Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Mislingar, hettusótt og kíghósti eru dæmi um sjúkdóma sem hafa skotið upp kollinum hér á landi undanfarið, en hversu vel erum við varin fyrir þessum vágestum? Við fórum yfir það uppúr klukkan hálfníu með Kamillu Sigríði Jósefsdóttur yfirlækni bólusetninga hjá embætti Landlæknis.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, kom í þáttinn upp úr hálf átta. Við ræddum um miður góða stöðu ÍL-sjóðs og miður góða stöðu ríkissjóðs gagnvart ÍL-sjóði. Tap flugfélaganna var skoðað og yfirvofandi vaxtahækkanir á óverðtryggðum húsnæðislánum. Og: frumvarp um viðbótarlífeyrissparnað sem fjármálafyrirtækin eru hrifin af en margir aðrir ekki.
Og svo voru það þýsk málefni. Yfir þau fór Arthúr Björgvin Bollason eftir Morgunfréttirnar. Á efnisskránni voru meðal annars réttarhöld yfir hópnum sem kallaður er “ríkisborgara-hópurinn” og er sakaður um að hafa undirbúið valdarán í Þýskalandi. Við ræddum líka um menningu og mannlíf í Berlínarborg.
Gömlu göturnar - Kári Egilsson
Frostnótt í Reykjavík - Kári Egilsson
Óróapúls - Kári Egilsson
Berlin – Hildegard Knef
Circle - Miles Davis Quintet, Shorter, Wayne, Williams, Tony, Hancock, Herbie, Carter, Ron, Davis, Miles.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski er yfirskriftin á árlegri vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem haldin verður á fimmtudag og föstudag á Hótel Nordica. Umfjöllunarefnið er kynheilbrigði frá bensku til fullorðinsára og hvernig hægt er að mæta betur fjölbreyttum taugaþroska barna og skoðuð verður staðan og þjónustan í þessum málaflokki og fleira. María Jónsdóttir, félagsráðgjafi á Ráðgjafar- og greiningarstöð, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um það sem þarna fer fram.
Hin árlegi Alþjóða hláturdagur verður haldinn 5. maí næstkomandi við þvottalaugarnar í Laugardal með það að markmiði að vekja athygli á hlátri, gæðum hláturs og finna hina barnslegu leikgleði sem svo mörg okkar eiga til að gleyma í alvarleika lífsins. Við ræddum við Finnboga Þorkel Jónsson, hláturjógaleiðbeinanda og eiganda Gleðismiðjunnar, í þættinum. Finnbogi fræddi okkur um sögu hláturjóga og ávinningin og kenndi okkur í beinni útsendingu hlátursláttuvélina, sem er æfing til að koma af stað hlátri.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í veðurspjallið. Hlýnun jarðar veldur því að tilvikum ókyrrðar fer fjölgandi. Umfjöllun var um málið í BBC um helgina og Einar fræddi okkur um ókyrðina sem hefur aukist með hlýnun loftslagsins.Svo voru það sólskinsmælingar í Reykjavík og fjöldi sólarstunda. Apríl er að ljúka og mars var sérlega sólríkur suðvestanlands. Er aprílsólarmetið í Reykjavík að falla? Svo fór Einar að lokum aðeins yfir veðurspána framundan.
Tónlist í þættinum í dag:
S.O.S. Ást í neyð / Hljómsveit Magnúsar Ingimarsson (Moroder & Holm, texti Ómar Ragnarsson)
Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
Build Me Up Buttercup / The Foundations (Mike D'Abo & Tony Macaulay)
Fjórir kátir þrestir / Sigrún Jónsdóttir (erlent lag, texti Jón Sigurðsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Heilbrigðisráðherra segir fjármagn til að komast hjá sumarlokunum meðferðarstarfs SÁÁ ekki skorta, en það þurfi að tryggja í samningum við Sjúkratryggingar.
Þrettán ára drengur lést þegar maður réðst á hann með sverði í úthverfi Lundúna í morgun. Fimm særðust í árásinni, þar af tveir lögreglumenn.
Liðsmenn íranska byltingarvarðarins myrtu sextán ára stúlku og beittu hana kynferðislegu ofbeldi, samkvæmt leyniskjölum sem hefur verið lekið til fjölmiðla. Írönsk stjórnvöld sögðu hana hafa framið sjálfsvíg.
