Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Á Alþingi eru nú til meðferðar tvö mál er mæla fyrir um breytingar á lögum um þjóðfánann. Annað fjallar um rýmkun á fánatíma, hitt um að ekki séu dregnir fánar annarra þjóða á stöng við opinberar byggingar nema við tiltekin tilefni. Við fjölluðum um fánann - ekki mikið um þessi þingmál en aðeins þó; aðallega heyrðum við um nýja könnun á viðhorfi fólks til þjóðfánans. Átta af hverjum tíu finna til stolts þegar þeir sjá íslenska fánann.
Fish & Chips - fiskur og franskar - er mikill uppáhaldsmatur margra, sérstaklega Breta, og hefur lengi verið. Og þótt íslenskir sjómenn hafi lengi séð Bretum fyrir hráefni í þennan vinsæla rétt hefur ekki skapast mikil hefð fyrir fiski og frönskum hér. En það kann að breytast; við Mývatn er besti slíki veitingastaður í veröldinni, utan Bretlands. Við fjölluðum um fisk og franskar, Fish & Chips.
Í spjalli um sígilda tónlist fjallaði Magnús Lyngdal um hljómsveitarstjórann Herbert von Karajan. Við höfum síðustu misseri heyrt óteljandi brot úr verkum þar sem hann hefur haldið um tónsprotann en lítið fjallað um hann sjálfan og ævistarf hans – og nú var bætt úr því.
Tónlist:
Elvis Presley - In the ghetto.
Elvis Presley - Love me tender.
Chuck Berry - Fish & chips.
Sigurður Guðmundsson og Memfismafían - Lady fish and chips.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um búlgarska rithöfundinn og andófsmanninn Georgi Markov, sem lést í Lundúnum 1978 í kjölfar þess að hann var stunginn með regnhlíf.

Veðurstofa Íslands.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Lagalistinn:
Jón Kr. Ólafsson - Haustkvöld í skógi.
One Direction - One thing.
Sigurður Ólafsson Söngvari, Sigurveig Hjaltested - Blikandi haf.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Blíðasti blær.
Ríó tríó - Guð, hvað ég er góður.
Óskar Pétursson - Ég sé Akureyri.
Villi Valli - The nearness of you.
Jóhann Vilhjálmsson Tónlistarm. - Ég sé Akureyri.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Einu sinni var.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Pínu sein.
Sunna Gunnlaugsdóttir - Where the winds and waters call.
Jón Kr. Ólafsson - Haustkvöld í skógi.
Ríó tríó - Guð, hvað ég er góður.
One Direction - One thing.
Villi Valli - The nearness of you.
Sigurður Ólafsson Söngvari, Sigurveig Hjaltested - Blikandi haf.
Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar - Blíðasti blær.
Óskar Pétursson, Jóhann Vilhjálmsson Tónlistarm. - Ég sé Akureyri.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Einu sinni var.
S.H. Draumur - Grænir frostpinnar.
Pink Floyd - Alan's psychedelic breakfast.
Jones, Spike, Jones, Spike and his City Slickers - Dance of the hours.
Kira Kira - Blíða, staðfasta afl.
Elínborg Kristjánsdóttir, Jón Óskar Guðlaugsson, Lúðrasveit Þorlákshafnar - Í fjarlægð.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn Stefán Hilmarsson sem verður sextugur í sumar og af því tilefni syngur hann á tónleikum í Hörpu þar sem mun syngja sín þekktustu lög enda hefur ferill hans verið langur og farsæll. Við fórum með honum yfir ferilinn, ferðumst aftur í tímann, hvar og hvernig söngurinn kom inn í hans líf, stikluðum svo á stóru í gegnum lífið fram til dagsins í dag.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn talaði Frú Sigurlaug við okkur um steikarpoka, aðallega í samhengi við að elda kjúkling.
