07:03
Morgunútvarpið
Sumartískan,mismunun vegna fötlunar,framtíð golfs á höfuðborgarsvæðinu og ákvörðunarfælni

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Ákvarðanafælni er eflaust eitt af algengari vandamálum samtímans. Flest eigum við til að fresta ákvörðunum þangað til maður neyðist hreinlega til að ákvörðun en hvernig er hægt að koma í veg fyrir það? Er hægt að læra að taka ákvarðanir sem fela í sér farsæld og velsæld og þá í von um að ná árangri? Jónína Ó. Kárdal er verkefnisstjóri Tengslatorgs HÍ og kann að greiða úr upplýsingaóreiðinni. Hún kom til okkar.

Mál Sigríðar Jónsdóttur gegn Menntasjóði námsmanna vegna mismununar á grundvelli fötlunar í ráðningarferli var tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag. Meint mismunun felst í því að samkvæmt gögnum um ráðningu í opinbert starf sem hún sótti um kom í ljós að hún var bæði meira menntuð og með meira viðeigandi starfsreynslu en umsækjendurnir sem voru ráðnir í starfið. Fatlað fólk á það margt sameiginlegt að upplifa oft fordóma, mismunun og útilokun á vinnumarkaði og Sigríður kom til okkar og ræða málið ásamt Jóni Gunnari Ásbjörnssyni lögfræðingi.

Hvað verður í tísku í sumar? Hvað heldur áfram að vera í tísku frá því síðasta sumar? Og kannski mikilvægast: Hvað dettur út og verður alls ekki í tísku í sumar? Edda Gunnlaugsdóttir er umsjónarmaður tísku og förðunar á Smartlandi og hún tók sumartískuna með okkur allra 360 gráðurnar.

Golfæði ríkir á Íslandi og langir biðlistar eru inn í golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu. Kylfingar velta nú fyrir sér hvort pólitíkin sé með einhverjar hugmyndir eða lausnir og í gær fór fram fundur á vegum Golfklúbbs Reykjavíkur þar sem rætt var um framtíð golfs og útivistar í Reykjavík með oddvitum framboðana sem bjóða fram í Reykjavík. Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands og Gísli Guðni Hall, formaður GR, mættu á fundinn og ræddu við okkur um það sem fór þar fram.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,