Brotist var inn á Facebook- aðgang víetnamska kaupsýslumannsins Quangs Lés sem situr í gæsluvarðhaldi. Birt hafa verið samskipti hans við samstarfsmenn sína og spjótunum meðal annars beint að ríkisstjórnarflokkunum, heilbrigðiseftirlitinu og World Class.
Fjöldi barna sem útskrifast úr tíunda bekk í vor verður í fyrsta sinn meiri en fimm þúsund. Þar af hafa um fimmtán þeirra annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Formaður skólameistarafélagsins segir framhaldsskóla illa undir það búna að taka á móti þessum fjölda.
Fleiri ferðamenn komu til landsins fyrstu þrjá mánuði ársins en á sama tíma fyrra. Bókanir næstu mánuði benda þó til þess að þeim fækki.
Lögreglan á Norðurlandi vestra segir rannsókn á vanrækslu nautgripa á bæ í Skagabyggð á frumstigi. Matvælastofnun hafði áður fengið tilkynningu um bæinn og sinnt þar eftirliti.
Fastlega er gert ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir fram á haust.
Sjö Sveitarfélög á Austurlandi og Vestfjörðum fá næstum 440 milljónir króna úr fiskeldissjóði í ár til að byggja upp inniviði. Fjarðabyggð fær mest en árið 2022 fékk hún ekkert og telur enn að leggja eigi sjóðinn niður.
Karlalið Vals er komið í úrslitaeinvígið um Evrópubikarinn í handbolta. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari liðsins, segir spennufallið mikið.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Bára Baldursdóttir sagnfræðingur segir frá fordæmalausum frelsissviptingum ungra stúlkna sem fram fóru af hálfu hins opinbera hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni. Lögreglan stundaði umfangsmiklar njósnir á stúlkum sem grunaðar voru um að hafa áhuga á hermönnum úr setuliðinu. Bára sá sig knúna til að skrifa bók um þessa atburði eftir að hafa komist í skjöl sem haldið var frá almenningi í áraraðir. Þóra Tómasdóttir ræðir við Báru.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Kröfugöngur, baráttufundir, þrusuræður, kaffiveitingar og lúðrahljómur - já 1. maí er á morgun. Við ætlum af því tilefni að ræða stemninguna þennan dag og helstu baráttumál samtímans við Örnu Jakobínu Björnsdóttur, formann Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu - en hún verður fundarstjóri á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík á morgun.
Á þessu ári er því fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Reykjavíkurmaraþon var fyrst haldið og eflaust eru einhverjir hlauparar farnir að huga að því ágæta hlaupi í ár og æfa stíft. Við ætlum að tala um maraþonhlaup við Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara og doktor í íþróttafræðum.
Við fáum svo pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi í lok þáttar, í pistlinum rekur hann rannsóknir á því hvernig mismunandi arkitektúr verkar á fólk.
Tónlist:
Bubbi Morthens - Hulduþula.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Buffalo Soldier.
Tónlistarstraumar frá ýmsum löndum, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Umsjón: Árni Matthíasson
Guðmundur Þór Friðleifsson, sem notar listamannsnafnið ThorF, lagði rafmagnsgítarinn og síða hárið á hilluna þegar hann heyrði Music for the Jilted Generation með Prodigy á sínum tíma. Hann tók þátt í raftónlistarbyltingu tíunda áratugar síðustu aldar, en hefur búið í Bandaríkjunum síðustu ár. Hann heldur þó áfram að semja og taka upp raftónlist, þó hann sé að fjarlægjast tölvuna.
Lagalisti:
Liqsquid - MetAmbientalic
Ár / Year - Vor / Spring
Spark - Wolfhunter
Wander - 3rDx7
Liqsquid - Ambient Synth Collection A-2
Mamma/Pabbi - Beautiful Show Must Go On
Mamma/Pabbi - Náttfall
YT Stream A - YT Stream A
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Áfram heldur Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko að segja frá ævi sinni í Sovétríkjunum á 4. ára síðustu aldar. Járngreipar Stalíns herðast æ meira um samfélagið og ást Kravténkos á stúlkunni Jelenu verður meðal fórnarlambanna. En hver var Jelena, hvað vakti henni og hver urðu örlög hennar?
