07:03
Morgunútvarpið
Handverksbrugghús,fréttir vikunnar,nýr meirihluti á Akureyri og frumflutningur á þjóðhátíðarlagi

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Fjöldi íslenskra handverksbrugghúsa sameinast til þess að kynna starfsemi sína, vörur og ástríðu fyrir íslenskri bjór- og áfengisgerð á Íslenska brugghúsadeginum í Tónabíói í dag klukkan 17. Samtök íslenskra handverksbrugghúsa voru stofnuð í mars 2018 og við stofnun voru aðildarfélagar að samtökunum 21 brugghús sem dreifast um allt land. Til að ræða þetta kom til okkar Laufey Sif Lárusdóttir, formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa og einn eiganda Ölverk brugghús.

Það er stór stund ár hvert þegar nýtt Þjóðhátíðarlag byrjar að óma á öldum ljósvakans. Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör flytja lagið í ár og Birgitta kíkti til okkar með lagið með sér.

Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn hafa myndað saman meirihluta bæjarstjórnar Akureyrar til næstu fjögurra ára. Berglind Ósk Guðmundsdóttir sest í stól bæjarstjóra á Akureyri, fyrst kjörinna fulltrúa síðan 2010 og Óðinn Svan Óðinsson verður formaður bæjarráðs. Við spjölluðum við Berglindi og Óðni í beinni frá hljóðstofu RÚV á Akureyri.

Viðburðarík vika að baki og sérstaklega í pólitíkinni, sem vinnur nú að því að hamra saman meirihluta um allt land. Það liggur því beinast við að fá til okkar Boga Ágústsson og Ólaf Þ. Harðarson til að fara yfir fréttir vikunnar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,