Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans var fyrsti gestur þáttarins. Tilefnið var að í vikunni bárust jákvæðar fréttir af stöðunni á spítalanum. Miklu færri eru nú fastir á spítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum og öðrum úrræðum en verið hefur í langan tíma, með jákvæðum áhrifum á viðkomandi einstaklinga, aðra sjúklinga og starfsfólk. Þá verður opnuð ný bráðamatsdeild á næstunni.
Fjörutíu ár eru frá því að skáldsagan Óbærilegur léttleiki tilverunnar eftir Milan Kundera kom út á íslensku. Friðrik Rafnsson þýðandi ræddi um bókina og Kundera.
Og svo var það sígilda tónlistin með Magnúsi Lyngdal. Hann fjallaði í dag um ungverska tónskáldið György Ligeti sem fór ótroðnar slóðir í sköpun sinni.
Tónlist:
Diddi og Reynir - Kata [Kötukvæði].
Hjálmar - Morgunóður.

07:30

08:30
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Í níunda þætti RÚS er viðmælandi Gunnarr Þorra Péturssonar Árni Bergmann rithöfundur.
Í lok þáttarins syngur Feodor Chaliapin aríu Igors úr Igor fursta eftir Alexander Borodin.
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Guðni Tómasson veitti aðstoð við dagskrárgerð og samsetningu.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag.
Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins.
Tónlist í þættinum í dag:
Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson)
Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet)
Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ríkisendurskoðandi heldur stöðu sinni - forsætisnefnd Alþingis hefur lokið meðferð á máli hans. Hann var sakaður um einelti og starfsfólk lýsti ófremdarástandi á vinnustaðnum.
Mikið var um upplýsingaóreiðu og falsfréttir fyrir ESB þjóðaratkvæðagreiðsluna, segir stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Hún harmar ákvörðun landsmanna um að hafna aðildarviðræðum.
Tveimur var í morgun bjargað úr göngum vatnsaflsvirkjunar í Nepal, níu dögum eftir að hamfaraflóð reið yfir. Talið er að nokkur hundruð manns séu enn föst í göngum virkjana. Vonir um að finna fleiri á lífi hafa glæðst.
Ritstjóri Víkurfrétta segir fúlt að horfa upp á það að hið opinbera kaupi auglýsingar á samfélagsmiðlum í auknum mæli. Rekstur héraðsmiðlanna verður sífellt erfiðari.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir ekkert kalla á lengingu á útivistartíma tíu til tólf ára barna eins og barnamálaráðherra leggur til. Útivistartíminn hafi reynst vel í forvarnaskyni.
Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til meðan á framkvæmdum stendur.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni.
Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars.
Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja að Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess að Heiðar hefði fengið mun minna fyrir bréfin sem hann seldi Gavia.
Fjallað er um þessa deilu í þætti dagsins og útskýrt um hvað hún snýst.
Umsjón: Helgi Seljan
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin.
Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Bulgarian Voices Angelite, The - Vetchera i rado.
Sirtos Ensemble - Tsifteteli.
Kocani Orkestar - Fantaisia For Clarinet.
Bosco, Joao - Aquarela do Brasil (úr syrpu).
Moré, Beny - Solamente una vez.
Leandry, Luc - Votez Zouk la.
Etoile 2000 - Boubou n'gary.
Manet, Rachunath - Sarasaganalola.
Kazdoura - Marhaba Ahlen.
Kundanlal - Kathak dance.
Ustad Mahwash - Farchar = Instrumental.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 22. október 2017: Í þessum þætti fer allt í hund og kött. Þemað eru hundar og kettir og við þefum uppi fólk sem snýst í kringum þessi gæludýr. Hugsar um þau, þjálfar þau og þrífur. Innslög í þáttinn unnu þau Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er SATT 3 sem kom út 1984.
Á áttunda áratug síðustu aldar risu deilur um svonefnd STEF-gjöld, sem innheimt voru af tónlist vegna flutnings í útvarpi. Ágreiningurinn sneri að því hvernig gjöldunum var skipt þegar kom að greiðslu til rétthafa og svo fór að árið 1979 voru stofnuð Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, skammstafað SATT, til að freista þess að auka hlut þeirra sem fengust við dægurtónlist. Einnig átti félagið að ýta undir tónleikahald og lifandi spilamennsku og koma upp félagsheimili tónlistarmanna.
