16:05
Síðdegisútvarpið
Guðmundur og Græna gangan, Krísuvíkursamtökin og sveitarsjórnarkosningar Akranes

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Við byrjuðum í Árborg þar sem bæjar- og menningarhátíðin Vor í Árborg byrjar á morgun. En það er ekki bara bæjar- og menningarhátíð því í fyrsta sinn verður börnum gert hærra undir höfði en venjulega og því verður boðið upp á sérstaka barnamenningarhátíð í leiðinni. Margrét Blöndal deildarstjóri menningar- upplýsingadeildar Árborgar var á línunni

Vegna fjölda svikamála sem Verði tryggingafélagi hafa borist tengt læknastofunni Clinic Diamond á eyjunni Gran Kanarí vill félagið vara fólk sérstaklega við að sæki þangað þjónustu. Starfsfólk læknastofunnar hefur lagt það í vana sinn að ýta að fólki ónauðsynlegri læknaþjónustu sem það rukkar fyrir himinháar upphæðir. Ágúst Mogensen hjá Verði kom til okkar.

Krýsuvíkursamtökin fagna 40 ára afmæli á morgun, sumardaginn fyrsta. Meðal annars með afmælishátíð í Hafnarborg og með tónleikum í Bæjarbíó um kvöldið. Þá verður sýndur nýr heimildarþáttur um starfsemi Krýsuvíkur á RÚV annað kvöld sem Þorsteinn J gerir. Þeir Elías Guðmundsson, forstöðumaður Krýsuvíkur, og Þorsteinn J komu til okkar.

Oddvitar flokkanna sem bjóða fram á Akranesi mætast í umræðum hér á eftir og í tilefni þess skelltum við okkur upp á Skaga! Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi ráðherra og þingkona Framsóknarflokksins, tók á móti Hólmfríi á heimili sínu. Hún sat í bæjarstjórn Akraness í ríflegan áratug og er uppfull af fróðleik um bæjarfélagið.

Flestir þekkja Guðmund Guðmundsson sem einn fremsta handboltaþjálfara landsins, en á Sumardaginn fyrsta 2026 mun hann taka til máls um annað mikilvægt málefni. Dagurinn verður tileinkaður náttúru Íslands, þar sem fólk kemur saman og gengur fyrir náttúruna og framtíðina í Grænu göngunni og Guðmundur kom til okkar og sagði frá.

Og við tökum púlsinn á tónlistarhátíðinni Heima í Hafnarfirði. Siggi Gunnars var með okkur í beinni og sagði frá stemmingunni í bænum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,