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Bandaríski uppistandarinn, tónlistarmaðurinn og leikarinn Reggie Watts hefur getið sér gott orð víða um heim fyrir sýningar sem blanda saman tónlist, improvi, uppistandi, eftirhermum og einkennilegum hugvekjum. Reggie Watts hélt um helgina tvær uppistandssýningar hér á landi. Annars vegar í Samkomuhúsinu á Akureyri og hins vegar í Gamla bíói í Reykjavík en hann mun síðan halda aðra sýningu á Flateyri þann um næstu helgi. Við ræðum við hann og Margréti Erlu Maack í þætti dagsins.
Við kynnum okkur einnig sístækkandi menningarfyrirbærið hlaðvarp. Það er um áratugur síðan hlaðvarpið sprakk út og miða margir þá blómstrun við hið feikivinsæla bandaríska hlaðvarp; Serial. Við ræðum við hlaðvarpsritstjóra Rúv, og aðra starfsmenn í efstaleiti um uppáhaldshlaðvörp.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Við ætlum í fjallgöngu. Fjallgöngu sem mögulega breytir öllu. Fimm vinkonur, fimm fræknar, fóru yfir Fimmvörðuháls seinasta sumar. Upptakan hefur setið ónsert í tölvunni síðan í júlí í fyrra. En nú er kominn tími til að skoða hvað gerðist þegar Fimmvörðuháls varð að Everest.
Hljómsveitin ex.girls er í hópi áhugaverðustu rafsveita Reykjavíkursenunnar, og eftir margra ára vinnu leit fyrsta plata þeirra í fullri lengd dagsins ljós á seinni hluta síðasta árs. Platan heitir Verk og á henni leitast sveitin við að varpa ljósi á þetta mannlega og þetta hversdagslega, þetta grámyglulega, reglubundna, fallega og þetta íslenska. Guðlaugur og Tatjana litu við í hljóðveri í dag til að klára verkið.
Lagalisti:
Feel - Robbie Williams
Tuscan Leather - Drake
Jammin'- Bob Marley
Buffalo Soldier - Bob Marley
Fjallganga - Egill Ólafsson
ex.girls - Æð
ex.girls - 90 Oktan
ex.girls - Hundrað í hættunni
ex.girls - Vont er það venst
ex.girls - Innri ytri
ex.girls - Drepa mann
ex.girls - Manneskja
ex.girls - Halda áfram
Kvöldfréttir útvarps
Orkumálaráðherra segir það vonbrigði að fólk nýti sér allar mögulegar glufur í lagaumhverfinu til að tefja fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun. Horfa þurfi til hagsmuna þjóðarinnar, sem þurfi á grænni orku að halda.
Vísbendingar eru um að fljótlega gæti dregið til tíðinda á gosstöðvunum við Sundhnúksgíga. Aukin hætta er talin á hraunflæði í Grindavík.
Formaður fjárlaganefndar segir gögn sem nefndin fer yfir varpa skýrara ljósi á samskiptin í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM.
Skipuð verður sérstök rannsóknarnefnd til að fara yfir ákvarðanir stjórnvalda og almannavarna í aðdraganda snjóflóðsins sem féll í Súðavík árið 1995. Tillaga þessa efnis var samþykkt á Alþingi í dag með öllum greiddum atkvæðum.
Innflutt matvæli og blóm eiga eftir að hækka nokkuð í verði í breskum verslunum vegna eftirlits við landamærin. Eftirlitið átti að hefjast fyrir tæpum þremur árum en því hefur ítrekað verið frestað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson.
Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins.
Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en samt í Gufunesi.
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.
Í þættinum í dag ætlum við að kíkja á uppruna alls konar hluta t.d tannbursta, tannkrem, spegill, ísskáp, gleraugu og umferðarljós.
Allir þessir hlutir eiga það sameigilegt að eiga langa og skemmtilega sögu.
Veðurstofa Íslands.