Eitt af því sem samtökin gerðu til að safna fé til húsnæðiskaupa var að gefa út þrjár safnplötur árið 1984, SATT 1, 2 og 3, sem seldar voru saman á verði einnar plötu. Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson, sem var einn af hvatamönnum stofnunar samtakanna, hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifingu. Jóhann áritaði og tölusetti líka plöturnar sem gefnar voru út í þúsund eintökum.
Í vínil vikunnar fyrir tveimur vikum fékk fyrsta plata að hljóma, önnur platan í síðustu viku, en nú er komið að þriðju og síðustu plötunni, SATT 3.
Fyrsta lag A-hliðar plötunnar er Róbótinn með hljómsveitinni Grafík, lagið eftir sveitarmeðlimi en textinn eftir Helga Björnsson sem syngur lagið. Aðrir í sveitinni voru Rúnar Þórisson sem lék á gítar, Örn Jónsson á bassa og Rafn Jónsson á trommur. Það má geta þess að þetta er fyrsta lagið sem Helgi Björnsson söng inn á bandi sem meðlimur Grafíkur.
Þar næst kemur Tímabundið vonleysi með hljómsveitinni Qtzjí Qtzjí Qtzjí sem starfrækt var í Keflavík 1983 til 1985. Lagið er eftir hljómsveitina en texta orti Erpur Snær Hansen. Eðvarð Vilhjálmsson leikur á trommur, Einar Falur Ingólfsson á bassa, Sævar Ingimundarson á gítar og Jón Ben Einarsson syngur.
Lagið Henry er með hljómsveitinni Taktlazk. Ásgeir Baldursson, Aðalsteinn Gunnarsson og Atli Ingvarsson sömdu lagið, Unnar Stefánsson textann. Ásgeir leikur á gítar, Aðalsteinn á bassa og Atli á trommur, en Unnar syngur.
Sperglar er lag með Tappa Tíkarrassi, lagið eftir Tappann allan, en textinn eftir Björk Guðmundsdóttur. Björk Guðmundsdóttir syngur, Jakob Magnússon leikur á bassa, Eyjólfur Jóhannesson á gítar og Guðmundur Gunnarsson á trommur.
Lokalag A-hliðar er lagið Ég er aumingi með hljómsveitinni Þarmagustunum sem lentu í öðru sæti í Músíktilraunum SATT 1983. Pétur Jónsson og Ríkharður Flemming Jensen sömdu lagið. Á umslagi segir að texti lagsins sé eftir Stein Steinarr, en rétt mun að hann er eftir Þórberg Þórðarson. Pétur leikur á gítar, Kristján Hallur Leifsson á bassa, Ingólfur Örn Steingrímsson á gítar og Ríkharður á trommur. Þórhildur Þórhallsdóttir syngur.
Fyrsta lagið á B-hliðinni er Part með hljómsveitinni Með nöktum. Lagið eftir hljómsveitarmeðlimi en textinn eftir Magnús Guðmundsson forðum Þeysara. Hann syngur, Ágúst Karlsson leikur á gítar, Halldór Lárusson á slagverk, Birgir Mogensen á bassa og Helgi Pétursson á hljómborð.
Rugl kemur næst, lag með hljómsveitinni Byl. Leó Torfason samdi lagið og leikur á gítar, Jóhannes G. Snorrason leikur einnig á gítar, Ólafur Stolzenwald á bassa, Svavar Sigurðsson á hljómborð og Karl Jóhann á trommur.
Frankfurt '45 heitir lag með Bandi nútímans. Ævar Ögmundsson samdi lagið og Magnús Árni Magnússon textann. Magnús Árni syngur og leikur á hljómborð, Gunnar Ólafsson leikur á bassa, Ævar á gítar og Kristján Pétur Vilhelmsson á trommur.
Þá kemur lagið Peningar með Joð Ex. Hljómsveitarmenn semja lag og texta, en þeir eru Sigurjón Baldvinsson sem syngur., Kristinn Valgeir Einarsson sem leikur á trommur, Rögnvaldur Rögnvaldsson sem leikur á gítar og Steinþór Stefánsson sem leikur á bassa.
Lokalag B-hliðar er lagið 14.40 með hljómsveitinni Ást. Kristinn Jón Guðmundsson og Steinn Skaptason sömdu lag og texta. Hljómsveitina skipuðu þeir Kristinn Jón Guðmundsson, Steinn Skaptason, Trausti Júlíusson og Gunnar Lárus Hjálmarsson, en á þessari upptöku eru þeir einir Kristinn Jón og Steinn.
Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari. Rætt var meðal annars um kvikmyndina Um tímann og vatnið, leikritið Breadcrumbs í Tjarnarbíó, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eiríksþing, til minningar um Eirík Guðmundsson. Fram fór ljóðalestur í beinni útsendingu auk þess sem Ormstunga í Þjóðleikhúsinu, trúnó við jöklasérfræðing og margt fleira bar á góma.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við.
Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu afleiðingar langt út fyrir Saxland-Anhalt.
Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður og finnst vinskapurinn verri en eldri kynslóðir. Þetta er ekki síst rakið til samfélagmiðla.

frá Veðurstofu Íslands
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Rúnar Hafdal Halldórsson lést 23 ára gamall af slysförum árið 1971 og skildi eftir sig nokkur kvæði. Þrjú þeirra höfðu verið birt á prenti í tímaritinu Eimreiðinni og fleiri ljóð í skólablaði Menntaskólans á Laugarvatni. Hörður Torfason samdi lög við þrjú þessara kvæða sem komu út á fyrstu stóru plötu hans. Ári eftir andlát Rúnars Hafdals kom út bókin Sólris; ljóð og laust mál. Það hafa verið samin lög við nokkur kvæða hans. Hörður bætti við einu lagi sem kom á annarri plötu hans og Karl Sighvatsson samdi lag við hluta ljóðsins Brot úr sögu kapítalismans í Víetnam, sem heitir Hugleiðing. Þar að auki er Guðmundur Hermannsson höfundur fjögurra laga sem komu út á sólóplötu hans sem fékk nafnið Í tilefni dagsins.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina:
Systkinaerjurnar e. Moa Herngren
Kæri fáviti e. Virginie Despentes
Jakaranda e. Gael Faye
Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér á landi uxu á tegundir sem garðeigendur dagsins í dag leitast við að koma á legg. Rætt er um hvaða afleiðingar kólnunin rétt fyrir ísöld hafði og þær breytingar sem verða þegar siglt er inn í kvarter-tímabil jarðsögunnar sem einkennist af hitasveiflum og tilkomu mannsins. Fjallað er um hvaðan tegundirnar komu eftir ísöld og mögulega hvernig þær námi land – sem og hvaða tegund hefði mögulega geta lifað af ísöld á jökulskerjum ef það var raunin.
Viðmælendur: Brynhildur Magnúsdóttir, Þráinn Hauksson, Steinar Björgvinsson og Steinunn Garðarsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag.
Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins.
Tónlist í þættinum í dag:
Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson)
Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet)
Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir
Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur eru þau Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir rithöfundur og Árni Pétur Guðjónsson leikari. Rætt var meðal annars um kvikmyndina Um tímann og vatnið, leikritið Breadcrumbs í Tjarnarbíó, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Eiríksþing, til minningar um Eirík Guðmundsson. Fram fór ljóðalestur í beinni útsendingu auk þess sem Ormstunga í Þjóðleikhúsinu, trúnó við jöklasérfræðing og margt fleira bar á góma.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Reykjavíkurborg, Saman-hópurinn og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leggjast gegn tillögu mennta- og barnamálaráðherra um að útivistartími barna 10 til 12 ára verði lengdur um eina klukkustund yfir vetrartímann. Hverju breytir einn klukkutími? Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, ræddi við okkur.
Ragnhildur Steinunn snýr aftur á sunnudaginn með aðra þáttaröð af Á gamans aldri. Þar er skyggnst inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Ragnhildur Steinunn sagði okkur frá nýju seríunni.
Við héldum áfram að fjalla um menntamál í Morgunútvarpinu en í síðustu viku kom Ragnheiður Stephensen kennari til okkar og fór hörðum orðum um stöðu námsagna í grunnskólum. Þessi mál eru ekki á góðum stað og í umfjöllun Morgunblaðsins í vikunni kom fram að fjárveitingar til málaflokksins hafa dregist verulega saman að raunvirði á undanförnum árum. Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, fór yfir stöðuna með okkur.
Við fengum til okkar fréttafólkið Helga Seljan frá RÚV og Elísabetu Ingu Sigurðardóttur frá Sýn til að fara yfir fréttir vikunnar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Benni Hemm Hemm og bókaútgefandinn María Rán Guðjónsdóttir komu í kaffi og töluðu um flest allt annað en bækur. Mugison varð 50 ára og Beyonce 45! Lagalisti fólksins var dásamlegur, þemað var vinátta.
