Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í spjalli um efnahag og samfélag fór Þórður Snær Júlíusson m.a. yfir umsagnir sem borist hafa um fjármálaáætlun. Sveitarfélögin gagnrýna ónóg framlög, verkalýðshreyfingin ónóga skattheimtu og avinnurekendur ónógan sparnað.
75 ár eru síðan stjórnarskrá Þýskalands gekk í gildi. Af því tilefni spjallaði Arthur Björgvin Bollason um stjórnarskrána, hann sagði frá aðdraganda hennar og inntaki og gagni fyrir þýsku þjóðina.
Ógnir og öryggi er efni ráðstefnu félagsvísindasviði háskólanna sem haldin er í Borgarnesi í vikulok. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti félagsvísindasviðs Háskólans á Bifröst, spjallaði um ógnir og öryggi í breiðu samhengi.
Milli gærdagsins og á morgun - Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson,
Þegar fuglarnir eru sofnaðir - Jóhanna Þórhallsdóttir og Saltfisksveit Villa Valla,
Railroad man - Eeels,
Zusammen - Die fantastischen vier,
Portrait de Maure - Alune Wade.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við byrjuðum þáttinn í dag á Helgu Arnardóttur og Heilsuvaktinni. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að náttúran hefur góð áhrif á okkur og gott betur því kórtisólið í líkamanum lækkar, blóðþrýstingur lækkar og hjartsláttur líka við það eitt að vera úti í náttúrunni. Kristín Sigurðardóttir, bráða- og slysalæknir sem einblínt hefur á streitu og áhrif hennar síðustu ár, segir okkur þjást af náttúruleysi. Hún á að sjálfsögðu ekki við getuleysi heldur er þetta þýðing hennar á fyrirbæri sem kallast á ensku nature deficit disorder. Með því að verja dágóðum tíma í náttúrunni getum við dregið verulega úr neikvæðum áhrifum streitu í okkar daglega lífi. Helga Arnardóttir ræddi við Kristínu á Heilsuvaktinni í dag.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í vinkli dagsins er komið víða við. Fyrst fjallar Guðjón aðeins um eggjaát, en aðal atriðið er frétt sem Guðjón las í gær um að verið sé að nota nettröll til að ata frambjóðendur auri sem hleypti Guðjóni af stað í að búa til sögu þar sem umboðsmenn nettrölla og frambjóðanda hittast til að hafa samráð um aurkast sem leiðir inn í frásögn úr Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar og endar svo á kurteisisbrýningu. Þetta kom betur í ljós í vinkli dagsins.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Dóra Björg Árnadóttir sérfræðingur hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafi haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Dóra Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Piranesi e. Susanna Clarke
Hamnet e. Maggie O'Farrell
Gamache serían e. Louise Penny
The Thursday Murder Club e. Richard Osman
DaVinci Code e. Dan Brown
The Murder of Roger Ackroyd e. Agatha Christie
Dóra nefndi einnig Guðrúnu Helgadóttur, Astrid Lindgren, Harry Potter bækurnar og Twilight bókaröðina.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þrýstingsbreyting mældist í borholu HS Orku í Svartsengi í morgun. Starfsmenn orkuversins voru beðnir um að yfirgefa Svartsengi og snúa sér að öðrum verkefnum. Mælar Veðurstofunnar sýna engin merki um breytingar.
Ísraelskir heilbrigðisstarfsmenn segja að sjúklingar, sem grunaðir eru um aðild að Hamas-samtökunum, séu hlekkjaðir við sjúkrarúm og skornir upp án verkjalyfja. Mannréttindi þeirra séu fótum troðin til að ná fram hefndum fyrir árásirnar 7. október.
Rannsókn fjármálaeftirlits Seðlabankans á mögulegum lögbrotum í útboði á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokastigi. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir mikilvægt að þeir sem fóru svig við lög og reglur fái ekki að taka þátt í næstu sölu.
Þúsundir Írana söfnuðust saman í borgum landsins í morgun til að votta Ebrahim Raisi, fyrrverandi forseta landsins, virðingu sína, en hann fórst í þyrluslysi á sunnudag. Samkvæmt stjórnarskrá verður að kjósa nýjan forseta innan fimmtíu daga.
Stjórnarmyndunarviðræður í Hollandi eru í uppnámi eftir að líklegasti kandidatinn í stól forsætisráðherra dró sig í hlé vegna ásakana um spillingu.
