Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að selja eftirstandandi hlut ríkisins í Íslandsbanka; rúmlega 40 prósent hlutafjár. Stefnt er að því að allir fái að kaupa – ekki sérvalinn hópur eins og síðast. Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, fór yfir söluna. Við ræddum líka um Alvotech sem loksins fær að selja samheitalyf sitt í Bandaríkjunum og fórum yfir stöðu mála í kjaraviðræðunum.
Vernd og endurheimt votlendis er eitt af áhersluatriðum í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Á föstudag fengum við til okkar líffræðing sem sagði frá niðurstöðum rannsóknar sem bendir til þess að smærri votlendissvæði hafi ekki síður þýðingu fyrir lífríkið en stór svæði. Við héldum áfram að fjalla um votlendi og til okkar kom Ágústa Helgadóttir líffræðingur og verkefnastjóri endurheimtar votlendis hjá Landi og skógi til okkar.
Arthur Björgvin Bollason var með okkur í dag og fjallaði meðal annars um lögleiðingu kannabisneyslu í Þýskalandi, heimspekinginn Kant og áhuga á Íslandi og því sem íslenskt er á Norðursjávarströndum Þýskalands.
Hjarta mítt - Eivör Pálsdóttir.
Heimaslóð - Alfreð Washington Þórðarson, Eyjaliðið, Gísli Helgason, Arnþór Helgason, Ási í Bæ.
Klau og Klaus - An der Nordseekuste.
Tarazina - Setona.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Heilaheilsa og þjálfun hugans er nafn á námskeiði sem Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ stýrir á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands. Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf og markmiðið er að þáttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugræna styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu. Ólína kom í þáttinn og sagði okkur meira frá heilaheilsu í dag.
„Hvernig varð ég til?“ er bók fyrir öll börn sem verða til með aðstoð egg- eða sæðisgjafa. Bókin hentar einstaklingum sem eignast börn ein og einnig samkynja- og tvíkynja pörum. Bókin aðstoðar fjölskyldur við að upplýsa börn um hvernig þau urðu til, þar sem áherslan er á fólk sem fær aðstoð frá egg- eða sæðisgjafa við barneignarferlið. Mikilvægt er að foreldrar séu opinská og heiðarleg gagnvart börnum um hvernig þau urðu til og ekki er alltaf auðvelt að vita hvernig á að bera sig að. Markmiðið með bókinni er að vera ákveðið verkfæri til að aðstoða foreldra við samtalið. Andrea Björt Ólafsdóttir er höfundur bókarinnar kom til okkar í dag.
Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo í dag. Í þetta sinn talaði Einar við okkur um veðurútlitið næstu daga og vikur. Hvort hægt sé að spá með viti í marsveðráttuna og með hvaða aðferðum þá. Hann ætlar líka að rifja upp þegar 1500 manns sátu fastir í bílum sínum í Þrengslunum 27.febrúar árið 2000, þegar fjöldi þusti út til að berja Heklugos augum. Þá hafði verið tilkynnt í fréttum að gos myndi hefjast innan 30 mínútna, en lítið sást til gossins, en í staðinn gerði byl með ófærð. Þetta var ein viðamesta björgunaraðgerð á vegum úti í Íslandssögunni.
Tónlist í þættinum:
Skólaball / Brimkló (Magnús Kjartansson)
Marz / John Grant (John Grant)
4:30 AM / Solveig Slettahjel (Peder Kjellsby & Solveig Slettahjell)
Nacho verduzco /Kronos Quartet (Chalino Sanchez)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti er vongóður um að vopnahlé náist á Gaza innan viku; hlé sem gæti varað framyfir föstumánuð múslima. Forsætisráðherra Ísraels segir að vopnahlé kæmi ekki í veg fyrir innrás í Rafah, heldur seinkaði henni.
8 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir undir Svartsengi. Miklar líkur eru á eldgosi næstu daga. Um þrjár mínútur tekur að rýma fiskvinnslu Vísis í Grindavík, þar sem tuttugu starfa nú, ef gýs á vinnutíma.
Ásgeir Jónsson verður seðlabankastjóri í fimm ár til viðbótar. Forsætisráðherra ákvað að auglýsa ekki stöðuna og því endurnýjast skipunartími hans sjálfkrafa.
Forseti Frakklands útilokar ekki að Evrópuríki sendi herlið til Úkraínu, til aðstoðar í stríði við Rússland. Talsmaður Kremlar segir óhjákvæmilegt að það hefði í för með sér stríð milli Rússlands og allra NATÓ-ríkja.