Hljóðritun frá Norður þýska útvarpinu í Hamborg sem gerð var 1978, með bandarísku söngkonunni Söruh Vaughan og hljómsveit hennar. Þeir sem skipa hljómsveitina eru trompetleikarinn Waymond Reed, píanóleikarinn Carl Schroeder, kontrabassaleikarinn Walter Booker og trommarinn Jimmy Cobb.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Kröfugöngur, baráttufundir, þrusuræður, kaffiveitingar og lúðrahljómur - já 1. maí er á morgun. Við ætlum af því tilefni að ræða stemninguna þennan dag og helstu baráttumál samtímans við Örnu Jakobínu Björnsdóttur, formann Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu - en hún verður fundarstjóri á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík á morgun.
Á þessu ári er því fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Reykjavíkurmaraþon var fyrst haldið og eflaust eru einhverjir hlauparar farnir að huga að því ágæta hlaupi í ár og æfa stíft. Við ætlum að tala um maraþonhlaup við Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara og doktor í íþróttafræðum.
Við fáum svo pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi í lok þáttar, í pistlinum rekur hann rannsóknir á því hvernig mismunandi arkitektúr verkar á fólk.
Tónlist:
Bubbi Morthens - Hulduþula.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Buffalo Soldier.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Höfundur: Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Kynheilbrigði og fjölbreyttur taugaþroski er yfirskriftin á árlegri vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar sem haldin verður á fimmtudag og föstudag á Hótel Nordica. Umfjöllunarefnið er kynheilbrigði frá bensku til fullorðinsára og hvernig hægt er að mæta betur fjölbreyttum taugaþroska barna og skoðuð verður staðan og þjónustan í þessum málaflokki og fleira. María Jónsdóttir, félagsráðgjafi á Ráðgjafar- og greiningarstöð, kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um það sem þarna fer fram.
Hin árlegi Alþjóða hláturdagur verður haldinn 5. maí næstkomandi við þvottalaugarnar í Laugardal með það að markmiði að vekja athygli á hlátri, gæðum hláturs og finna hina barnslegu leikgleði sem svo mörg okkar eiga til að gleyma í alvarleika lífsins. Við ræddum við Finnboga Þorkel Jónsson, hláturjógaleiðbeinanda og eiganda Gleðismiðjunnar, í þættinum. Finnbogi fræddi okkur um sögu hláturjóga og ávinningin og kenndi okkur í beinni útsendingu hlátursláttuvélina, sem er æfing til að koma af stað hlátri.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo til okkar í veðurspjallið. Hlýnun jarðar veldur því að tilvikum ókyrrðar fer fjölgandi. Umfjöllun var um málið í BBC um helgina og Einar fræddi okkur um ókyrðina sem hefur aukist með hlýnun loftslagsins.Svo voru það sólskinsmælingar í Reykjavík og fjöldi sólarstunda. Apríl er að ljúka og mars var sérlega sólríkur suðvestanlands. Er aprílsólarmetið í Reykjavík að falla? Svo fór Einar að lokum aðeins yfir veðurspána framundan.
Tónlist í þættinum í dag:
S.O.S. Ást í neyð / Hljómsveit Magnúsar Ingimarsson (Moroder & Holm, texti Ómar Ragnarsson)
Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson)
Build Me Up Buttercup / The Foundations (Mike D'Abo & Tony Macaulay)
Fjórir kátir þrestir / Sigrún Jónsdóttir (erlent lag, texti Jón Sigurðsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Við ætlum í fjallgöngu. Fjallgöngu sem mögulega breytir öllu. Fimm vinkonur, fimm fræknar, fóru yfir Fimmvörðuháls seinasta sumar. Upptakan hefur setið ónsert í tölvunni síðan í júlí í fyrra. En nú er kominn tími til að skoða hvað gerðist þegar Fimmvörðuháls varð að Everest.
Hljómsveitin ex.girls er í hópi áhugaverðustu rafsveita Reykjavíkursenunnar, og eftir margra ára vinnu leit fyrsta plata þeirra í fullri lengd dagsins ljós á seinni hluta síðasta árs. Platan heitir Verk og á henni leitast sveitin við að varpa ljósi á þetta mannlega og þetta hversdagslega, þetta grámyglulega, reglubundna, fallega og þetta íslenska. Guðlaugur og Tatjana litu við í hljóðveri í dag til að klára verkið.
