18:10
Spegillinn
Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Hart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum. Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum.

Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn eru 302.688 manns. Það er kosið í 57 sveitarfélögum, kjörstaðir eru 129 og kjördeildirnar 293. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar skrifaði í grein á Vísi um helgina að ekki væri fjarri lagi að áætla að 1.400 til 1.500 manns yrðu að störfum í kjördeildum á laugardaginn. Og fjöldi þeirra sem komi með einum eða öðrum hætti að undirbúningi og framkvæmd kosninganna hlaupi á þúsundum og handtökin séu nánast óteljandi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,