06:50
Morgunvaktin
Salan á Íslandsbanka, endurheimt votlendis og lögleiðing kannabis í Þýskalandi
Morgunvaktin

Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka; rúmlega 40 prósent hlutafjár. Stefnt er að því að allir fái að kaupa – ekki sérvalinn hópur eins og síðast. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir söluna. Við ræddum líka um Alvotech sem loksins fær að selja samheitalyf sitt í Bandaríkjunum og fórum yfir stöðu mála í kjaraviðræðunum.

Vernd og endurheimt votlendis er eitt af áhersluatriðum í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Á föstudag fengum við til okkar líffræðing sem sagði frá niðurstöðum rannsóknar sem bendir til þess að smærri votlendissvæði hafi ekki síður þýðingu fyrir lífríkið en stór svæði. Við héldum áfram að fjalla um votlendi og til okkar kom Ágústa Helgadóttir líffræðingur og verkefnastjóri endurheimtar votlendis hjá Landi og skógi til okkar.

Arthur Björgvin Bollason var með okkur í dag og fjallaði meðal annars um lögleiðingu kannabisneyslu í Þýskalandi, heimspekinginn Kant og áhuga á Íslandi og því sem íslenskt er á Norðursjávarströndum Þýskalands.

Hjarta mítt - Eivör Pálsdóttir.

Heimaslóð - Alfreð Washington Þórðarson, Eyjaliðið, Gísli Helgason, Arnþór Helgason, Ási í Bæ.

Klau og Klaus - An der Nordseekuste.

Tarazina - Setona.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,