Tónlist í þættinum í dag
Í hangsinu / Latínudeildin (Ingvi Þór Kormáksson, texti Anton Helgi Jónsson)
The Fool / Lee Ann Womack (Charles Stefl, Eugene Ellsworth & Maria Cannon-Goodman)
Heim / Birgir (Birgir Steinn Stefánsson og Andri Þór Jónsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
500 börn sátu heima í dag því skólahald var fellt niður í Ölduselsskóla í Reykjvaík. Verktaki fjarlægði öryggisgirðingar og innanhússlokanir eftir að samningi við hann var sagt upp.
Hækkun matvöruverðs á fyrstu tveimur mánuðum ársins er töluvert meiri en í fyrra. Hagfræðingur hjá ASÍ segir hækkanir frá birgjum aðeins skýra þetta að hluta.
Pakistanski herinn gerði í nótt loftárásir á Kabúl, höfuðborg Afganistans. Það er til marks um mikla stigmögnun að ráðist sé á skotmörk í höfuðborg landsins.
Talsverð röskun var á samgöngum vegna veðurs í gær. Fjallvegir hafa víðast hvar verið opnaðir aftur og millilandaflug er á áætlun en enn er þung færð á Fjarðarheiði og Reykjanesbraut.
Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tekur í hádeginu afstöðu til tillögu um að bjóða ekki aftur fram til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum eftir átta ár í meirihluta. Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðismanna rennur út síðar í dag.
Flokkur Græningja hreppti þingsæti Verkamannaflokksins í aukakosningum í Bretlandi í gær. Sögulegur ósigur flokksins er martröð fyrir Keir Starmer.
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist greina mikinn hug meðal fjölskyldufólks að snúa til baka í bæjarfélagið. Til stendur að ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla í bænum í haust.
ÍR-ingar tryggðu sér í gærkvöld sæti í bikarúrslitum karla í handbolta þar sem þeir mæta Haukum og Ísland mætir Litáen í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM karla í körfubolta.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í dag beinum við sjónum okkar að hugmyndinni um fegurðarforskot í ljósi mikillar umræðu um aukna áherslu á útlit, sem hefur birst okkur í fréttum um peptíðanotkun og looksmaxxing hugmyndafræði, sem gengur út á að hámarka eigin fegurð.
Rætt er við Andrés Jónsson, almannatengil, og Þóru H. Christiansen, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Lagalisti:
Martinez, Pedrito - Carga Pesada.
Listafólk frá Venezúela - El cruzao.
Ma, Yo-Yo, Gismonti, Egberto - Salvador.
Shankar, Ravi - Return from the fair.
Banna, Rim - The dream.
Rimitti, Cheikha - Nouar.
Alrafedine Group - Yalwalad Yabnia.
Ejigayehu "Gigi" Shibabaw, Abyssinia Infinite - Gela.
Teta - Inay aka raha iny.
Bonga - Marika.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 22. janúar 2017: Yfirskrift þáttarins í dag er aldur. Þessi tími sem okkur er úthlutað hér á jörð og hvernig við nýtum hann, hvernig við þroskumst og þróumst. Við fáum innslög bæði frá Akureyri annarsvegar og hins vegar Reykjavík þar sem rætt er við unga sem aldna. Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Sunna Valgerðardóttir og Ágúst Ólafsson.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Í Endastöðinni er rætt um íslensku kvikmyndina Röskun, örlög MTV, bækur og lestrarátak og fleira. Gestir þessa vikuna eru Heiðar Ingi Svansson framkvæmdastjóri Iðnú bókaútgáfu, Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarkona og forseti Bandalags íslenskra listamanna og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir kvikmyndagagnrýnandi hjá Morgunblaðinu. Umsjón hefur Jóhannes Ólafsson.
Fréttir
Fréttir
Mikilvægt er að bregðast hratt við til að létta á fangelsum landsins, segir dómsmálaráðherra, en þar eru margir útlendingar sem bíða brottvísunar. Til skoðunar er að senda fanga til heimalanda sinna.
