12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 22. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Lögmaður fjölskyldu Andemariams Beyene, sem lést eftir plastbarkaígræðslu, segir dóm yfir íslenska ríkinu vegna stórfellds gáleysis Tómasar Guðbjartssonar læknis mikinn sigur fyrir fjölskylduna.

Oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík ræðir við Framsókn, Viðreisn og Miðflokk í dag. Dregið gæti til tíðinda í borginni um helgina. Pattstaða er í Hafnarfirði eftir viðræðuslit Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Nýr meirihluti er í burðarliðnum í Hveragerði.

Miklu minni peningar eru settir í að búa til námsgögn núna en fyrir tuttugu árum. Stjórnarformaður þróunarsjóðs námsgagna segir að það bitni mest á nemum sem þurfa mikinn stuðning.

500 Grænlendingar mótmæltu opnun ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Nuuk í gær og sögðust ekki vera til sölu.

Rauði krossinn hefur hætt allri húsnæðisþjónustu við flóttafólk á Íslandi. Neyðarskýli samtakanna var lokað í morgun.

Fulltrúar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins hafa fagnað ákvörðun Bandaríkjamanna um að hætta við að fækka hermönnum í Póllandi. Bandaríkjaforseti tilkynnti um þetta skömmu áður en utanríkisráðherrar NATO ríkjanna í Svíþjóð í morgun.

Mótmælendur kveiktu í tjöldum á sjúkrahúsi í austur Kongó þar sem sjúklingum með ebólu er sinnt. Yfir 130 hafa látist úr ebólu í landinu.

og Pep Guardiola er hættir í lok leiktíðar sem þjálfari Manchester City.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,