefst í dag. Álfurinn hefur verið meira og minna á röltinu síðustu árin en í ár ætlar hann að nýta sér umhverfisvænan ferðamáta og verður Álfurinn á ferðinni um allt land á hlaupahjóli dagana 8.-12. maí. Anna Hildur Guðmundsdóttir er formaður SÁÁ og segir okkur betur frá vorálfinum.
Ríflega 10.000 manns hafa nú séð Ebbu Katrínu Finnsdóttur brillera í sýningunni Orð gegn orði, sem var færð fyrir skömmu á Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu vegna vinsælda. Sýningin hefur haft gríðarleg áhrif og hreyft við fólki, ekki síst leikkonunni sjálfri sjálfri sem kláraði sína 50. sýningu í gær. Ebba kemur til okkar.
Það er stundum sagt að ef forsetakosningarnar hefðu verið viku lengri árið 2016 væri ekki Guðni Th. Jóhannesson forseti, heldur Halla Tómasdóttir. Hún náði merkilegum árangri það árið en féll í raun á tíma. Nú hefur hún gefið þjóðinni kost á sér á ný, og þó hún mælist ekki með hæstu frambjóðendunum þessa dagana, sýnir sagan að það er hættulegt að vanmeta hana. Halla verður á grillinu eftir fimm fréttir.
Bókin Mennska kemur út í dag og á hún erindi við öll þau sem hafa glímt við skömm og reynt að skila henni, finnst erfitt að taka pláss í samfélaginu eða hafa fórnað hluta af sjálfum sér af ótta við viðbrögð annarra. Höfundurinn Bjarni Snæbjörnsson leikari segir okkur frá Mennsku.
Kvöldfréttir útvarps
Ríkisstjórnin var á Alþingi í dag sökuð um óstjórn og stefnuleysi í efnahagsmálum þegar rætt var um þá ákvörðun peningstefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Viðræður um vopnahlé á Gaza standa enn yfir í Egyptalandi. Stjórnandi bandarísku leyniþjónustunnar CIA reyndi að liðka fyrir þeim á fundi með forsætisráðherra Ísraels í dag.
Ekki er útilokað að fleira en ofbeldi geti skýrt andlát karlmanns í Bátavogi í Reykjavík síðasta haust.
Hratt hefur dregið úr hraunflæði við Sundhnúksgíga og mælingar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri á sekúndu síðustu vikur.
Stjórnvöld bera ábyrgð á að ryðja úr vegi hindrunum fyrir að konur mæti betur í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameini - en dregið hefur úr mætingu undanfarin ár. Þetta segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
8. maí 2024
Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira.
Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til að ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar eiga aðild að. Margar breytingar hafa verið gerðar á samkomulaginu frá því að það var fyrst lagt fram og nú er svo komið að fulltrúar Hamas segjast reiðubúnir að undirrita það eins og það er. Ísraelsstjórn segir enn vanta nokkuð upp á að það uppfylli þeirra kröfur, en segist þó viljug til að halda viðræðunum áfram.
Forsvarsmenn verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins eru vonsviknir vegna þess að Seðlabankinn heldur stýrivöxtum enn óbreyttum í 9,25%, eins og þeir hafa verið frá því í fyrrasumar. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að nauðsynlegt sé að lækka verðbólgu og að stýrivextir séu verkfærið til þess. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ásgeir.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Gervi föstudagur í dag vegna upprisu Jesúsar á morgun og því fögnum við á Kvöldvaktinni með nýrri tónlist frá Teiti Magnússyni, Kendrick Lamar, Bubba, Celebs, Dua Lipa, ClubDub, Emelíönu Torrini, St Vincent og mörgum fleirum.
Lagalistinn
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 28. apríl - 5. maí 2024.