18:10
Spegillinn
Atvinnuástandið, hægriöfgamenn gætu komist til valda í Þýskalandi og einmanna ungmenni

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við.

Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu afleiðingar langt út fyrir Saxland-Anhalt.

Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður og finnst vinskapurinn verri en eldri kynslóðir. Þetta er ekki síst rakið til samfélagmiðla.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,