07:03
Morgunvaktin
Staðan betri á Landspítala en björninn ekki unninn

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans var fyrsti gestur þáttarins. Tilefnið var að í vikunni bárust jákvæðar fréttir af stöðunni á spítalanum. Miklu færri eru nú fastir á spítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum og öðrum úrræðum en verið hefur í langan tíma, með jákvæðum áhrifum á viðkomandi einstaklinga, aðra sjúklinga og starfsfólk. Þá verður opnuð ný bráðamatsdeild á næstunni.

Fjörutíu ár eru frá því að skáldsagan Óbærilegur léttleiki tilverunnar eftir Milan Kundera kom út á íslensku. Friðrik Rafnsson þýðandi ræddi um bókina og Kundera.

Og svo var það sígilda tónlistin með Magnúsi Lyngdal. Hann fjallaði í dag um ungverska tónskáldið György Ligeti sem fór ótroðnar slóðir í sköpun sinni.

Tónlist:

Diddi og Reynir - Kata [Kötukvæði].

Hjálmar - Morgunóður.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,