07:03
Morgunútvarpið
Stóra kofamálið, Logi Pedro,verstu námslán á norðurlöndum og lýðræðisveislan.is

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Okkar góði fasti gestur Stjörnu-Sævar mætti til okkar með nýjustu fréttir úr himinhvolfinu en eitt er víst: Við komum ekki að tómum kofanum þar í dag frekar en fyrri daginn.

Vextir námsmanna hafa tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN fyrir sex árum samkvæmt nýrri greiningu Nönnu Hermannsdóttur, sem segir að að núverandi námslánakerfi grafi undan markmiðum atvinnustefnu Íslands og eigin lögbundna hlutverki sem „félagslegur jöfnunarsjóður“. Lánakjörin koma illa út í samanburði við Norðurlöndin og hlutfall námsmanna sem fær námsstuðning er einnig langlægst hér á landi og greiðslubyrði jafngreiðslulána mest íþyngjandi. Nanna var á línunni.

Hvað ætlarðu að kjósa á laugardaginn? Ef þú átt eftir að kynna þér málið gæti Lýðræðisveislan.is verið eithvað fyrir þig. Þar er að finna allt um öll framboð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á einum stað. Hvorki meira né minna. Þú finnur frambjóðendur, stefnumál og fréttir í þínu sveitarfélagi. Halldór Berg Harðarson, maðurinn á bakvið þessa veislu, kom til okkar.

Krakkar í Vesturbæ Reykjavíkur leita allra leiða til að koma í veg fyrir að kofi sem þau hafa byggt verði rifinn. Kofinn er ekki öryggisvottað leiktæki samkvæmt borginni en hann er engu að síður vinsælli í hverfinu en rólóvöllurinn. Anna Kristín Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur og móðir í hverfinu bendir á að ýmislegt í umhverfi barnanna sé hættulegra en kofinn, til dæmis bílaumferð og holóttar götur og hún kom til okkar að ræða málið.

Við þekkjum Loga Pedro sem tónlistarmann, bæði á eigin vegum og í hljómsveitinni Retro Stefson. Hann er hins vegar líka vöruhönnuður og er með sýningu á Hönnunarmars. Sýningin heitir Heimur og byggir á hugmynd um heimili sem afstöðu: að hvert rými, hver hlutur og hvert form beri með sér ákveðna menningarlega sýn. Við fengum Loga til okkar í spjall um sýninguna og lífið sjálft en hann starfar sem vöruhönnuður hjá Össuri.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,