15:03
Sögur af landi: Endurlit
38. þáttur

Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.

Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir

Þáttur frá 22. janúar 2017: Yfirskrift þáttarins í dag er aldur. Þessi tími sem okkur er úthlutað hér á jörð og hvernig við nýtum hann, hvernig við þroskumst og þróumst. Við fáum innslög bæði frá Akureyri annarsvegar og hins vegar Reykjavík þar sem rætt er við unga sem aldna. Dagskrárgerð: Dagur Gunnarsson, Sunna Valgerðardóttir og Ágúst Ólafsson.

Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 47 mín.
,