Neytendur eiga erfitt með að sækja rétt sinn vegna samkeppnisbrota. Reglugerð til úrbóta hefur legið óhreyfð í ráðuneyti í tíu ár. Þingmaður Viðreisnar segir stjórnvöld þurfi að jafna leikinn.
Grásleppuvertíð hefur verið flýtt um 20 daga, svo smábátaeigendur missi ekki af verðmætum páskamarkaði í Danmörku. Veiðar mega hefjast á föstudag.
Frumvarp forsætisráðherra um innlenda greiðslumiðlun vekur gjörólík viðbrögð í umsögnum. Neytendur og launþegar fagna en fjármálafyrirtæki eru full efasemda.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Ráðgátan um undrabarnið Adam hefur bókstaflega heltekið Norðmenn á undanförnum vikum. Hún hverfist um tékkneskan unglingsdreng sem hóf skólagöngu í Marienlyst gagnfræðiskólanum í vesturhluta Oslóar, árið 2007. Málið er með furðulegri sakamálum sem upp hefur komið í Noregi og það teygir anga sína út fyrir landamærin, til Norðurlanda og sunnar í Evrópu. Þóra Tómasdóttir ræddi við Trude Lorenzen höfund hlaðvarpsþáttanna Ráðgátan Adam.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Innflytjenda- og útlendingamál hafa verið í brennidepli í þjóðfélagsumræðunni undanfarið og ríkisstjórnin kynnti á dögunum aðgerðir til að sporna gegn því að fólk sæki hér um vernd. Inngilding hefur líka verið áberandi í umræðunni. Eitt er víst, íslenskt samfélag sem lengi var einsleitt er breytt, við ætlum að ræða þessar breytingar og viðbrögð við þeim við Juan Camilo Roman Estrada, verkefnastjóra Spretts og fjölmenningarfulltrúi Háskóla Íslands. Ræða hvernig unnið er að jöfnun tækifæra innan háskólans og hvernig hann vill sjá Ísland þróast til framtíðar.
Við fjöllum um staðla. Hvernig staðlar eru settir og hvert markmiðið er með þessum stöðlum öllum sem gilda um vörur, þjónustu, tækni og vinnubrögð. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, leiðir okkur í allan sannleika um staðla.
Pistill frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi - að sjá þrjú tré út um gluggann.
Tónlist:
BUDDY HOLLY - That'll Be The Day.
GDRN - Af og til.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Tónlistarkonan Maria-Carmelo Raso, sem notar líka listamannsnafnið MSEA, hefur verið áberandi í íslensku listalífi frá því hún fluttist hingað frá Kanada fyrir nokkrum árum. Hún hefur gefið út talsvert af tilraunatónlist undir sínu nafni og einnig martraðarkennda poppaða danstónlist unir listamannsnafninu MSEA.
Lagalisti:
Atropos - Atropos
Agalma V - take five, part two
- Mama like porridge
順風 á ferðalaginu - Part One
順風 á ferðalaginu - Part Two
順風 á ferðalaginu - Part Fourteen
Mouth of the face of the sea - Mouth of the face of the sea
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Jósep Jósepsson Axfjörð fór til Ameríku laust fyrir 1900 og miklar sögur gengu um líf hans þar. Hann var sagður hafa framið bankarán og jafnvel drepið mann. Hann sneri svo heim og álit fólks á honum var sérlega mismunandi. Ýmist var hann þrasgjarn letihaugur eða harðduglegur og mjög atorkusamur. Hann hafði ráðskonu í rúm 40 ár og hún sagði frá viðskiptum hans við einstaklega óþekkan hund.
Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Kikkið við myndlistina er sennilega frelsið, segir Ragnar Kjartansson sem opnaði sína fimmtu sýningu í i8 gallerí í síðustu viku. Sýningin kallast Móðir og barn, gin og tónik og þar gefur að líta ný málverk eftir Ragnar. Ragnar hefur tekist á við málverkið allan sinn feril en oft á tíðum er það afsprengi gjörninga, sem það er líka að einhverju leyti á þessari sýningu. Afsprengi ákveðins ástands sem hefur verið í gangi á vinnustofunni. Við lítum þangað inn í þætti dagsins.
Eva Halldóra Guðmundsdóttir rýnir í leikverkið And Björk, of course eftir Þorvald Þorsteinsson var frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri um síðustu helgi.
Við ræðum einnig við einn vinsælasta rithöfund Finnlands, Satu Rämö. Vinsældir Satu eiga að miklu leyti rætur að rekja til nýlegs glæpasagnabálks hennar um rannsóknarlögreglukonuna Hildi sem býr og starfar á Ísafirði, en Ísafjörður hefur einmitt verið heimabær Satu síðastliðin fimm ár.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi?
Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hinni undarlegu Ungfrú Novak. Markmiðið er að stunda meðvitað át eða “conscious eating” - sem gengur í grófum dráttum út á að borða minna. Við ræðum myndina við Tinnu Guðjónsdóttur, sem situr í stjórn Félags fagfólks um átraskanir og vinnur töluvert með ungmennum með átraskanir í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á BUGL.
Lagalisti:
Lög af Vultures 1
Markus Binder - Gum
Markus Binder - Auto
Markus Binder - Moodrum
Frank Ocean - Self Control
Kvöldfréttir útvarps
Fjölmennur vinnuflokkur vinnur allan sólarhringinn á stórvirkum vinnuvélum við gerð varnargarðanna við Grindavík. Unnið er í kappi við tímann því búist er við eldgosi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti virðist hafa verið fljótur á sér þegar hann taldi líklegt að vopnahlé næðist á Gaza næsta mánudag. Hvorki Ísraelsmenn né Hamas-samtökin telja slíkt mögulegt.
Sérsveitarmenn fylgja ráðherrum og þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á hringferð um landið. Áhætta fólks í opinberum störfum var metin eftir að glimmeri var kastað á utanríkisráðherra.
Heimild til að skrá sig á heilsugæslu, óháð staðsetningu, er ekki hugsuð til þess að heilsugæslustöðvar geti opnað útibú víðar. Þetta segir forstjóri sjúkratrygginga.
Örplast fannst í öllum fylgjum kvenna sem rannsakaðar voru í nýrri bandarískri rannsókn.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér í dag sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar með sigri gegn Serbíu, 2-1, á Kópavogsvelli. Serbar höfðu undirtökin fram á 75. mínútu leiksins.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum var kynnt fyrir ári. Markmið þess var að tryggja raforkuöryggi og framboð raforku, enda væri þetta grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. En nú hefur málið verið sett á ís.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti velti því upp í gær að það væri ekkert útilokað að senda hermenn inn í Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Við heyrum af viðbrögðum annarra evrópskra ráðamanna við því.
Joe Biden Bandaríkjaforseti var gestur í kvöldþætti NBC-sjónvarpsstöðvarinnar í gær og brá sér út á götu með þáttarstjóranum Seth Meyers til að taka upp dagskrárkynningu fyrir kvöldið. Hann sagðist þar vona að það yrði komið vopnahlé á Gaza næsta mánudag.
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.
Þessa dagana er alþjóðleg fjármálalæsisvika. Við hjá KrakkaRúv tökum þátt í þessu flotta verkefni svo í dag ætlum við að fá að vita ýmislegt um peninga. Hvaðan koma þeir og hver er saga þeirra? Hvað er mynt? Hvernig var fyrsti seðillinn? Hver prentar seðlana? Hver ákveður hvaða fólk er á peningunum? Hafa einhverntímann verið myndir af krökkum á peningum?
Þetta og ýmislegt fleira spennandi og skemmtilegt um peninga.
Sérfræðingur þáttarins er: Sigurður Helgi Pálmason
Veðurstofa Íslands.
Tónleikahljóðritanir frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson.
Hljóðritun frá tónleikum Collegium Maianum barokksveitarinnar sem fram fóru í Břevnov klaustrinu í Prag.
Á efnisskrá eru verk eftir Johann Jospeh Ignaz Brentner, Johann Joachim Quantz, Johann Martin Blockwitz, Johann Friedrich Fasch, Georg Philipp Telemann, František Jiránek og Johann Joseph Ignaz Brentner.
Einleikarari og stjórnandi er barokkflautuleikarinn Jana Semerádová.
Umsjón: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Innflytjenda- og útlendingamál hafa verið í brennidepli í þjóðfélagsumræðunni undanfarið og ríkisstjórnin kynnti á dögunum aðgerðir til að sporna gegn því að fólk sæki hér um vernd. Inngilding hefur líka verið áberandi í umræðunni. Eitt er víst, íslenskt samfélag sem lengi var einsleitt er breytt, við ætlum að ræða þessar breytingar og viðbrögð við þeim við Juan Camilo Roman Estrada, verkefnastjóra Spretts og fjölmenningarfulltrúi Háskóla Íslands. Ræða hvernig unnið er að jöfnun tækifæra innan háskólans og hvernig hann vill sjá Ísland þróast til framtíðar.