Brák íbúðafélagi og verktakafyrirtækinu Hrafnshóli ber ekki saman um hvað hefur valdið miklum töfum á byggingu fjölbýlishúsa í Fellabæ og á Seyðisfirði. Hrafnhóll segir íbúðafélagið vanfjármagnað. Brák hafnar því og vill rifta samningum.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Sundabraut er löngu þekkt orð í almennri umræðu hér á landi. Svo margumrædd að við tökum stundum ekki eftir því þegar hún er enn einu sinni komin á dagskrá, eftir nokkurra áratuga flæking í ýmsum kerfum.
Samfélagslegur ávinningur, arðsöm framkvæmd, minni heildarakstur, minni mengun, tímasparnaður, styttri vegalengdir og færri slys. Allt þetta hefur verið nefnt sem kostir brautar um Sundin.
Sundabraut hefur auðvitað verið umdeild, enda risavaxin framkvæmd. Deilt hefur verið um leiðir og útfærslur. Og þrátt fyrir áratugalöng samtöl er enn verið að velta upp möguleikum á Sundabrú, Sundagöngum, Sundabraut. En nú virðist þó vera samstaða um að halda áfram.
Í þættinum ræðir Eyrún Magnúsdóttir við Helgu Jónu Jónasdóttur verkefnisstjóra Sundabrautar hjá Vegagerðinni sem segir að allir þurfi að leggjast á eitt í undirbúningi ef markmið um að hefja framkvæmdir árið 2026 eigi að nást.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við fjöllum um fjarskiptamál - gagnamagn, stöðu heimasímans, 5G-væðingu og fleira. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, kemur til okkar og við ræðum nýjustu tölfræðina, gömul kerfi sem víkja fyrir nýjum, áhættu og hvernig fjarskiptum landans er háttað í dag.
Svo tölum við um malbik. Fyrir ári síðan heimsóttum við Malbikstöðina á Esjumelum en þar á bæ segjast menn stefna að því að framleiða umhverfisvænasta malbik í heimi. Við ætlum að rifja upp viðtal okkar við Vilhjálm Þór Matthíasson framkvæmdastjóra og eiganda stöðvarinnar.
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall í lok þáttar.
Tónlist:
MAGNÚS OG JÓHANN - Sumir dagar.
Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Pan Thorarensen er með afbrigðum afkastamikill sem tónsmiður og útgefandi; á síðustu árum hefur hann komið að nærfellt hundrað útgáfum, ýmist sem tónlistarmaður eða sem útgefandi. Hann byrjaði í hiphpopi en sneri sér svo að raftónlist, stofnaði Stereo Hypnosis með föður sínum, sem hefur verið hans aðal upp frá því, er líka í tilraunakennri tékkneskri hjómsveit sem kortleggur framtíðina og tekur þátt í allskyns samstarfi öðru.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Loksins eru þeir Hillary og Tenzing komnir í grennd við efsta tind jarðar. En þá segja óvæntir erfiðleikar til sín. Verða þeir að snúa til baka eða komast þeir loksins á tind Everest? Já - það vita nú reyndar allir að þeir náðu vissulega markmiði sínu? En er hægt að segja til hvor þeirra var á undan? Og skiptir það máli?
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Við fáum sendingu frá Feneyjum í þættinum. Starfsnemar í listfræði, myndlist og sýningastjórnun við Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands munu á næstu vikum flytja stutt erindi um sýningar Feneyjartvíæringsins. Í pistli dagsins tekur Auður Mist, oftast kölluð Auja Mist, myndlistakona frá Reykjavík, til máls og segir meðal annars frá því hvernig jaðarsettir hópar í myndlist hafa nýtt dulspeki sem sameiningartákn
Þorleifur Sigurðsson verður einnig með í þættinum en hann hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif. Að þessu sinni mun hann segja frá Cancion Ranchera sem er mexíkósk þjóðlagahefð og er eitt helsta menningareinkenni Mexíkó.