Samgönguráðherra telur tilboð Icelandair í Ísafjarðarflug vera áhyggjuefni. Félagið átti eina tilboðið í útboði Vegagerðarinnar - en það var rúmlega tvisvar sinnum hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Landspítali kaupir orðið ítalska viðbitið Bertolli í stað hins íslenska Smjörva við heldur dræmar undirtektir netverja. Næringarfræðingur segir hvort tveggja gott í hófi og óhætt að fá sér eins og ofan á eina brauðsneið.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Stjórnmálaferill fólks er að verða styttri og styttri og það færist í vöxt að flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni.
Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins, þar á meðal höfuðborginni Kabúl. Loftárásirnar voru viðbrögð Pakistana við samstilltum árásum afganskra hermanna á pakistanskar varðstöðvar í sex landamærahéruðum í gær. Þær árásir voru aftur viðbrögð talibanastjórnarinnar við loftárásum Pakistana á meintar bækistöðvar hryðjuverkasveita hinumegin landamæranna - og svo koll af kolli.
Leiðtogar Evrópusambandsins og níu þjóðríkja, þar á meðal Íslands, lögðu land undir fót á mánudaginn til að vera viðstödd atburði í höfuðborg Úkraínu á þriðjudag; daginn þegar rétt fjögur ár voru liðin frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst. Björn Malmquist fréttamaður skráði þessa ferð í sögubækur samtímans.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög frá ýmsum tímum sem hafa annaðhvort verið samin við ljóð eða þá að lagasmiðir hafa leitað til skálda um að yrkja söngkvæði. Lögin í þættinum eru Lítill fugl, ljóðið eftir Örn Arnarson, í túlkun Ernu Gunnarsdóttur og Íslenskt ástarljóð, ljóðið eftir Vilhjálm frá Skáholti, í túlkun Helga Björnssonar, bæði lögin eftir Sigfús Halldórsson. Herbergið mitt og Fallvölt rós, ljóðin eftir Vilhjálm frá Skáholti og lögin eftir Arnar Sigurbjörnsson. Brimkló annast flutning laganna. Jesús Kristur og ég, ljóðið eftir Vilhjálm frá Skáholti, lagið eftir Magnús Eiríksson, Mannakorn flytur. Vorkvæði um Ísland eftir Jón Óskar, Allt verður minning þín, ljóð eftir Vigdísi Grímsdóttur, Karl Tómasson flytur bæði lögin. Þegar ég praktíseraði og Kvæðið um pennann, bæði ljóðin eftir Tómas Guðmundsson og lögin eftir Þormar Ingimarsson. Pálmi Gunnarsson syngur fyrra lagið en Ríó tíó flytur seinna lagið. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt.
Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar.
Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn Stefán Hilmarsson sem verður sextugur í sumar og af því tilefni syngur hann á tónleikum í Hörpu þar sem mun syngja sín þekktustu lög enda hefur ferill hans verið langur og farsæll. Við fórum með honum yfir ferilinn, ferðumst aftur í tímann, hvar og hvernig söngurinn kom inn í hans líf, stikluðum svo á stóru í gegnum lífið fram til dagsins í dag.
Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn talaði Frú Sigurlaug við okkur um steikarpoka, aðallega í samhengi við að elda kjúkling.
Tónlist í þættinum í dag
Í hangsinu / Latínudeildin (Ingvi Þór Kormáksson, texti Anton Helgi Jónsson)
The Fool / Lee Ann Womack (Charles Stefl, Eugene Ellsworth & Maria Cannon-Goodman)
Heim / Birgir (Birgir Steinn Stefánsson og Andri Þór Jónsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Í Endastöðinni er rætt um íslensku kvikmyndina Röskun, örlög MTV, bækur og lestrarátak og fleira. Gestir þessa vikuna eru Heiðar Ingi Svansson framkvæmdastjóri Iðnú bókaútgáfu, Jóna Hlíf Halldórsdóttir myndlistarkona og forseti Bandalags íslenskra listamanna og Díana Sjöfn Jóhannsdóttir kvikmyndagagnrýnandi hjá Morgunblaðinu. Umsjón hefur Jóhannes Ólafsson.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Blaðamaðurinn Aðalheiður Ámundadóttir birti í gær grein á Gímaldinu þar sem hún velti fyrir sér gagnrýni á fjölmiðla fyrir að fjalla um viðkvæm mál. Umfjöllun RÚV um Margréti Löf, sem situr í fangelsi fyrir að myrða föður sinn, hefur vakið mikla athygli og hörð viðbrögð. Í grein sinni segir Aðalheiður meðal annars að fjölmiðlar hafi hlutverki að gegna við að lýsa upp erfið mál, jafnvel þótt í því felist að birta viðtal við morðingja. Við heyrðum í Aðalheiði.
