18:10
Spegillinn
Eignir útgerðarinnar, hriktir í stoðum NATO og erfið stjórnarmyndun í Danmörku

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Stærstu útgerðarfyrirtæki landsins hafa safnað stóru eignasafni samkvæmt úttekt Hagfræðistofnunar fyrir Atvinnuvegaráðuneytið. Helgi Seljan skoðar gögnin.

Það hriktir í stoðum NATO og þungt var í utanríkisráðherrum bandalagsins á fundi í Svíþjóð í dag, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var stödd. Spegillinn ræddi við hana.

Stjórnarmyndun í Danaveldi er í hnút. Lars Lökke Rasmussen neitaði síðdegis að styðja hægristjórn Troels Lund Poulsen, formanns venstre. Nú gæti komið að Mette Frederiksen á ný.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,