16:05
Víðsjá
Katrín Elvarsdóttir / Svipmynd

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Katrín Elvarsdóttir heillaðist af kvikmyndalistinni sem unglingur og það var sá áhugi sem leiddi hana á slóðir ljósmyndunar, en ljósmyndin hefur alla tíð verið hennar miðill í myndlistinni. Mikill Frakklands áhugi dró Katrínu á allar franskar kvikmyndahátíðir sem buðust og franska nýbylgjan og David Lynch áttu síðar eftir að hafa djúp áhrif á fagurfræði verka hennar. Hún eignaðist sína fyrstu myndavél um tvítugt og fór í framhaldinu í nám í ljósmyndun til Bandaríkjanna þar sem hún lærði einnig myndlist. Ljósmyndun hélt áfram að vera hennar miðill og í dag sér hún vinnuna með myndavélina sem framlengingu á sjálfri sér. Forvitni Katrínar og áhugi á ólíkum menningarheimum hefur dregið hana víða og veitt innblástur í gegnum árin. Við ræðum þetta allt og margt fleira í svipmynd vikunnar í Víðsjá dagsins

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,