Erlingur Jóhannsson, prófessor í Íþrótta og heilsufræði, kom til okkar í vikunni og sagði okkur af hverju Norðmenn eru svona fáránlega góðir í íþróttum. Hann sagði meðal annars að það væri fáránleg nálgun að byggja fjáröflum félaganna á því að láta mjög unga krakka keppa í fótbolta. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ færeysku úrvalsdeildinni lagði orð í belg og sagði fáránlega nálgun að segja að sé fáránleg nálgun í íslensku íþróttastarfi. Benti hann á góðan árangur Íslendinga í fótbolta og tóku margir úr fótboltahreyfingunni undir það. Við heyrðum í Sigga Ragga.
Glacier Fight Night er viðburður í blönduðum bardagalistum þar sem fremsta bardagafólk þjóðarinnar mætir öflugum andstæðingum víðsvegar að úr heiminum í Framheimilinu annað kvöld. Reykjavík MMA og Mjölnir tefla fram nokkrum af sínum bestu bardagamönnum til að mæta gestunum í níu æsispennandi bardögum. Við fengum til okkar Bjarka Þór Pálsson frá Reykjavík MMA og bardagakonuna Heklu Maríu Friðriksdóttur til að ræða þetta en hún mætir þýska Evrópumeistaranum Kathrin Haberle á viðburðinum.
Tíðindarík vika að baki og við þurftum að fara hratt yfir sögu til að koma öllu að. VIð kölluðum í Hraðfréttabræðurna Benna og Fannar til að fara yfir fréttir vikunnar. Þeir ætla líka að stíga á svið í Austurbæ í maí og taka upp lifandi útgáfu af hlaðvarpinu Hlaðfréttir.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Andri er að kljást við flensu og hoppaði Doddi aftur í sætið hans.
Lagalistinn var ekki að verri endanum, besta íslenska lag aldarinnar!
Lagalisti dagsins
Króli, USSEL, JóiPé - 7 Símtöl.
Valdimar - Tenerife.
YOUSSOU N´DOUR & NENEH CHERRY - 7 Seconds.
Mars, Bruno - I Just Might.
Elín Hall - Tachylite.
Styles, Harry - Aperture.
LOVERBOY - Working for the Weekend (80).
Bríet - Gleymmérei.
THE CURE - Friday I'm In Love.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
GLOWORM - Carry me home.
Kings of Leon - To Space.
Buffalo Traffic Jam - Fools Gold.
Warmland - All for All.
AMABADAMA - Gangá eftir þér (Úr leiksýningunni Úti að aka).
SIGRÚN STELLA - Circles.
Robyn - Talk To Me.
Ásgeir Trausti Einarsson - Against the Current.
Addison Rae - Headphones On.
sombr - Homewrecker.
Kahan, Noah - The Great Divide.
COOLIO - Gangsta's paradise.
HJÁLMAR - Glugginn.
IAN BROWN - Golden gaze.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
QUEEN - Radio Ga Ga.
RAGGI BJARNA OG LAY LOW - Þannig týnist tíminn.
Berndsen & Bubbi - Úlfur Úlfur.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Undir Þínum Áhrifum.
DIKTA - Just Getting Started.
Svavar Knútur Kristinsson - Refur.
BAGGALÚTUR - Brostu.
MAUS - Musick.
KK - Hafðu engar áhyggjur.
PRINS PÓLÓ - París Norðursins.
Una Torfadóttir - Fyrrverandi.
VALDIMAR - Ryðgaður dans.
MUGISON - Stingum Af.
