Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við Sjöfn Jónsdóttur um árin á Akranesi og Ingibjörgu Sigurðardóttur um ár hennar og séra Eggerts Ólafssonar á Kvennabrekku í Dölum.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Þátturinn fjallar um sýrenutré, sem einnig heita dísarunnar, í skáldskap og tónlist. Sýrenur eru af smjörviðarætt og bera oftast bleika eða ljósfjólubláa blómaklasa. Á Íslandi blómgast sýrenutré yfirleitt í júní eða júlí, en erlendis blómstra þau á vorin. Í þættinum verður meðal annars leikin tónlist eftir Johann Strauss, Sergei Rakhmaninov, Ernest Chausson og Richard Wagner. Lesnir verða textar eftir Oscar Wilde, Walt Whitman og Jóhann Sigurjónsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Í þættinum er rætt við Guðnýju Sverrisdóttur, sveitarstjóra Grýtubakkahrepps. Hreppurinn á fjögur til fimm hundruð þorskígildistonn af kvóta og þar var snemma tekin sú ákvörðun að sveitarfélagið skyldi kaupa kvótann til að halda honum í byggðarlaginu. Þetta hefur hjálpað til við að halda byggðinni við. Björn Ingólfsson segir frá útgerðarsögu Grenivíkur sem hann hefur tekið saman í bók og Margrét Jóhannsdóttir segir frá sjóbúð föður síns sem stendur nú sem safn á malarkambinum neðst í Grenivíkurþorpi. Þar var ekki bara beitt og veiðarfærin gerð klár heldur voru líka haldin þar eftirminnileg böll. Umsjón: Pétur Halldórsson.
Veðurstofa Íslands.
Fyrir 20 árum lét Atli Fannar Bjarkason sig dreyma um að starfa á fjölmiðlum. Hann flutti til Reykjavíkur með báðar hendur tómar og fékk tækifæri til að skrifa í dagblöð, ritstýra tímaritinu Monitor og koma fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann flutti líka fréttainnslög í Vikunni með Gísla Marteini og stofnaði sinn eigin fjölmiðil, Nútímann sem hann tengist ekkert í dag.
Draumurinn rættist sem sagt en þegar hann horfir til baka sér hann að á þessum tíma hafi hann oft verið með bölvuð leiðindi við fólk sem átti það ekkert endilega skilið. Í þessum þáttum hittir hann þetta fólk og leggur spilin á borðið.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason.
Guðsþjónusta.
Séra Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari.
Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, dósent við guðfræði- og trúarbragðafræðideild, predikar.
Organisti og stjórnandii: Friðrik Vignir Stefánsson, kantor.
Kór Seltjarnarneskirkju syngur.
Sigurður Júlíus Grétarsson og Pálína Magnúsdóttir lesa ritningarlestra.
Svana Helen Björnsdóttir les almenna kirkjubæn.
Forspil: Morning has broken. Gelískt þjóðlag. Lani Smith útsetti.
Fyrir predikun:
Fyrir prédikun
Sálmur 390: Líður að dögun. Lag: Farjeon. Texti: SigríðurGuðmarsdóttir.
Sálmur 162: Biðjið-og þá öðlist þér.Lag: Brun. Texti: Valdimar Briem.
Sálmur 581: Með Jesú byrja ég. Lag: Zieglar. Texti: Valdimar Briem.
Eftir predikun
Sálmur 159: Fræ í frosti sefur. Lag: Frostenson. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Sálmur 763: Ó, Guð, ég veit hvað ég vil. Lag: Melin. Texti: Kristján Valur Ingólfson.
Eftirspil: Interlude eftir Gregory Murray.
Útvarpsfréttir.
Ávana- og fíknilyfjum var rænt úr tveimur apótekum í gær. Formaður lyfjafræðingafélagsins segir vopnuð rán í apótekum algengari en fólk geri sér grein fyrir og hefur áhyggjur af öryggi lyfjafræðinga.