EGÓ – Ráð Til Vinkonu
OF MONSTERS & MEN – Ordinary Creature
DESTINY'S CHILD – Bootylicious
MUGISON – Mugiboogie
KATE BUSH – Running Up That Hill
THE KNIFE – Heartbeats
MADONNA – Beautiful Stranger
STEPPENWOLF – Magic Carpet Ride
JOHN GRANT, KAKTUS EINARSSON – Follow
EELS – Flyswatter
FONTAINES D.C. – Marianne
TOM JONES – It's Not Unusual
BENNI HEMM HEMM – I Can Love You In A Wheelchair Baby
ENSÍMI – Atari
LLOYD COLE AND THE COMMOTIONS – Lost Weekend
BOTNLEÐJA – Farðu Í Röð
RED HOT CHILI PEPPERS – Otherside
LAURA BRANIGAN – Gloria
WARMLAND – Violet Dreams
NÝDÖNSK – Frelsið
TRAVIS – Flowers In The Window
GARBAGE – Stupid Girl
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Heartbeat
KK OG RÚNAR JÚLÍUSSON – Ég Er Vinur Þinn
QUEEN – You're My Best Friend
MANNAKORN – Gamli Góði Vinur
METALLICA – My Friend Of Misery
INCUBUS – Wish You Were Here
BEN E. KING – Stand By Me
THE CARS – My Best Friend's Girl
BIZ MARKIE – Just a Friend
JUSTICE – We Are Your Friends (Radio Edit)
LEMONHEADS – If I Could Talk I'd Tell You
PULP – Like a Friend
THE REMBRANDTS – I'll Be There For You
THE WHITE STRIPES – We're Going To Be Friends
SSSÓL – Síðan Hittumst Við Aftur
TRÚBROT – My Friend And I
THE DOORS – The End

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ríkisendurskoðandi heldur stöðu sinni - forsætisnefnd Alþingis hefur lokið meðferð á máli hans. Hann var sakaður um einelti og starfsfólk lýsti ófremdarástandi á vinnustaðnum.
Mikið var um upplýsingaóreiðu og falsfréttir fyrir ESB þjóðaratkvæðagreiðsluna, segir stækkunarstjóri Evrópusambandsins. Hún harmar ákvörðun landsmanna um að hafna aðildarviðræðum.
Tveimur var í morgun bjargað úr göngum vatnsaflsvirkjunar í Nepal, níu dögum eftir að hamfaraflóð reið yfir. Talið er að nokkur hundruð manns séu enn föst í göngum virkjana. Vonir um að finna fleiri á lífi hafa glæðst.
Ritstjóri Víkurfrétta segir fúlt að horfa upp á það að hið opinbera kaupi auglýsingar á samfélagsmiðlum í auknum mæli. Rekstur héraðsmiðlanna verður sífellt erfiðari.
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir ekkert kalla á lengingu á útivistartíma tíu til tólf ára barna eins og barnamálaráðherra leggur til. Útivistartíminn hafi reynst vel í forvarnaskyni.
Eftir áralanga bið eru viðgerðir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík. Vatnsskemmdir urðu á húsinu vegna leka. Skólahald verður fært til meðan á framkvæmdum stendur.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Föstudags fjör í Popplandi, póstkort frá tveimur upprennandi íslenskum söngkonum, R&B horn, Beyoncé afmælisbarn dagsins, diskótvenna og margt fleira gott.
AMABADAMA - HossaHossa.
TALKING HEADS - Once In A Lifetime.
PHOENIX - Lisztomania.
Bubbi Morthens - Ég er tilbúinn.
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Last Train To London.
MT Jones - I Don't Understand.
Agnes - Release Me.
Carey, Mariah - Fantasy.
Brynja Bjarnadóttir - One by One.
Lopez, Jennifer, LL Cool J - All I have.
Ne-Yo - Miss independent.
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Memfismafían - Ég kenni þér um.
Fike, Dominic - Babydoll.
Klara Einarsdóttir - Ef hann myndi.
Kaktus Einarsson - Glycerine.
Temper City - Self Aware.
EVERYTHING BUT THE GIRL - Missing (Todd Terry Club Remix).
OASIS - Don't Look Back In Anger.
Hipsumhaps - Meðal mannsins (þjóðsöngurinn).
Jónfrí, Lúpína - Endalaus framtíð.
MGMT - Electric Feel.
Haukur Ægir Hauksson - Með allt á hreinu.