BOTNLEÐJA - Slóði.
Fjallabræður, Hljómsveit, Magnús Þór Sigmundsson, Jónas Sigurðsson Tónlistarm. - Hafið eða fjöllin.
ÁSGEIR TRAUSTI - Dýrð í dauðaþögn.
LJÓTU HÁLFVITARNIR - Dansitrans.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
500 börn sátu heima í dag því skólahald var fellt niður í Ölduselsskóla í Reykjvaík. Verktaki fjarlægði öryggisgirðingar og innanhússlokanir eftir að samningi við hann var sagt upp.
Hækkun matvöruverðs á fyrstu tveimur mánuðum ársins er töluvert meiri en í fyrra. Hagfræðingur hjá ASÍ segir hækkanir frá birgjum aðeins skýra þetta að hluta.
Pakistanski herinn gerði í nótt loftárásir á Kabúl, höfuðborg Afganistans. Það er til marks um mikla stigmögnun að ráðist sé á skotmörk í höfuðborg landsins.
Talsverð röskun var á samgöngum vegna veðurs í gær. Fjallvegir hafa víðast hvar verið opnaðir aftur og millilandaflug er á áætlun en enn er þung færð á Fjarðarheiði og Reykjanesbraut.
Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tekur í hádeginu afstöðu til tillögu um að bjóða ekki aftur fram til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum eftir átta ár í meirihluta. Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðismanna rennur út síðar í dag.
Flokkur Græningja hreppti þingsæti Verkamannaflokksins í aukakosningum í Bretlandi í gær. Sögulegur ósigur flokksins er martröð fyrir Keir Starmer.
Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist greina mikinn hug meðal fjölskyldufólks að snúa til baka í bæjarfélagið. Til stendur að ráða skólastjóra til að stýra samreknum leik- og grunnskóla í bænum í haust.
ÍR-ingar tryggðu sér í gærkvöld sæti í bikarúrslitum karla í handbolta þar sem þeir mæta Haukum og Ísland mætir Litáen í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM karla í körfubolta.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Föstudagur í Popplandi sem var gestkvæmt, Ásta og Gosi eru á litlu tónleikaferðalagi og sögðu frá. Tónleikahald framundan tekið fyrir, Mobb Deep og Subterranean, plata vikunnar á sínum stað og mikil stemning.
Inspector Spacetime - People in the Video.
DAVID BOWIE - Modern Love.
Alorian - Týnda kynslóðin.
PÁLMI GUNNARSSON - Þorparinn.
Baldur Skúlason, Erla Hlín Guðmundsdóttir Jörgensen - Ber.
Snocaps - Heathcliff.
PINK - Trouble.
GEORGE HARRISON - My Sweet Lord.
Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
Krummi - Smile till its ends.
Bríet - Gleymmérei.
Peter, Paul and Mary - Leaving On a Jet Plane.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature.
Bubbi Morthens, Kristmundur Axel - Kominn heim.
PÁLL ÓSKAR - Líttu upp í ljós.
Bailey, Elles - Growing Roots.
STUÐMENN - Komdu Með.
200.000 NAGLBÍTAR - Hæð Í Húsi.
Tame Impala - Dracula.
Robyn - Talk To Me.
Lykke Li - Lucky Again.
Larsson, Zara - Midnight Sun.
Scaggs, Boz - Lowdown.
Portugal. The man - Tanana.
Hjálmar - Upp í sveit.
Gosi - Ekki spurning.
Ásta, Salóme Katrín - Kaffi hjá Salóme (ásamt Salóme Katrínu).
Sigur Rós - Inní mér syngur vitleysingur.
Dean, Olivia - So Easy (To Fall In Love).
Mars, Bruno - I Just Might.
Memfismafían - Syngdu.
Chappell Roan - Pink Pony Club.
BECK - Up All Night.
EMMSJÉ GAUTI - Sigurjón Digri.
Mob Deep - Shook Ones.
SUBTERREAN - My Style is Phreaky.
JOEY CHRIST - Trip.
OUTKAST - Hey Ya!.
