15:03
Sögur af landi: Endurlit
63. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 22. október 2017: Í þessum þætti fer allt í hund og kött. Þemað eru hundar og kettir og við þefum uppi fólk sem snýst í kringum þessi gæludýr. Hugsar um þau, þjálfar þau og þrífur. Innslög í þáttinn unnu þau Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,