Lagalisti:
Feel - Robbie Williams
Tuscan Leather - Drake
Jammin'- Bob Marley
Buffalo Soldier - Bob Marley
Fjallganga - Egill Ólafsson
ex.girls - Æð
ex.girls - 90 Oktan
ex.girls - Hundrað í hættunni
ex.girls - Vont er það venst
ex.girls - Innri ytri
ex.girls - Drepa mann
ex.girls - Manneskja
ex.girls - Halda áfram
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Við ræddum kvenheilsu og hvaða tækifæri liggja í sumrinu sem er framundan tengt heilsunni. Hvað er mikilvægt fyrir konur að huga að þegar breytingaskeiðið nálgast eða færist yfir? Sonja Bergmann hjúkrunar-og fjölskyldufræðingur ræddi við okkur í upphafi þáttar.
Við héldum áfram að velta fyrir okkur því sem stjórnmálafræðingar segja geti stefnt í einhvern mest spennandi forsetaslag sem sést hefur hér á landi. Spennan minnkaði síst þegar skoðanakannanir tóku nokkuð óvænta stefnu í síðustu viku. Baldur Héðinsson, stærðfræðingur og sérfræðingur í skoðanakönnunum kíkti til okkar í þetta skiptið.
Fyrsta æfing Heru Bjarkar á sviðinu í Malmö í Svíþjóð fór fram á sunnudagsmorguninn. Við heyrðum í Rúnari Frey Gíslasyni, farastjóra íslenska hópsins.
Snerting, nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, sem var mest selda bókin á Íslandi árið 2020 og hlaut mikið lof gagnrýnenda. Hún verður heimsfrumsýnd á Íslandi þann 29.maí n.k. Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður, settist niður með Baltasar Kormáki í vikunni.
Hægt hefur á landrisi við Svartsengi og kvikumagn þar undir orðið á við það sem hefur sést rétt fyrir fyrri gos. Fyrir u.þ.b. 40 klukkustundum síðan sagði Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur líklegt að drægi til tíðinda innan 48 klst. Megum við eiga von á mikilli aukningu goss eða jafnvel nýju eldgosi í dag eða nótt? Þorvaldur kíkti í spjall.
Sævar Helgi Bragason var svo hjá okkur í lok þáttar.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Við fengum góða gesti í Hjartagosa dagsins, söngsveitin Tónafljóð mætti og sungu sína útgáfu af "Viltu með mér vaka" og Jane Telephonda reyndið við þekktan David Bowie slagara, allt saman í beinni útsendingu.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-30
EMILÍANA TORRINI - Easy.
SUPERTRAMP - The Logical Song.
Lipa, Dua - Illusion.
THE EMOTIONS - Best Of My Love.
Djo - End of Beginning.
Spandau Ballet - Chant No. 1 (I Don't Need This Pressure On).
Teddy Swims - Lose Control.
THE COMMITMENTS - Try A Little Tenderness.
TODMOBILE - Eilíf ró.
PETULA CLARKE - Downtown.
HANNES FT. WATERBABY - Stockholmsvy.
Boone, Benson - Beautiful Things.
UNNSTEINN - Er þetta ást? (Tónatal - 2021).
Kiriyama Family - Disaster.
U2 - Hold Me, Thrill Me, Kiss Me, Kill Me.
BRITNEY SPEARS - Toxic.
LAUFEY - California and Me.
KÁRI - Something Better.
Foo Fighters - My hero.
Beatles, The - Glass onion.
Celebs - Spyrja eftir þér.
PATRi!K & LUIGI - Skína.
BECK - Loser.
SILK SONIC - Leave The Door Open.
Artemas - I like the way you kiss me.
JAMIROQUAI - Seven days in sunny june.
Jane Telephonda - Come With Me.
Prins Póló, Moses Hightower - Eyja.
Velvet Underground - Sunday morning.
RED HOT CHILI PEPPERS - Road Trippin'.
Una Torfadóttir - Er það ekki?.
Rodrigo, Olivia - Obsessed.
MacColl, Kirsty - In these shoes?.
REBEKKA BLÖNDAL - Sólarsamban.