Bandarískir embættismenn vara utanríkisráðherra sinn við því að Ísraelar gætu verið að nota bandarísk vopn við brot á alþjóðalögum. Forseti Palestínu segir Bandaríkjamenn eina geta afstýrt yfirvofandi innrás í Rafah á Gaza.
Fjórir forsetaframbjóðendur hafa fengið frest til klukkan fimm í dag til að klára að uppfylla kröfur um fjölda meðmælenda. Þrír þeirra telja meðmælendafjöldann vera í höfn.
Íhaldssemi innan heilbrigðisþjónustunnar stendur nýsköpun fyrir þrifum segir annar stofnenda líftæknifyrirtækisins Oculis. Heilbrigðisþjónustan sé allt að því neikvæð gagnvart nýsköpun.
Um níu af hverjum tíu aðspurðra í könnun Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu hefðu viljað læra meira um fjármál í grunnskóla. Samtökin telja brýnt að gera fjármálalæsi að skyldufagi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti skaut föstum skotum að Donald Trump í ræðu sinni á árlegum kvöldverði með fréttamönnum í gær.
Landsmenn týndu rusl í dag á stóra Plokkdeginum. Að sögn skipuleggjenda stefnir í metþáttöku um allt land.
Átta þættir um kalda stríðið sem Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson gerðu á árunum 1987 til 1988.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson.
Umsjónarmenn flytja meginmál þáttarins en auk þess komu fram:
Sir Alec Douglas Home, fyrrum forsætisráðherra.
Sir Frank Roberts fyrrverandi sendiherra í Moskvu hjá NATO.
Útdráttur úr ræðum o.fl.
Dean Acheson, utanríkisráðherra.
Harry S. Truman Bandaríkjaforseti.
Ernest bevin utanríkisráðherra.
Halvard Lange utanríkisráðherra.
Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra.
Lestur: Þorsteinn Hannesson, Kristján Franklín Magnúss og Hreinn Valdimarsson.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið
28. apríl 2024
Í Tóonhjólinu þessa vikuna koma heyrum við tvær svítur, aðra fyrir fiðlu og píanó en hina fyrir tvö píanó. Við heyrum einnig kafla úr fiðlukonserti Brittens og tónverk unnið undir áhrifum frá aríu úr gamalli týndri óperu Claudios Monteverdi.
Síðast en ekki síst er Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari tekin tali en á tónleikum Ensemble Adapter mun Gunnhildur ásamt Matthíasi Engler frumflytja verk sem heitir Vis-a-vis en það var á sínum tíma samstarfsverkefni tónskáldanna Johns Cage og Toro Takemitsu og er að finna í verkaskrá þeirra tveggja.
Tónlistin í þættinum:
- Isabelle Faust leikur upphafskafla fiðlukonserts Benjamins Britten með Sinfóníuhljómsveit bæverska útvarpsins. Jakub Hrůša stjórnar.
- Isabelle Faust og Alexander Melnikov leika svítu fyrir fiðlu og píanó eftir Benjamin Britten.
- Brot úr Child of tree eftir John Cage
- Brot úr Stanza II eftir Toru Takemitsu
- Daniil Trifonov og Sergei Babayan leika svítu nr. 2 fyrir tvö píanó eftir Sergei Rachmanioff
- Anastasia Kobekina leikur Ariadne's Lament - tilbrigði Vladimirs Kobekin við stef eftir Claudio Monteverdi.
Í þáttunum rannsökum við reiðina, hvernig hún birtist og hvernig eigi að túlka hana. Er reiðin alltaf slæm, getur hún gert gott og verður pláss fyrir reiði í framtíðarsamfélaginu?
Umsjón: Rósa María Hjörvar.
Í þessum þætti skoðum við hverjir mega reiðast, hverjir mega það ekki og hvernig þessi reiði birtist og nýtist mönnum.