WARMLAND - All for all.
STEPHEN SANCHEZ - SWEET LOVE.
DIGITAL ÍSLAND - Eh plan?
SISTER SLEDGE - Thinking of you.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í gær ræddum við öryggi orkuinnviða við framkvæmdarstjóra Samorku en þjóðir Evrópu hafa verið að fara yfir öryggismál hjá sér í kjölfar breyttrar heimsmyndar. Rauði krossinn á Íslandi hefur lengi hvatt íbúa til að útbúa svokallaðan viðlagakassa. Aðalheiður Jónsdóttir, teymisstjóri Neyðarvarna hjá Rauða krossinum rifjaði upp með okkur hvað þarf að vera í kassanum.
Borgarlínan er stöðugt í umræðunni á höfuðborgarsvæðinu og verður sjálfsagt áfram. Sitt sýnist hverjum um kostnaðinn og leiðina sem á að fara. Nú í vikunni skrifuðu Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og Runólfur Ágústson grein og birtu á Vísi undir yfirskriftinni “Lest í stað Borgarlínu”. Runólfur hefur áður komið að umræðu um lestar á Íslandi. Hann útskýrði betur hvað þeir þremenningar eru að gera tillögur um.
Háskóladagurinn 2026 mun fara fram í Reykjavík á laugardaginn. Í kjölfarið munu svo háskólar landsins ferðast á þrjá staði á landsbyggðinni að kynna námsframboð og námsleiðir sínar. Þau Ásrún Aldís Hreinsdóttir, nemandi í Háskóla Íslands og James Einar Becker, kynningarstjóri hjá Landbúnaðarháskóla Íslands komu til okkar.
Tónlistarkonan Ragna Kjartansdóttir, betur þekkt sem Cell7, er ein af frumkvöðlum hip-hop senunnar á Íslandi. Hún fann sína hillu í tónlist 12 ára gömul og er tónlistin enn hennar helsta tjáningarform en hún hefur gefið út þrjár stórar plötur undir nafninu Cell7 og sú nýjasta kom út í fyrra. Ragna var meðlimur í Subterranean en fyrr í dag bárust þau tíðindi að sveitin kæmi saman á sviði í fyrsta sinn eftir áratugahlé. Ragna var föstudagsgestur hjá okkur.
Vegagerðin kynnti afrakstur tilboða í áætlunarflug til Ísafjarðar í gær og kom þá í ljós að aðeins eitt tilboð hafði borist. Það tilboð var frá Icelandair og reyndist vera tæplega 2,2 milljörðum hærra en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Ekki hefur komið fram hver næstu skref verða og vænta má þess að uggur sé í Vestfirðingum vegna þessa. Bæjarstjóri Bolungarvíkur, Jón Páll Hreinsson var á línunni hjá okkur og við spurðum hann um hljóðið í heimafólki.
Hvað er fram undan í helstu bolta íþróttum helgarinnar? Einar Örn Jónsson leiddi okkur í gegnum það.
Hin sívinsæla Vika með Gísla Marteini verður vitanlega á sínum stað í kvöld, sum vilja meina að það séu alltaf sömu gestir í sófanum en nú verður ekki einu sinni sami rass í sæti umsjónarmanns. Í kvöld verður það nefnilega Vikan með Berglindi Festival. Berglind kíkti við hjá okkur.
Fréttir
Fréttir
Mikilvægt er að bregðast hratt við til að létta á fangelsum landsins, segir dómsmálaráðherra, en þar eru margir útlendingar sem bíða brottvísunar. Til skoðunar er að senda fanga til heimalanda sinna.
Samgönguráðherra telur tilboð Icelandair í Ísafjarðarflug vera áhyggjuefni. Félagið átti eina tilboðið í útboði Vegagerðarinnar - en það var rúmlega tvisvar sinnum hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Landspítali kaupir orðið ítalska viðbitið Bertolli í stað hins íslenska Smjörva við heldur dræmar undirtektir netverja. Næringarfræðingur segir hvort tveggja gott í hófi og óhætt að fá sér eins og ofan á eina brauðsneið.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Stjórnmálaferill fólks er að verða styttri og styttri og það færist í vöxt að flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni.
Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins, þar á meðal höfuðborginni Kabúl. Loftárásirnar voru viðbrögð Pakistana við samstilltum árásum afganskra hermanna á pakistanskar varðstöðvar í sex landamærahéruðum í gær. Þær árásir voru aftur viðbrögð talibanastjórnarinnar við loftárásum Pakistana á meintar bækistöðvar hryðjuverkasveita hinumegin landamæranna - og svo koll af kolli.
Leiðtogar Evrópusambandsins og níu þjóðríkja, þar á meðal Íslands, lögðu land undir fót á mánudaginn til að vera viðstödd atburði í höfuðborg Úkraínu á þriðjudag; daginn þegar rétt fjögur ár voru liðin frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst. Björn Malmquist fréttamaður skráði þessa ferð í sögubækur samtímans.

Fréttastofa RÚV.
Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Tveir af þeim stóru hefðu átt afmæli í vikunni væru þeir ekki fallnir frá. En það eru þeir George Harrison (25. febrúar) og Johnny Cash (26. febrúar). Og voru þeir þar af leiðandi menn kvöldsins.
I Got a Woman - KK
Cats In The Cradle - Johnny Cash
Dig For Fire - Pixies
Something - The Beatles
Pale Blue Eyes - The Velvet Underground
Long Cool Woman (In a Black Dress) - The Hollies
All I Want Is You - Roxy Music
Friction - Television
As The Crow Flies - The Animals
Lazy Daisy - Spilverk Þjóðanna
Ballad of Sir Frankie Crisp (Let it Roll) - George Harrison
Mother - John Lennon
Big River - Johnny Cash
City Of New Orleans - Arlo Guthrie
Brown-eyed Girl - The Golliwogs
Give Me Love (Give Me Peace On Earth) - George Harrison
Á skotbökkum - Stuðmenn
(Ghost) Riders In The Sky - Johnny Cash
Day Of The Lords - Joy Divison
What We All Want - Gang Of Four
Spanish Bombs - The Clash
Blow Away - George Harrison
That's Entertainment - The Jam
Manstu - Bubbi
When We Was Fab - George Harrison
Just Another Day - Oingo Boingo
Highwayman - The Highwaymen
White Wedding - Billy Idol
She Sells Sanctuary - The Cult
Dancing in the Street - David Bowie & Mick Jagger
Don't You (forget About Me) - Simple Minds
Eighties - Killing Joke
Bring On The Dancing Horses - Echo and the Bunnymen
In Between Days - The Cure
Handle With Care - Traveling Wilburys
Orange Crush - R.E.M.
Where Is My Mind? - Pixies
Ring Of Fire - Johnny Cash
Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.
Við héldum okkur á dansklúbbum borgarinnar á tíunda áratug síðustu aldar.
Einn heitasti plötusnúður landsins í þá daga, Kiddi Bigfoot bauð upp á gæða dansiballasyrpu með því öllu ferskasta frá Astró og Skuggabarmum.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-02-27
TORI AMOS - Professional widow (It's got to be big) (Armand's Star Trunk Funkin' radio mix).
LITLA HAFMEYJAN - JB OUHH.
BUCKETHEADS - The bomb! (These sounds fall into my mind) (Kenny's remix).
PRODIGY - Breathe.
FUTURE SOUND OF LONDON - Papa New Guinea.
FELIX - Don't You Want Me (Hooj Mix Edit).
MOBY - Go (Radio edit).
LITLA HAFMEYJAN - JB OUHH LONG.
KLF - Last Train To Trancentral (Live From The Lost Continent).
Faithless - God is a DJ.
SNAP! - Exterminate.
DARUDE - Sandstorm.
ENERGY 52 - Cafe del mar.
N-TRANCE - Set You Free.
UNDERGROUND FAMILY - Snow Prinsess.
OPUS III - It's A Fine Day.
ORBITAL - CHIME.
Age of Love, The - The age of love.