Kali, Leven, Bandt, Erik, ANOTR - How You Feel.
GENESIS - Mama.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Heilbrigðisráðherra segir fjármagn til að komast hjá sumarlokunum meðferðarstarfs SÁÁ ekki skorta, en það þurfi að tryggja í samningum við Sjúkratryggingar.
Þrettán ára drengur lést þegar maður réðst á hann með sverði í úthverfi Lundúna í morgun. Fimm særðust í árásinni, þar af tveir lögreglumenn.
Liðsmenn íranska byltingarvarðarins myrtu sextán ára stúlku og beittu hana kynferðislegu ofbeldi, samkvæmt leyniskjölum sem hefur verið lekið til fjölmiðla. Írönsk stjórnvöld sögðu hana hafa framið sjálfsvíg.
Brotist var inn á Facebook- aðgang víetnamska kaupsýslumannsins Quangs Lés sem situr í gæsluvarðhaldi. Birt hafa verið samskipti hans við samstarfsmenn sína og spjótunum meðal annars beint að ríkisstjórnarflokkunum, heilbrigðiseftirlitinu og World Class.
Fjöldi barna sem útskrifast úr tíunda bekk í vor verður í fyrsta sinn meiri en fimm þúsund. Þar af hafa um fimmtán þeirra annað tungumál en íslensku að móðurmáli. Formaður skólameistarafélagsins segir framhaldsskóla illa undir það búna að taka á móti þessum fjölda.
Fleiri ferðamenn komu til landsins fyrstu þrjá mánuði ársins en á sama tíma fyrra. Bókanir næstu mánuði benda þó til þess að þeim fækki.
Lögreglan á Norðurlandi vestra segir rannsókn á vanrækslu nautgripa á bæ í Skagabyggð á frumstigi. Matvælastofnun hafði áður fengið tilkynningu um bæinn og sinnt þar eftirliti.
Fastlega er gert ráð fyrir að stýrivextir haldist óbreyttir fram á haust.
Sjö Sveitarfélög á Austurlandi og Vestfjörðum fá næstum 440 milljónir króna úr fiskeldissjóði í ár til að byggja upp inniviði. Fjarðabyggð fær mest en árið 2022 fékk hún ekkert og telur enn að leggja eigi sjóðinn niður.
Karlalið Vals er komið í úrslitaeinvígið um Evrópubikarinn í handbolta. Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari liðsins, segir spennufallið mikið.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Siggi Gunnars og Lovísa Rut voru í góðu stuði í Popplandi dagsins, lítill föstudagur þennan þriðjudaginn. Plata vikunnar á sínum stað, Undir yfirborðinu með Árna Matt, platan Aftermath tekin fyrir og sitthvað fleira.
Una Torfadóttir - En.
Musgraves, Kacey - Cardinal.
MAMAS & THE PAPAS - California Dreamin'.
HARRY STYLES - Watermelon Sugar.
MÅNESKIN - Beggin'.
Lorde - Take Me to the River.
Cyrus, Miley, Beyoncé - II MOST WANTED.
Bubbi Morthens - Dansaðu.
WILD CHERRY - Play That Funky Music.
Una Torfadóttir - Þannig er það.
COLDPLAY - In My Place.
Q-Tip, Mark Ronson and The Business Intl, MNDR - Bang bang bang.
GDRN - Ævilangt.
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
Drugdealer, Bollinger, Kate - Pictures of You.
HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist.
FLEETWOOD MAC - Rhiannon.
Dina Ögon - Bakom glaset.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Sjalið.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
GRAFÍK - Húsið Og Ég.
THE XX - On Hold.
English Teacher - R&B.
Black Pumas - Mrs. Postman.
Kaleo - Lonely Cowboy.
Hera Björk Þórhallsdóttir - Scared Of Heights.
Hozier - Too Sweet.
PÁLL ÓSKAR - Líttu upp í ljós.
Torfi - Mánaðarmót.
ROLLING STONE - Under my Thumb.
ROLLING STONE - Paint it Black.
ROLLING STONE - Lady Jane.
KRISTÍN SESSELJA - Exit plan.
UNA TORFA - Engin spurning.
LANA DEL REY - A&W.
JAIN - Makeba.
