18:00
Kvöldfréttir útvarps
„Ætlum að senda þessa menn úr landi,“ segir dómsmálaráðherra

Fréttir

Fréttir

Mikilvægt er að bregðast hratt við til að létta á fangelsum landsins, segir dómsmálaráðherra, en þar eru margir útlendingar sem bíða brottvísunar. Til skoðunar er að senda fanga til heimalanda sinna.

Samgönguráðherra telur tilboð Icelandair í Ísafjarðarflug vera áhyggjuefni. Félagið átti eina tilboðið í útboði Vegagerðarinnar - en það var rúmlega tvisvar sinnum hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.

Landspítali kaupir orðið ítalska viðbitið Bertolli í stað hins íslenska Smjörva við heldur dræmar undirtektir netverja. Næringarfræðingur segir hvort tveggja gott í hófi og óhætt að fá sér eins og ofan á eina brauðsneið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,