Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Magnea Sverrisdóttir, djákni, flytur.
Útvarpsfréttir.
Fjallað um Bandaríkjamanninn Jack Kornfield fyrrverandi búddamunk, kennara í hugleiðslu og bók hans "Um hjartað liggur leið". Umsjón: Sigurður Skúlason
Útvarpsfréttir.
Seinni þáttur um Hvítasunnuhreyfinguna á Íslandi.
Umsjón: Pétur Pétursson guðfræðiprófessor.
Lesari: Guðrún Ásmundsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Árið 1913 var Guðbjörg Bjarnadóttir ritstjórafrú á Ísafirði, hamingjusöm í hjónabandinu, vel efnuð og fimm barna móðir. En á þessu eina ári hrundi allt. Eiginmaður Guðbjargar, Kristján H. Jónsson, dó úr krabbameini, allar eigur varð að selja fyrir skuldum og Guðbjörg hafði ekki annað úrræði en að láta fjögur barna sinna í fóstur, hér og þar um landið, og gerast sjálf vinnukona með eitt barnið með sér. Samt missti hún hvorki kjarkinn né lífsgleðina. Guðbjörg var langamma umsjónarmanns þáttarins, Unu Margrétar Jónsdóttur, og í þessum tveimur þáttum segir Una Margrét sögu hennar allt frá því að Guðbjörg fæddist utan hjónabands árið 1877, barn bónda og vinnukonu hans, og þar til hún dó níræð að aldri árið 1967.
Lesarar: Hanna María Karlsdóttir, Gunnar Hansson og Halla Harðardóttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög af trúarlegum toga, flest íslensk en einnig eftir erlenda höfunda. Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Kór Lindakirkju flytja lagið Ég er á leið, Gospelkór Fíladelfíu syngur Drottinn lofað sé þitt nafn, Edgar Smári Atlason syngur Lífið og þú, Lofgjörðarhópur Fríkirkjunnar Vegarins flytur lagið Jesús, nafn þitt er nafnið, Halli Reynis og Matthías Ægisson flytja lagið When We Cross The Border, Íris Lind Verudóttir og Eva Dögg Sveinsdóttir syngja Vísa mér þinn veg, Íris Dögg Ingvadóttir og Gospel krakkar syngur Hirðirinn, Moira Ruth van Gooswillingen og Gospel krakkar syngja Vera saman, Gospelkór Jóns Vídalín flytur No Word Praise og lokalagið er Praise The Lord eftir Torfa Ólafsson.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Guðsþjónusta.
Helgi Guðnason, forstöðumaður Fíladelfíu, þjónar fyrir altari og predikar.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu.
Einsöngur: Hrönn Svansdóttir.
Stjórnandi og píanóleikari: Óskar Einarsson.
David Blurton leikur á bassa, Brynjólfur Snorrason á trommur, Pétur Erlendsson á rafgítar og Emil Heiðar Björnsson á kassagítar.
Hljóðblöndun og stjórn upptöku: Magnús Kristinsson.
Ritningalestur: Jóhannes Ingimarsson.
Vitnisburður: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.
Ég á trú. Höfundar: Matthew Hooper, Richie Fike og Travis Ryan. Íslenskur texti: Guðlaugur Gunnarsson.
2. Þú ert Guð. Höfundar: Jonathan Jerez, Sarah Jerez. Íslenskur texti: Helgi Guðnason.