Veðurstofa Íslands.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags bókaútgefenda. Á morgun er alþjóðlegur dagur bókarinnar, og af því tilefni sagði hann okkur frá félaginu og bókaútgáfu á Íslandi. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Heiðar Ingi talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur.
Gegnumtrekkur e. Einar Lövdahl.
Sápufuglinn e. María Elísabetu Bragadóttur.
Haugalygi e. Sigtrygg Baldursson
Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdahl.
og svo um höfundana Indriða Úlfsson, Diddu, Hallgrím Helgason, Tryggva Emilsson og Pedro Gunnlaug Garcia.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Þórnýju Þórarinsdóttur Kennara.
Hér segir kennarinn Þórný Þórarinsdóttir, frá sínu ævistarfi. Hún kenndi í 36 ár og tók aldrei orlof. Þrátt fyrir að hún hafi glímt við ýmsa erfiðleika í lífinu, er hún sátt við guð og menn. Þórný er mikil félagsvera og starfaði hún m.a. lengi í kvennfélagi Langholtssóknar. Tónlistin í þáttunum um líf og ævi Þórnýjar, er flutt og leikin af sonum hennar, Haraldi, Eiríki og Hauki. Lokalagið syngur eiginmaður hennar, Haukur Eiríksson, sem lést árið 1963
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Brynja Valdimarsdóttir hefur alltaf verið næm. Hún er um þessar mundir að læra á samskiptin við framliðna og segir frá þeirri upplifun. Fyrir sautján árum fékk hún að sjá Garðar Jónsson, transmiðil, á miðilsfundi með hópi af fólki sem hún lýsir sem ógleymanlegri upplifun.
Umsjón: Sylvía Dröfn Jónsdóttir
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Í þættinum hljómar eftirfarandi tónlist:
Dúettinn Ingibjargir flytur lag sitt, Annars hugar, við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
Sean Shibe gítarleikari flytur verkið La catedral eftir Agustín Barrios Mangore. Verkið er í þremur þáttum: I (Preludia (Suadade); II (Andante religoso) og III Allegro solemne.
Sellóleikarar úr Fílharmóníusveit New York-borgar flytja Bachiana Brasileira nr. 5 eftir Heitor Villa-Lobos. Leonard Bernstein stjórnar. Einleikari á selló er Carl Stern. Með þeim syngur Nethania Davrath. Verkið er í tveimur þáttum: I. Aria (Cantilena). Adagio. - II. Dansa (Martelo).
Píanóleikarinn Éric Le Sage, sellóleikarinn er Aurélien Pascal og klarínettuleikarinn Paul Meyer flytja Andante úr Tríói fyrir klarínettu, selló og píanó eftir Nino Rota.
Kammerkór Norðurlands flytur lag Páls Ísólfssonar, Ég beið þín lengi, lengi við ljóð Davíðs Stefánssonar. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Voces 8 flytur Momentary eftir Ólaf Arnalds. Með þeim leikur hörpuleikarinn Oliver Wass.
Kammersveit Reykjavíkur flytur Entropy : I. Arrow of Time og Entropy : II. Asymmetry of Time (Hommage à Olivier Messiaen).
Ingibjargir flytja lag sitt, Angist við ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-22
Ingibjargir - Annars hugar.
Shibe, Sean - La catedral : I. Preludio (Suadade).
Shibe, Sean - La catedral : II. Andante religoso.
Shibe, Sean - La catedral : III. Allegro solemne.
Stern, Carl, New York Philharmonic, Davrath, Netania - Bachiana brasileira no.5.
Meyer, Paul, Pascal, Aurélien, Le Sage, Eric - Trio for Clarinet, Cello and Piano : 2. Andante.
Kammerkór Norðurlands - Ég beið þín lengi, lengi.
Voces 8 - Momentary (Choir version).
Kammersveit Reykjavíkur - Entropy : I. Arrow of Time.
Kammersveit Reykjavíkur - Entropy : II. Asymmetry of Time (Hommage à Olivier Messiaen).
