Fjórar klukkustundir og fimmtán mínútur á skilunardeild Landspítala
Í dag stöndum við vaktina á skilunardeild Landspítala. Þetta er svolítið sérstök deild, lítið þekkt nema meðal þeirra sem tengjast henni með beinum hætti. Skjólstæðingar skilunardeildar verja hér miklum tíma og dvölin hefur oft víðtæk áhrif á líf þeirra. Við ræðum við starfsfólkið á deildinni og fólkið sem ver fjórum klukkustundum og fimmtán mínútum tengt við blóðskilunarvélar.