IceCon-furðusagnahátíðin hefur göngu sína í fjórða sinn núna um helgina. Hugtakið furðusögur nær yfir fantasíur, vísindaskáldskap og hrollvekjur og allt þar á milli. Heiðursgestir í ár eru rithöfundarnir Emil Hjörvar Petersen, sem er einn stofnenda hátíðarinnar, Hugo-verðlaunahafinn John Scalzi og Lambda-verðlaunahafinn Kirsty Logan. Hátíðin hefst nú um helgina og verða hinir ýmsu viðburðir á dagskrá í Veröld Húsi Vigdísar. Anna María Björnsdóttir ræðir við þá Emil Hjörvar Petersen og Júlíus Árna Kaaber, einn skipuleggjenda hátíðarinnar í ár í þættinum.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Joe Bini og Maya Daisy Hawke eru bæði par og samstarfsfélagar, og hafa síðan á tíunda áratugnum fengist við að klippa kvikmyndir. Þau voru heiðursgestir á Skjaldborg í ár og í þætti dagsins kynnumst við þeim betur - ræðum við þau um Grizzly Man og Navalny, myndir sem þau klipptu, og listgreinina sem klippið raunverulega er.
Vi[ rifjum upp vefrit um menningu sem var upp á sitt besta fyrir um áratug og hristi rækilega upp í íslenskri menningarumræðu. Lóa Björk ræðir við Eirík Örn Norðdahl um Starafugl.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá söngtónleikum á Hindsgavl kammertónlistarhátíðinni á Fjóni, 18. júlí sl.
Á efnisskrá eru sönglög eftir Johannes Brahms; Ástarljóðavalsar op. 52 og söngkvartettar op. 65.
Flytjendur: Christiane Karg sópran, Patricia Nolz messósópran, Benjamin Bruns tenór, Michael Nagy barítón og píanóleikarinn Paolo Bressan.
Umsjón: Sigrún Harðardóttir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við fjöllum um fjarskiptamál - gagnamagn, stöðu heimasímans, 5G-væðingu og fleira. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, kemur til okkar og við ræðum nýjustu tölfræðina, gömul kerfi sem víkja fyrir nýjum, áhættu og hvernig fjarskiptum landans er háttað í dag.
Svo tölum við um malbik. Fyrir ári síðan heimsóttum við Malbikstöðina á Esjumelum en þar á bæ segjast menn stefna að því að framleiða umhverfisvænasta malbik í heimi. Við ætlum að rifja upp viðtal okkar við Vilhjálm Þór Matthíasson framkvæmdastjóra og eiganda stöðvarinnar.
Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall í lok þáttar.
Tónlist:
MAGNÚS OG JÓHANN - Sumir dagar.
Guðmundur Pétursson Tónlistarm. - Samfélagið Millistef (úr laginu Tegund).
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við byrjuðum þáttinn í dag á Helgu Arnardóttur og Heilsuvaktinni. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að náttúran hefur góð áhrif á okkur og gott betur því kórtisólið í líkamanum lækkar, blóðþrýstingur lækkar og hjartsláttur líka við það eitt að vera úti í náttúrunni. Kristín Sigurðardóttir, bráða- og slysalæknir sem einblínt hefur á streitu og áhrif hennar síðustu ár, segir okkur þjást af náttúruleysi. Hún á að sjálfsögðu ekki við getuleysi heldur er þetta þýðing hennar á fyrirbæri sem kallast á ensku nature deficit disorder. Með því að verja dágóðum tíma í náttúrunni getum við dregið verulega úr neikvæðum áhrifum streitu í okkar daglega lífi. Helga Arnardóttir ræddi við Kristínu á Heilsuvaktinni í dag.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í vinkli dagsins er komið víða við. Fyrst fjallar Guðjón aðeins um eggjaát, en aðal atriðið er frétt sem Guðjón las í gær um að verið sé að nota nettröll til að ata frambjóðendur auri sem hleypti Guðjóni af stað í að búa til sögu þar sem umboðsmenn nettrölla og frambjóðanda hittast til að hafa samráð um aurkast sem leiðir inn í frásögn úr Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar og endar svo á kurteisisbrýningu. Þetta kom betur í ljós í vinkli dagsins.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Dóra Björg Árnadóttir sérfræðingur hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafi haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Dóra Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Piranesi e. Susanna Clarke
Hamnet e. Maggie O'Farrell
Gamache serían e. Louise Penny
The Thursday Murder Club e. Richard Osman
DaVinci Code e. Dan Brown
The Murder of Roger Ackroyd e. Agatha Christie
Dóra nefndi einnig Guðrúnu Helgadóttur, Astrid Lindgren, Harry Potter bækurnar og Twilight bókaröðina.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Joe Bini og Maya Daisy Hawke eru bæði par og samstarfsfélagar, og hafa síðan á tíunda áratugnum fengist við að klippa kvikmyndir. Þau voru heiðursgestir á Skjaldborg í ár og í þætti dagsins kynnumst við þeim betur - ræðum við þau um Grizzly Man og Navalny, myndir sem þau klipptu, og listgreinina sem klippið raunverulega er.