Ingibjargir - Angist.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Áfram heldur Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko að segja frá ævi sinni í Sovétríkjunum á 4. ára síðustu aldar. Járngreipar Stalíns herðast æ meira um samfélagið og ást Kravténkos á stúlkunni Jelenu verður meðal fórnarlambanna. En hver var Jelena, hvað vakti henni og hver urðu örlög hennar?
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Í síðasta þætti byrjuðum við á samtali um það að vera blind, þau Iva og Keli settust niður með mér og við ræddum allt sem þessu tengist, þau gáfu mér opið skotleyfi til að spyrja að öllu milli himins og jarðar, eitthvað sem við ætlum að halda áfram með þættinum í þetta skiptið. Við enduðum þáttinn síðast þegar við vorum að færa okkur yfir í ýmsar tæknipælingar og þar tökum við upp þráðinn.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Útvarpsfréttir.
Ávana- og fíknilyfjum var rænt úr tveimur apótekum í gær. Formaður lyfjafræðingafélagsins segir vopnuð rán í apótekum algengari en fólk geri sér grein fyrir og hefur áhyggjur af öryggi lyfjafræðinga.
Bandarískir embættismenn vara utanríkisráðherra sinn við því að Ísraelar gætu verið að nota bandarísk vopn við brot á alþjóðalögum. Forseti Palestínu segir Bandaríkjamenn eina geta afstýrt yfirvofandi innrás í Rafah á Gaza.
Fjórir forsetaframbjóðendur hafa fengið frest til klukkan fimm í dag til að klára að uppfylla kröfur um fjölda meðmælenda. Þrír þeirra telja meðmælendafjöldann vera í höfn.
Íhaldssemi innan heilbrigðisþjónustunnar stendur nýsköpun fyrir þrifum segir annar stofnenda líftæknifyrirtækisins Oculis. Heilbrigðisþjónustan sé allt að því neikvæð gagnvart nýsköpun.
Um níu af hverjum tíu aðspurðra í könnun Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu hefðu viljað læra meira um fjármál í grunnskóla. Samtökin telja brýnt að gera fjármálalæsi að skyldufagi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti skaut föstum skotum að Donald Trump í ræðu sinni á árlegum kvöldverði með fréttamönnum í gær.
Landsmenn týndu rusl í dag á stóra Plokkdeginum. Að sögn skipuleggjenda stefnir í metþáttöku um allt land.
Útvarpsfréttir.
Rúnar Róberts í huggulegum helgargír og spyr hvernig var helgin og hvernig verður vikan framundan?
Við heyrðum topplagið í Bretlandi á þessum degi, 28. apríl árið 1988, sem var lagið Theme from S-Express með S-Express. Eitís plata vikunnar var Please frá 1986 með Pet shop boys. Nýjan ellismell vikunnar átti Mark Knopfler með lagið Two pairs of hands. Þá var Eitís 12 tomma vikunnar lagið Blue Monday með New Order.
Lagalisti:
14:00
Stuðmenn - Betri Tíð
Ottawan - D.i.s.c.o.
Kristín Sesselja - Exit Plan
S-EXPRESS - Theme from S-Express (Topplagið í Bretlandi 1988)
Lorde - Take Me to the River
Næsland - Þrái þig að fá
Hozier - Too Sweet
Saga - Humble Stance
New Order - Blue Monday (Tólf tomma vikunnar)
INXS - Mystify
The Smiths - There Is A Light That Never Goes Out
15:00
Bubbi Morthens - Dansaðu
Paul McCartney - Take it away
Pet shop boys - West End Girls (Eitís plata vikunnar)
Pet shop boys - Suburbia(Eitís plata vikunnar)
Kiriyama Family - Disaster
Billy Joel - Only the good die young
Nemo - The code
Duran Duran - Is There Something I Should Know?
