07:03
Morgunútvarpið
Forvarnir, stríðsrekstur Rússa, íslenskunám, náttúruvá og rýmingar, mannanafnanefnd

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Lovísa Ólafsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS kom til okkar og ræddi forvarnir og vinnuslys, en að minnsta kosti 16 manns slasa sig í vinnunni á degi hverjum hér á landi samkvæmt tölum frá embætti landlæknis. Það á ekki að geta gerst að fólk fari í vinnuna og komi ekki aftur segir Lovísa í nýlegri grein.

Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og sjálfstætt starfandi sérfræðingur í alþjóða- og öryggismálum, var á línunni frá Lundúnum. Við ræddum umræðu um að Eystrasaltsríkin búi sig nú undir innrás Rússa.

Eftir því sem þátttaka innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði eykst verður þörfin á markvissri íslenskukennslu sífellt meiri. Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Mími símenntun stendur fyrir ráðstefnu um þessi mál á fimmtudaginn kemur og þar verður einblínt á helstu áskoranir samfélagsins þegar kemur að inngildingu innflytjenda og því að kenna/læra nýtt tungumál í nýju landi. Vanessa Monika Isenmann, verkefnastjóri hjá Mími kíkti til okkar og sagði okkur meira.

Í gærkvöldi voru viðvörunarflautur í Grindavík og Bláa lóninu prófaðar, en talið er að eldgos gæti hafist í vikunni með litlum fyrirvara. Við töluðum við Friðrik Einarsson, framkvæmdastjóra Northern Light Inn hótelsins við Bláa lónið, um ráðstafanir, mögulega rýmingu og áhrif þess sem hefur verið að gerast á Reykjanesskaga á bókanir.

Við ræddum mannanafnafrumvarp Guðbrands Einarssonar, þingmanns Viðreisnar, sem miðar meðal annars að því að mannanöfn takmarki ekki persónufrelsi fólks. Í umsögn Þjóðskrár sem birt var í gær er gagnrýnt að einstaklingum verði heimilt að skipta oft um nafn og bent á að ekki gangi að óbreyttu að leggja niður ákvæði nú­gild­andi laga um tak­mörk­un á fjölda nafna þar sem stafabil í kerfi Þjóðskrár bjóði ekki upp á slíkt.

Tónlist:

Ragnheiður Gröndal - Ást.

Declan McKenna - Slipping through my fingers.

Fleetwood Mac -Hold me.

GDRN - Parísarhjól.

Baggalútur og Una Torfa - Casanova.

Oasis - Little by little.

Hipsumhaps - Fyrsta ástin.

Memfismafían, Sigurður Guðmundsson og Jón Gnarr - Mannanafnanefnd.

David Bowie - Wild is the wind.

Var aðgengilegt til 26. febrúar 2025.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,