Vi[ rifjum upp vefrit um menningu sem var upp á sitt besta fyrir um áratug og hristi rækilega upp í íslenskri menningarumræðu. Lóa Björk ræðir við Eirík Örn Norðdahl um Starafugl.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Í umræðunni um hver sé best til þess fallinn að gegna embætti forseta Íslands virðast ekki öll á eitt um hlutverk og valdsvið forseta nú eða venjur og hefðir. Sagnfræðingafélag Íslands heldur opinn fund í kvöld til að skoða þau mál í kjölinn. Markús Þ. Þórhallsson, fréttamaður og sagnfræðingur kom í fyrsta bolla dagsins.
Um helgina lést Ebrahim Raisi, forseti Íran í þyrluslysi ásamt utanríkisráðherra Írans og föruneyti þeirra. Mohammad Mokhber varaforseti hefur tekið við embætti forseta til bráðabirgða en halda verður forsetakosningar innan fimmtíu daga, samkvæmt stjórnarskrá landsins. Kjartan Orri Þórsson ræddi stöðuna og framhaldið við okkur.
Þessa dagana eru 80 ár liðin síðan þjóðin kaus um það hvort við skildum slíta okkur frá Dönum og verða sjálfstæð þjóð. Kosningin stóð yfir í fjóra daga og óeðlilega góð þátttaka náðist eða rúmlega 98% og sjálfstæðissóknin samþykkt með 97% atkvæða. Við rifjuðum upp söguna með Guðmundi Hálfdánarsyni sagnfræði prófessor.
Nú eru vorverkin í garðinum á fullu enda sumarið á næsta leiti og býður Grasagarður Reykjavíkur uppá fræðslu á morgun þar sem hægt er að spyrja sérfræðinga um ræktun mat- og garðplantna, smádýrin í garðinum og jarðvegsgerð. Til að fræða hlustendur aðeins um það helsta komu til okkar garðyrkjufræðingarnir Svanhildur Björk Sigfúsdóttir og Svavar Skúli Jónsson.
Fyrr í þessum mánuði varð Sóley Margrét Jónsdóttir Evrópumeistari í kraftlyftingum með búnaði og varði þar með titilinn frá því í fyrra. Sóley, sem er aðeins 23 ára gömul, lyfti samtals 677,5 kg og bætti eigið Íslandsmet um 2,5 kg. Við ætlum að kynnast þessari afrekskonu aðeins betur þegar hún kom í morgunkaffi til okkar.
Og Guðmundur Jóhannsson tæknisérfræðingur Morgunútvarpins lokaði þættinum með okkur.
Lagalistinn:
Raven & Rún - Handan við hafið
Kiriyama Family - Disaster
Bubbi Morthens - Syneta
GDRN - Háspenna
Paul McCartney & Wings - Silly Love Songs
The Cranberries - Dreams
Krummi og Soffía Björg - Bona fide
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það var heldur betur létt yfir Hjartagosum í dag, fullt af skemmtilegum sögum og fróðleikurinn lak úr viðtækjum landsmanna
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-21
KK - 1, 2, 3, Fjór.
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Himinn Og Jörð.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
Carpenter, Sabrina - Espresso.
THE BEATLES - All You Need Is Love.
TRÚBROT - Ég Veit Að Þú Kemur.
Magnús Þór Sigmundsson - Sleðaferð.
PRIMAL SCREAM - Movin' on up.
Sigrún Stella - Kveðja.
M.I.A. - Paper Planes.
SUGARHILL GANG - Rapper?s Delight.
ANIMALS - The House of the Rising Sun.
GDRN - Háspenna.
TAME IMPALA - The Less I Know The Better.
THE BELOVED - Sweet Harmony.
KUSK - Sommar.
THE CURE - Close To Me (orginal).
Kristín Sesselja - Exit Plan.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
Ngonda, Jalen - Illusions.
Karl Orgeltríó - Bréfbátar.
Green, Al - Let's stay together.