3. Sjá huggarinn er hér. Höfundur: F. Bottome. Íslenskur texti: Sigurbjörn Sveinsson.
4. Leyf mér að tigna þig. Höfundar: Jonas Myrin, Matt Redman. Íslenskur texti:i Guðlaugur Gunnarsson.
5. Enginn elskar eins og þú. Höfundur: Hjalti Gunnlaugsson.
6. Helgur andi kom. Höfundur: Russel Frager.Íslenskur texti: Kristín Ósk Gestsdóttir.
7. Góðvild Guðs. Höfundur: Jen Johnson. Íslenskur texti: Árný Björg Blandon.
8. Hér í nálægð þinni. Lag: Óskar Einarsson. Texti: Íris Guðmundsdóttir.
9. Drottinn, þú ert mér ætið nær. Höfundar Bo og Elsa Järpehag. Íslenskur texti:i Guðlaugur Gunnarsson.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Listahátíð í Reykjavík er framundan. Hátíðin hefst 1. júní næstkomandi og stendur fram á 16. júní. Þema hátíðarinnar að þessu sinni er HÉR og hátíðin leitast við að svara því hvaða spurningar sé brýnast að takast á við í samtímanum og hvaða viðfangsefni séu mest aðkallandi. Í þættinum er gerð tilraun til að endurspegla þetta þema með hjálp útvarpsþátta sem finna má í safni Ríkisútvarpsins frá níunda áratug síðustu aldar og hétu Hér og nú. Ef til vil má nýta brot úr því mikla safni til að endurspegla hvar við erum hér og nú og hvernig íslenskt samfélag hefur þróast síðan þættirnir voru í loftinu.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Vasagangan er 90 km gönguskíðakeppni frá Sälen til þorpsins Mora í dölunum í Svíþjóð. Á milli Sälen og Mora er vegur sem er vel hægt að keyra á rúmlega einum klukkutíma en ég ásamt rúmlega 15.000 keppendunum hef ákveðið að borga fúlgur fjár fyrir og ganga þetta á gönguskíðum. Af hverju? Ég veit það ekki alveg.
Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Hljóðritun frá tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur í Eldborg í Hörpu 7. janúar s.l. Tónleikarnir voru helgaðir swingtímabilinu, 1930-50, þegar stórsveitir réðu ríkjum í tónlistarheiminum og stjórnendur, söngvarar og einleikarar voru poppstjörnur síns tíma. Flutt eru verk sem stórsveitir Glenn Miller, Benny Goodman, Duke Ellington, Count Basie, Woody Herman , Tommy Dorsey og fleiri voru með á efnisskrá sinni. Gestasöngvarar eru þau Valdimar Guðmundsson og Unnur Birna Björnsdóttir. Sigurður Flosason stjórnar og kynnir.
Saga úr sögusafni Isaac Bashesvis Singer. Safnið var gefið úr hjá Brombergs förlag í Stokkhólmi 1979.
Elísabet Brekkan les eigin þýðingu.
(Áður á dagskrá 1992)
Kvöldfréttir útvarps
Smásaga eftir Brynjólf Jónsson frá Minna Núpi.
Vernharður Linnet les.
(Áður á dagskrá 1992)
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla og Karitas ræða við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann og Karitas M. Bjarkadóttir.
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? taka Embla og Karitas fyrir bókaflokk Birgittu Haukdal og þau Láru og Ljónsa. Birgitta kíkir við og ræðir um það hvaðan hugmyndin að bókunum kom og svarar spurningum bókaormsins Alexöndru Rutar sem þekkir sögurnar betur en flestir aðrir.
Veðurstofa Íslands.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Gyrðir Elíasson hlaut í vikunni ljóðabókabókaverðlaunin Maístjörnuna fyrir ljóðabókatvennuna Meðan glerið sefur og Dulstirni. Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verðlaunin árlega fyrir útgefna ljóðabók. Verðlaunin, Þau var afhent í áttunda sinn við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni og við ræðum stuttlega við verðlaunahafann.
Er brátt kominn tími til að kveðja genið? Það er stór spurning sem hvílir yfir í síðari hluta þessa þáttar. Öld gensins eftir Evelyn Fox Keller kom út í íslenskri þýðingu Kristjáns G. Arngrímssonar í Lærdómsritröð hins íslenska bókmenntafélags síðasta haust. Keller var einn fremsti vísindasagnfræðingur, heimspekingur og hugsuður samtímans sem nálgaðist vísindin af sterkri réttlætiskennd og heiðarleika. Skúli Skúlason líffræðingur og prófessor við háskólann á hólum skrifar inngang að bókinni og kemur til okkar í lok þáttar og segir okkur betur frá erfðavísindum á tímamótum.
