07:03
Morgunútvarpið
Ferðaþjónustan og ESB,Krubbur,straumar og stefnur í páskaeggjum og konur á sjó

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Sjómennskan var einu sinni frátekin fyrir karla en hvernig gengur fá konur í fagið? Vigdís Jóna Árnadóttir stundar nám í vélstjórn í Tækniskólanum og sagði okkur frá því og Skrúfudeginum, sem verður haldinn á laugardaginn. Á Skrúfudeginum getur fólk mætt á svæðið og fengið að prófa skip- og vélstjórnarherma, skoða netagerð, kíkja upp í turn ásamt öðru spennandi tengt vélstjórn og skipstjórn.

Úrvalið af páskaeggjum hefur aukist jafnt og þétt síðustu ár. Einu sinni var stærð páskaeggjanna og framleiðandi eini munurinn á þeim innbyrðis en í dag er ótrúlega margar tegundir í boði ásamt því að framandi páskaegg eru flutt inn til landsins í stórum stíl. Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir, handritshöfundur og uppistandari, er á bakvið hópinn Nammitips á Facebook ásamt nöfnu sinni en þar koma saman hátt í 30 þúsund nammiunnendur. Karen er því ákveðið yfirvald þegar kemur að sælgæti hér á landi og við tókum páskaeggin allar 360 gráðurnar með henni.

Við héldum áfram að ræða um Evrópusambandi á yfirvegaðan hátt og fengum til okkar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, og fræðumst um hvernig boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna horfir við ferðaþjónustunni.

Hvernig getum við gert bæi betri fyrir börn – skapað öruggar götur, græn svæði og fjölbreytt rými til leiks og samveru? Þegar börn fá að taka þátt í að móta sitt eigið umhverfi verða lausnirnar bæði betri og mannúðlegri. Þetta er á meðal áskorana í Krubbi á Húsavík sem er hugmyndahraðhluð sem sýnir hvernig skapandi samvinna getur hrundið af stað einföldum en áhrifaríkum breytingum. Stefán Pétur, forsprakki Krubbs og lífskúnstner, var á línunni.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,