Sugababes - Freak Like Me (Minningin - Á þessum degi 2002)
Simple Minds - Alive And Kicking
Mark Knopfler - Two Pairs Of Hands (Nýr ellismellur)
Skítamórall - Drakúla
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 21. - 28. apríl 2024.
Fréttastofa RÚV.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Hjálmar fara til Jamaica, Ragnheiður Gröndal syngur íslensk þjóðlög og Ingó og Veðurguðirnir bjóða á gestalista. Á móti sól sér þig kannski seinna, Jógvan og Friðrik Ómar syngja vinalög og Lára Rúnars kemur á óvart. Lights On The Highway siglir um á pappírsbát, Ljótu hálfvitarnir finna lukkutroll og Dr. Gunni er með mörg járn í eldinum. Sindri Már Sigfússon er Sin Fang Bous, Litla hafmeyjan léttir lund landsmanna og Sykur er með stuð í eyrum. Ourlives tapar kapphlaupinu, Prins Póló er einn heima, Worm is Green nýtir sér þjónustu tónlistarveitunnar Bandcamp en Egill Sæbjörnsson er brjálaður eins og býfluga.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í 40. þættinum, í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2009, eru Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Björn Árnason, Leifur Kristinsson, Eiður Ágúst Kristjánsson, Magni Ásgeirsson, Lára Rúnarsdóttir, Sindri Már Sigfússon, Arngrímur Arnarson, Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Snæbjörn Ragnarsson, Eggert Hilmarsson, Guðmundur Svafarsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Sævar Sigurgeirsson, Þorgeir Tryggvason, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Jógvan Hansen, Ingólfur Þórarinsson, Agnar Eldberg, Gunnar Hjálmarsson, Pétur Örn Guðmundsson, Hannes Friðbjörnsson og Erpur Eyvindarson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Hjálmar - Það sýnir sig
Hjálmar - Heyrist hverjum
Hjálmar - Manstu
Hjálmar - Hvert sem ég fer
Hjálmar - Taktu þessa trommu
Ourlives - We Lost The Race
Ourlives - Out Of Place
Á Móti Sól - Sé þig seinna
Á Móti Sól - Dagarnir
Á Móti Sól - Ef þú ert ein
Lára Rúnars - Surprise
Lára Rúnars - I wanna be
Lára Rúnars - Honey You’re Gay!
Lára Rúnars - In Between
Egill Sæbjörnsson - Crazy Like A Bee
Prins Póló - Átján og Hundrað
Lay Low - Sorgin
Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar - Í hjarta þér
Sin Fang Bous - Catch The Light
Sin Fang Bous - Clangour & Flutes
Jógvan Hansen & Friðrik Ómar - Eros
Jógvan Hansen & Friðrik Ómar - Romeo og Julia
Ingó & Veðurguðirnir - Vinurinn
Ingó & Veðurguðirnir - Bara brosa
Ingó & Veðurguðirnir - Nóttin er liðin
Ingó & Veðurguðirnir - Gestalistinn
Ingó - Hemmi
Lights on the Highway - Paperboat
Lights on the highway - A little bit of everything
Dr Gunni - Satan konungur apanna
Dr Gunni - Bubbi Morthens
Dr Gunni - Prinsessan mín
Buff - Prinsessan mín
Birgir Ísleifur & Lay Low - Heppinn
Greifarnir + Laddi & Stefán Karl - Jóhannes
Worm is green - The Darkness
Worm is green - March On (Roger O’Donnel remix)
Worm is green - The Politician
Ljótu hálfvitarnir - Lukkutroll
Ljótu hálfvitarnir - Stjáni
Ljótu hálfvitarnir - Paradísarmissir
Sykur og Katrína Mogensen - Með stuð í eyrum
Sykur - Bite me (Rakel Mjöll Leifsdóttir)
Sykur ft. Blaz Roca - Viltu Dick
Morðingjarnir - Airwaves
Kings of Convenience - Boat Behind
Ragnheiður Gröndal - Ei er andvakan góð
Ragnheiður Gröndal - Nú glæðast lífsins gæði