PALE MOON - I Confess.
EMMSJÉ GAUTI - Taka mig í gegn.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Afar umdeilt frumvarp bresku ríkisstjórnarinnar um að senda hælisleitendur til Rúanda var samþykkt á þinginu í vikunni og býst Rishi Sunak forsætisráðherra við að fyrstu hælisleitendurnir verði fluttir til Rúanda á næstu vikum. Oddur Þórðarson fréttamaður er vel að sér í breskum stjórnmálum og sagði okkur inn í þetta umdeilda frumvarp.
Þáttaröðin Baby Reindeer á Netflix hefur slegið í gegn um allan heim. Hún fjallar um uppistandara sem lendir í eltihrelli. Þáttaröðin er byggð á sönnum atburðum og nú íhugar hinn upprunalegi eltihrellir að leita réttar síns en hún segist hafa lent í miklu aðkasti eftir að þættirnir voru birtir. María Rún Bjarnadóttir, verkefnastjóri stafræns ofbeldis hjá ríkislögreglustjóra, ræddi hinar mörgu hliðar þessa máls.
Dagur verkalýðsins er á morgun, 1.maí. Það þýða kröfugöngur um allt land. Yfirskrift á þessum baráttudegi launafólks í ár er Sterk hreyfing – sterkt samfélag. Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og meðlimur fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík kemur til okkar og segir okkur frá helstu áherslum baráttudagsins í ár.
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar vakti athygli í Facebook-færslu í á því að Meðferðarstöð SÁÁ í Vík myndi loka í sumar vegna fjárskorts og að göngudeildin verði lokuð í sex vikur. Sigmar segir lokunina skeytingaleysi gagnvart fólki með fíknisjúkdóm því um sé að ræða banvænan sjúkdóm sem ekki í sumarfrí. Um þetta hefur verið rætt á þing i í dag og við heyrum í Sigmari um stöðu mála.
Leikfélag Sauðárkróks, sem er eitt elsta áhugamannaleikfélag á landinu setur nú upp verkið Litla hryllingsbúðin í leikstjórn Valgeirs Skagfjörð. Leikfélagið, var stofnað þann 13. apríl 1888, hefur yfir árin haldið nokkuð góðum velli, frumflutt sýningar af öllu tagi og helst tvær árlega. Samkvæmt hefð, í kringum Sæluviku Skagfirðinga að vori og svo aðra, helst barnasýningu að haustlagi. Við spyrjum Valgeir Skagfjörð um uppsetningu leikfélagsins og stemninguna í Skagafirði.
Kvöldfréttir útvarps
Orkumálaráðherra segir það vonbrigði að fólk nýti sér allar mögulegar glufur í lagaumhverfinu til að tefja fyrir framkvæmdum við Hvammsvirkjun. Horfa þurfi til hagsmuna þjóðarinnar, sem þurfi á grænni orku að halda.
Vísbendingar eru um að fljótlega gæti dregið til tíðinda á gosstöðvunum við Sundhnúksgíga. Aukin hætta er talin á hraunflæði í Grindavík.
Formaður fjárlaganefndar segir gögn sem nefndin fer yfir varpa skýrara ljósi á samskiptin í aðdraganda kaupa Landsbankans á TM.
Skipuð verður sérstök rannsóknarnefnd til að fara yfir ákvarðanir stjórnvalda og almannavarna í aðdraganda snjóflóðsins sem féll í Súðavík árið 1995. Tillaga þessa efnis var samþykkt á Alþingi í dag með öllum greiddum atkvæðum.
Innflutt matvæli og blóm eiga eftir að hækka nokkuð í verði í breskum verslunum vegna eftirlits við landamærin. Eftirlitið átti að hefjast fyrir tæpum þremur árum en því hefur ítrekað verið frestað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson.
Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins.
Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en samt í Gufunesi.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Þriðjudagur og frí hjá mörgum á morgun og við fögnum því með nýrri tónlist á Kvöllunni meðal annars frá Sabrinu Carpenter, Dua Lipa, Fontaines DC, Travis, Lorde, Artemas, Jamie xx ft Honey Dijon, Caribou, Daniel Avery og fleirum og fleirum.
Lagalistinn
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.