Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er SATT 3 sem kom út 1984.
Á áttunda áratug síðustu aldar risu deilur um svonefnd STEF-gjöld, sem innheimt voru af tónlist vegna flutnings í útvarpi. Ágreiningurinn sneri að því hvernig gjöldunum var skipt þegar kom að greiðslu til rétthafa og svo fór að árið 1979 voru stofnuð Samtök alþýðutónskálda og tónlistarmanna, skammstafað SATT, til að freista þess að auka hlut þeirra sem fengust við dægurtónlist. Einnig átti félagið að ýta undir tónleikahald og lifandi spilamennsku og koma upp félagsheimili tónlistarmanna.
Eitt af því sem samtökin gerðu til að safna fé til húsnæðiskaupa var að gefa út þrjár safnplötur árið 1984, SATT 1, 2 og 3, sem seldar voru saman á verði einnar plötu. Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson, sem var einn af hvatamönnum stofnunar samtakanna, hafði umsjón með útgáfunni fyrir hönd SATT og fyrirtæki hans, Listamiðstöðin, annaðist dreifingu. Jóhann áritaði og tölusetti líka plöturnar sem gefnar voru út í þúsund eintökum.
Í vínil vikunnar fyrir tveimur vikum fékk fyrsta plata að hljóma, önnur platan í síðustu viku, en nú er komið að þriðju og síðustu plötunni, SATT 3.
Fyrsta lag A-hliðar plötunnar er Róbótinn með hljómsveitinni Grafík, lagið eftir sveitarmeðlimi en textinn eftir Helga Björnsson sem syngur lagið. Aðrir í sveitinni voru Rúnar Þórisson sem lék á gítar, Örn Jónsson á bassa og Rafn Jónsson á trommur. Það má geta þess að þetta er fyrsta lagið sem Helgi Björnsson söng inn á bandi sem meðlimur Grafíkur.
Þar næst kemur Tímabundið vonleysi með hljómsveitinni Qtzjí Qtzjí Qtzjí sem starfrækt var í Keflavík 1983 til 1985. Lagið er eftir hljómsveitina en texta orti Erpur Snær Hansen. Eðvarð Vilhjálmsson leikur á trommur, Einar Falur Ingólfsson á bassa, Sævar Ingimundarson á gítar og Jón Ben Einarsson syngur.
Lagið Henry er með hljómsveitinni Taktlazk. Ásgeir Baldursson, Aðalsteinn Gunnarsson og Atli Ingvarsson sömdu lagið, Unnar Stefánsson textann. Ásgeir leikur á gítar, Aðalsteinn á bassa og Atli á trommur, en Unnar syngur.
Sperglar er lag með Tappa Tíkarrassi, lagið eftir Tappann allan, en textinn eftir Björk Guðmundsdóttur. Björk Guðmundsdóttir syngur, Jakob Magnússon leikur á bassa, Eyjólfur Jóhannesson á gítar og Guðmundur Gunnarsson á trommur.
Lokalag A-hliðar er lagið Ég er aumingi með hljómsveitinni Þarmagustunum sem lentu í öðru sæti í Músíktilraunum SATT 1983. Pétur Jónsson og Ríkharður Flemming Jensen sömdu lagið. Á umslagi segir að texti lagsins sé eftir Stein Steinarr, en rétt mun að hann er eftir Þórberg Þórðarson. Pétur leikur á gítar, Kristján Hallur Leifsson á bassa, Ingólfur Örn Steingrímsson á gítar og Ríkharður á trommur. Þórhildur Þórhallsdóttir syngur.
Fyrsta lagið á B-hliðinni er Part með hljómsveitinni Með nöktum. Lagið eftir hljómsveitarmeðlimi en textinn eftir Magnús Guðmundsson forðum Þeysara. Hann syngur, Ágúst Karlsson leikur á gítar, Halldór Lárusson á slagverk, Birgir Mogensen á bassa og Helgi Pétursson á hljómborð.
Rugl kemur næst, lag með hljómsveitinni Byl. Leó Torfason samdi lagið og leikur á gítar, Jóhannes G. Snorrason leikur einnig á gítar, Ólafur Stolzenwald á bassa, Svavar Sigurðsson á hljómborð og Karl Jóhann á trommur.
Frankfurt '45 heitir lag með Bandi nútímans. Ævar Ögmundsson samdi lagið og Magnús Árni Magnússon textann. Magnús Árni syngur og leikur á hljómborð, Gunnar Ólafsson leikur á bassa, Ævar á gítar og Kristján Pétur Vilhelmsson á trommur.
Þá kemur lagið Peningar með Joð Ex. Hljómsveitarmenn semja lag og texta, en þeir eru Sigurjón Baldvinsson sem syngur., Kristinn Valgeir Einarsson sem leikur á trommur, Rögnvaldur Rögnvaldsson sem leikur á gítar og Steinþór Stefánsson sem leikur á bassa.
Lokalag B-hliðar er lagið 14.40 með hljómsveitinni Ást. Kristinn Jón Guðmundsson og Steinn Skaptason sömdu lag og texta. Hljómsveitina skipuðu þeir Kristinn Jón Guðmundsson, Steinn Skaptason, Trausti Júlíusson og Gunnar Lárus Hjálmarsson, en á þessari upptöku eru þeir einir Kristinn Jón og Steinn.