Green, Al - Let's stay together.
Dr. Gunni, Salóme Katrín - Í bríaríi.
Mínus Hljómsveit - Angel in disguise.
KRISTIN HERSH - Your Ghost (ft Michael Stipe).
Kravitz, Lenny - Human.
MORRISSEY - Everyday Is Like Sunday.
Hráefni - Blik.
Dina Ögon - Det läcker.
BAGGALÚTUR - Allt Fyrir Mig.
Beabadoobee - Take A Bite [Vocal Up Mix].
CARPENTERS - (They long to be) close to you.
TRAVIS - Sing.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þrýstingsbreyting mældist í borholu HS Orku í Svartsengi í morgun. Starfsmenn orkuversins voru beðnir um að yfirgefa Svartsengi og snúa sér að öðrum verkefnum. Mælar Veðurstofunnar sýna engin merki um breytingar.
Ísraelskir heilbrigðisstarfsmenn segja að sjúklingar, sem grunaðir eru um aðild að Hamas-samtökunum, séu hlekkjaðir við sjúkrarúm og skornir upp án verkjalyfja. Mannréttindi þeirra séu fótum troðin til að ná fram hefndum fyrir árásirnar 7. október.
Rannsókn fjármálaeftirlits Seðlabankans á mögulegum lögbrotum í útboði á hlut ríkisins í Íslandsbanka er á lokastigi. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir mikilvægt að þeir sem fóru svig við lög og reglur fái ekki að taka þátt í næstu sölu.
Þúsundir Írana söfnuðust saman í borgum landsins í morgun til að votta Ebrahim Raisi, fyrrverandi forseta landsins, virðingu sína, en hann fórst í þyrluslysi á sunnudag. Samkvæmt stjórnarskrá verður að kjósa nýjan forseta innan fimmtíu daga.
Stjórnarmyndunarviðræður í Hollandi eru í uppnámi eftir að líklegasti kandidatinn í stól forsætisráðherra dró sig í hlé vegna ásakana um spillingu.
Brák íbúðafélagi og verktakafyrirtækinu Hrafnshóli ber ekki saman um hvað hefur valdið miklum töfum á byggingu fjölbýlishúsa í Fellabæ og á Seyðisfirði. Hrafnhóll segir íbúðafélagið vanfjármagnað. Brák hafnar því og vill rifta samningum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Kvikmyndin Baltasars Kormáks Snerting var frumsýnd í gær en myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Óhætt er að segja að myndin hafi vakið hrifningu bíógesta en bæði er sagan einstaklega hjartnæm auk þess sem myndin skartar frábærum leikurum. Sú sem sá um leikaravalið fyrir myndina er Selma Björnsdóttir ásamt Yôko Narahashi og við ætlum að fá Selmu til okkar á eftir og spyrja hana út í hvernig sú vinna hafi farið fram.
Við höldum áfram að kynnast forsetaframbjóðendunum og til okkar í dag kemur Katrín Jakobsdóttir. Við tökum á móti Katrínu strax að loknum fimm fréttum hér í Síðdegisútvarpinu.
Gunnlaugur Már Briem formaður félags sjúkraþjálfara segir að það hafi aukist að undanförnu að efnaminna fólk mæti ekki í sjúkraþjálfun vegna of mikils kostnaðar. Nýr samningur félagsins við Sjúkratryggingar Íslands komi til með að breyta miklu. Gunnlaugur verður á línunni hjá okkur.
Í nýlegri útekt HMS Húsnæðis og mannvirkja stofnunar kemur fram að aldamótakynslóðin átti erfiðara með að komast inn á húsnæðismarkaðinn en kynslóðirnar á undan. Hlutdeild ungra kaupenda á fasteignamarkaði helmingaðist á tímabilinu 2008-2013 og hefur hún enn ekki náð sömu hæðum og fyrir hrun. Hingað til okkar er kominn Jónas Atli Gunnarsson hagfræðingur hjá HMS til að fara betur yfir þessi mál með okkur.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Valur Gunnarsson kemur í heimsókn og við veltum fyrir okkur pælingunni: Hvað ef Bítlarnir hefðu aldrei verið til? Valur skrifaði um það í bók sem kom út í fyrra.
Rúnar Þórisson var að senda frá sér plötuna Upp Hátt og hann kemur í heimsókn og við heyrum nokkur lög af plötunni.