Beyoncé, Cole, J. - Party.
Musgraves, Kacey - I Believe In Ghosts.
Árný Margrét - In a dream.
Atli Dagur Stefánsson - So Long.
HJÁLMAR - Til Þín.
Styles, Harry - American Girls.
ABBA - Does Your Mother Know.
DISCO BAMBINO & NILE ROGERS & SOPHIE ELLIS BEXTOR - Dancing Without You.
SUPERGRASS - Alright.
SOMBR - My Body Isn’t Ready.
VALDIS - losing myself.
AZELIA BANKS - 212.
HUGEL & ULTRA NATÉ & IMAEL ANGEL - Movin’ To The Sun.
SAINT PETE - Superman.
HOP CHIP - Ready for the Floor.
HUEY LEWIS & THE NEWS - If This Is It.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við hófum Síðdegisútvarpið í dag með fréttum af Suðurlandi en Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður og afmælilsbarn dagsins var á línunni.
Heimsmeistaramót kvenna í körfubolta fór af stað í dag. Mótið er haldið í Berlín þar sem sextán lið keppast um titilinn, en þau hafa aldrei verið jafn mörg. Fyrirkomulagi mótsins hefur jafnframt verið breytt þannig að liðin sem vinna sína riðla fara beint í átta liða úrslitin en liðin í öðru og þriðja sæti í riðlinum fara í umspil um þau fjögur sæti sem verða eftir. Einar Örn Jónsson sagði okkur betur frá mótinu hér á eftir.
Átt þú heima í ævintýraskóginum? Svona hljóðar auglýsing frá Leikfélagi Akureyrar en um er að ræða áheyrnarprufur fyrir Skilaboðaskjóðuna sem leikfélagið frumsýnir í febrúar 2027. Áheyrnarprufurnar fara fram á morgun og við slógum á þráðinn til Bergs Þórs Ingólfssonar leikhússtjóra fyrir norðan og heyrðum af prufunum og starfinu framundan hjá L.A.
Í Grindavík eru skólarnir farnir af stað, opnunartími í íþróttamannvirkjum hefur verið lengdur út af eftirspurn, réttir hafa verið skipulagðar og bæjarstjórinn hefur boðið bæjarbúum í spjall um málefni Grindavíkur tvisvar í mánuði. Á sama tíma er bærinn þó enn á óvissustigi almannavarna. Í nýlegri grein í vísindaritinu Geophysical Research Letters er m.a. fjallað um stórar sprungur og holrými undir bænum sem engin merki voru um á yfirborðinu en komu í ljós með segulómun. Við ræddum um lífið í Grindavík og framtíðina við Pétur G. Markan bæjarstjóra hér á eftir.
Það eru sífellt fleiri sem hafa uppgötvað sjóinn sem hluta af sinni vellíðan, hvort sem það er fyrir áskorunina, andlegu hvíldina eða einfaldlega góða félagsskapinn. Við ætlum að heyra af sjóbaðsleikjanámskeiði sem ber yfirskriftina Glaðari þú. Guðrún Tinna Thorlasíus heitir sú sem allt veit um þann félagsskap og hún kom til okkar.
Krúttlegasta hjólamót landsins verður haldið í níunda sinn við Perluna í Öskjuhlíð á fyrramálið. Hjólaklúbburinn Tindur, Hjólaskólinn og Krónan standa að mótinu, sem er ætlað börnum á aldrinum 2–12 ára. Met var slegið í fyrra þegar um 400 börn og aðstandendur mættu til leiks og von er á góðri þátttöku aftur í ár. Til að segja okkur meira af krúttheitunum kom til okkar Þóra Katrín Gunnarsdóttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fyrstu sjö mánuði ársins var atvinnuleysi meðal Íslendinga 2,7% en hefur verið í kringum 2% undanfarin ár. Þetta samsvarar því að tæplega 4000 íslenskir ríkisborgarar hafi verið atvinnulausir. Atvinnuleysi hjá erlenda hópnum var 7,9% eða um 5.200 manns og þokast stöðugt upp á við.
Hægriöfgamenn í AfD gætu komist til valda í minnsta sambandslandi Þýskalands – þau úrslit mörkuðu kaflaskil og hefðu afleiðingar langt út fyrir Saxland-Anhalt.
Ungt fólk í Bretlandi segist eiga mun færri nána vini en áður og finnst vinskapurinn verri en eldri kynslóðir. Þetta er ekki síst rakið til samfélagmiðla.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.