07:03
Morgunútvarpið
Fréttir vikunnar,góður árangur í knattspyrnu og áhugaverð grein í Gímaldinu

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Blaðamaðurinn Aðalheiður Ámundadóttir birti í gær grein á Gímaldinu þar sem hún velti fyrir sér gagnrýni á fjölmiðla fyrir að fjalla um viðkvæm mál. Umfjöllun RÚV um Margréti Löf, sem situr í fangelsi fyrir að myrða föður sinn, hefur vakið mikla athygli og hörð viðbrögð. Í grein sinni segir Aðalheiður meðal annars að fjölmiðlar hafi hlut­verki að gegna við að lýsa upp erfið mál, jafnvel þótt í því felist að birta viðtal við morðingja. Við heyrðum í Aðalheiði.

Erlingur Jóhannsson, prófessor í Íþrótta og heilsufræði, kom til okkar í vikunni og sagði okkur af hverju Norðmenn eru svona fáránlega góðir í íþróttum. Hann sagði meðal annars að það væri fáránleg nálgun að byggja fjáröflum félaganna á því að láta mjög unga krakka keppa í fótbolta. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ færeysku úrvalsdeildinni lagði orð í belg og sagði fáránlega nálgun að segja að sé fáránleg nálgun í íslensku íþróttastarfi. Benti hann á góðan árangur Íslendinga í fótbolta og tóku margir úr fótboltahreyfingunni undir það. Við heyrðum í Sigga Ragga.

Glacier Fight Night er viðburður í blönduðum bardagalistum þar sem fremsta bardagafólk þjóðarinnar mætir öflugum andstæðingum víðsvegar að úr heiminum í Framheimilinu annað kvöld. Reykjavík MMA og Mjölnir tefla fram nokkrum af sínum bestu bardagamönnum til að mæta gestunum í níu æsispennandi bardögum. Við fengum til okkar Bjarka Þór Pálsson frá Reykjavík MMA og bardagakonuna Heklu Maríu Friðriksdóttur til að ræða þetta en hún mætir þýska Evrópumeistaranum Kathrin Haberle á viðburðinum.

Tíðindarík vika að baki og við þurftum að fara hratt yfir sögu til að koma öllu að. VIð kölluðum í Hraðfréttabræðurna Benna og Fannar til að fara yfir fréttir vikunnar. Þeir ætla líka að stíga á svið í Austurbæ í maí og taka upp lifandi útgáfu af hlaðvarpinu Hlaðfréttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,