Viðmælendur: Gyrðir Elíasson og Skúli Skúlason.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Við rannsökum einn svartasta blettinn sem fallið hefur á Íslandssöguna. Rætt er við Hólmfríði Matthíasdóttur forstöðumann réttindastofu Forlagsins og þýðanda, Magnús Rafnsson sagnfræðing og forstöðumann galdrasafnsins á Hólmavík, Margréti Jónsdóttur Njarðvík vararæðismann Spánar á Íslandi, Má Jónsson sagnfræðing, Ólaf Engilbertsson sagnfræðing og formann Baskavinafélagsins og Xabier Irujo meðstjórnanda miðstöðvar í baskneskum fræðum í Nevada Háskóla í Reno í Bandaríkjunum. Að auki má heyra Steindór Andersen flytja nokkur erindi úr kvæðinu Fjölmóði eftir Jón lærða og Hilmar Örn Hilmarsson leikur á steinhörpu.
Umsjón: Dagur Gunnarsson.
eftir Elísabet Jökulsdóttur. Höfundur les.
(Hljóðritað 1993)
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Fjallað um Sigrúnu Magnúsdóttur, fyrstu söngleikjastjörnu Íslendinga sem kölluð var óperettudrottningin.
Umsjón: Valgarður Stefánsson.
Lesari: Steinunn S. Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1998)
Í þættinum er fjallað um fólk sem býr eða dvelur um stund neðanjarðar, hvort sem er í hellum, holum og námum eða nýtískulegum í neðanjarðarhverfum í stórborgum nútímans. Hér er rætt um fólk sem býr í ópalnámum í Ástralíu, heimilislausa sem búa í neðanjarðakerfum stórborga, katófíla sem dvelja neðanjarðar í París og krakka sem leituðu að Turtles í holræsunum í Breiðholtinu. Í þættinum er einnig rætt við geðlækni um áhrif sólarljóssins á líkama og sál. Umsjón: Halla Ólafsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hafdís Helga Helgadóttir býður upp á lauflétta tóna í morgunsárið og kaffispjall við áhugaverða gesti fram að hádegisfréttum.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hulda G. Geirsdóttir fylgir hlustendum heim að lokinni hvítasunnuhelgi. Fjölbreytt tónlist og helstu tíðindi fram að fjögur fréttum.
Útvarpsfréttir.
Sólóferill súperstjörnunnar Beyoncé spannar tvo áratugi en enginn listamaður hefur oftar verið verðlaunaður í sögu Grammy verðlaunanna. Tónlistarkonan hefur á löngum ferli flakkað á milli tónlistarstíla og sýnt og sannað að hún getur jöfnum höndum glímt við R'n'B, hip hop, rokk, kántrí og klassík. Við förum yfir ávexti Beyoncé, í löngu máli og af mikilli innlifun, og spönnum hennar fjölbreytta feril allt frá Houston, Texas til heimsyfirráða.
Umsjón: Snærós Sindradóttir.
Kvöldfréttir útvarps
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á hátíðardögum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Siggi velti sér aðallega upp úr Philadelphia Soul eða Philly Soul í þættinum að þessu sinni.
Spiluð lög:
The Three Degrees - TSOP (The Sound Of Philadelphia)
The Spinners - Ghetto Child
Harold Melvin and The Blue Tones - Don't Leave Me This Way
The O'Jays - Backstabbers
The Trammps - Love Epidemic
Timmy Thomas - Why Can't Live Together
McFadden & Whithead - Ain't No Stopping Us Now
Boz Scaggs - Lowdown
Love Unlimited - I'm So Glad That I'm a Woman
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.