07:03
Morgunvaktin
Heimsglugginn, skógrækt og uppbygging hjúkrunarheimila

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann og fjallaði um nýja skýrslu um þróun lýðræðis í heiminum. Frjálslynt lýðræði er aðeins til staðar í litlum hluta heimsins, og öfugþróun er að verða. Bogi ræddi líka um grænlensk stjórnmál og bandarísk.

Skúli Skúlason vistfræðingur og fyrrverandi rektor Háskólans á Hólum var í símanum frá ráðstefnu helstu sérfræðinga landsins í skógrækt. Hann sagði okkur frá tegundavali í skógrækt og ýmsu athyglisverðu.

Í síðasta hluta þáttarins var rætt um áform stjórnvalda um mikla uppbyggingu á hjúkrunarrýmum á næstu árum. María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu, ræddi þau og um stöðuna eins og hún er í dag. Það er ekki nóg að byggja ný rými, það þarf að huga að þeim sem fyrir eru og mönnun verður ein stærsta áskorunin, rétt eins og hún er nú þegar.

Tónlist:

Todmobile - Brúðkaupslagið.

Sara Mjöll Magnúsdóttir - Heima.

Náttúra - My Magic Key.

Silva and Steini - Room With A View.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,