23:10
Lestin
Nýtt tóma rými, Devil Wears Prada og ítök tískuprentmiðla

Popp og pólitík

Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Devil Wears Prada 2 er ein af stóru myndum vorsins, Hera Guðmundsdóttir, hönnuður og blaðamaður lestarinnar fór að sjá hana á dögunum og fór í kjölfarið að velta fyrir sér tískuprentmiðlum. Myndin er sjálfstætt framhald fyrstu myndarinnar, sem kom út fyrir tveimur áratugum, Devil Wears Prada. Sú mynd byggir á bók sem fyrrum aðstoðarkona Önnu Wintour skrifaði. Hera ræddi við Önnu Clausen sem er listrænn stjórnandi og aðjúnkt við fatahönnunardeild Listaháskólans.

Við kíkjum í heimsókn á Grandann, þar eru meðlimir tóma rýmisins í óða önn að koma sér fyrir í nýju húsnæði. Tóma rýmið var áður til húsa í Skerjafirðinum, en starfseminn sprengdi það húsnæði utan af sér. í tóma rýminu eru sviðslistir iðkaðar og er það rekið af sjálfstætt starfandi sviðslistafólki.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,