Við fjöllum um staðla. Hvernig staðlar eru settir og hvert markmiðið er með þessum stöðlum öllum sem gilda um vörur, þjónustu, tækni og vinnubrögð. Helga Sigrún Harðardóttir, framkvæmdastjóri Staðlaráðs, leiðir okkur í allan sannleika um staðla.
Pistill frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi - að sjá þrjú tré út um gluggann.
Tónlist:
BUDDY HOLLY - That'll Be The Day.
GDRN - Af og til.
Veðurstofa Íslands.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Í rúmar tvær vikur hefur tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson verið að hlusta á og melta nýjasta listaverk Kanye West, plötuna Vultures 1 sem hann gaf út ásamt Ty Dolla $ign. Platan er sjálfútgefin og trónir á toppi vinsældarlista. En hvaða siðferðilegu klemmur fylgja því að vera Kanye West aðdáandi?
Club Zero er níunda kvikmynd Austurríska leikstjórans Jessicu Hausner. Í myndinni fylgjumst við með hópi nemenda við alþjóðlegan heimavistarskóla sem skrá sig í róttækan næringarfræðikúrs hjá hinni undarlegu Ungfrú Novak. Markmiðið er að stunda meðvitað át eða “conscious eating” - sem gengur í grófum dráttum út á að borða minna. Við ræðum myndina við Tinnu Guðjónsdóttur, sem situr í stjórn Félags fagfólks um átraskanir og vinnur töluvert með ungmennum með átraskanir í starfi sínu sem hjúkrunarfræðingur á BUGL.
Lagalisti:
Lög af Vultures 1
Markus Binder - Gum
Markus Binder - Auto
Markus Binder - Moodrum
Frank Ocean - Self Control
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Lagalisti:
Jóhann G. Jóhannsson - Don't Try To Fool Me.
Karl Orgeltríó - Bréfbátar.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Elskar þú mig ennþá.
MICHAEL KIWANUKA - Bones.
JACK JOHNSON - Better Together.
Crow, Sheryl - Soak up the sun (radio edit).
MACY GRAY - I Try.
LAY LOW - By And By.
The Five Stairsteps - O-o-h child (things are gonna get easier).
HOZIER - Almost (Sweet Music).
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Fjöllin og fjarlægðin.
Bob Marley - Three little birds.
ICE CUBE - It Was a Good Day.
RADIOHEAD - Paranoid Android.
HIPSUMHAPS - Bleik ský.
ALANIS MORISSETTE - You oughta know.
Lovísa Ólafsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS kom til okkar og ræddi forvarnir og vinnuslys, en að minnsta kosti 16 manns slasa sig í vinnunni á degi hverjum hér á landi samkvæmt tölum frá embætti landlæknis. Það á ekki að geta gerst að fólk fari í vinnuna og komi ekki aftur segir Lovísa í nýlegri grein.
Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur og sjálfstætt starfandi sérfræðingur í alþjóða- og öryggismálum, var á línunni frá Lundúnum. Við ræddum umræðu um að Eystrasaltsríkin búi sig nú undir innrás Rússa.
Eftir því sem þátttaka innflytjenda á íslenskum vinnumarkaði eykst verður þörfin á markvissri íslenskukennslu sífellt meiri. Alþýðusamband Íslands í samstarfi við Mími símenntun stendur fyrir ráðstefnu um þessi mál á fimmtudaginn kemur og þar verður einblínt á helstu áskoranir samfélagsins þegar kemur að inngildingu innflytjenda og því að kenna/læra nýtt tungumál í nýju landi. Vanessa Monika Isenmann, verkefnastjóri hjá Mími kíkti til okkar og sagði okkur meira.
Í gærkvöldi voru viðvörunarflautur í Grindavík og Bláa lóninu prófaðar, en talið er að eldgos gæti hafist í vikunni með litlum fyrirvara. Við töluðum við Friðrik Einarsson, framkvæmdastjóra Northern Light Inn hótelsins við Bláa lónið, um ráðstafanir, mögulega rýmingu og áhrif þess sem hefur verið að gerast á Reykjanesskaga á bókanir.
Við ræddum mannanafnafrumvarp Guðbrands Einarssonar, þingmanns Viðreisnar, sem miðar meðal annars að því að mannanöfn takmarki ekki persónufrelsi fólks. Í umsögn Þjóðskrár sem birt var í gær er gagnrýnt að einstaklingum verði heimilt að skipta oft um nafn og bent á að ekki gangi að óbreyttu að leggja niður ákvæði núgildandi laga um takmörkun á fjölda nafna þar sem stafabil í kerfi Þjóðskrár bjóði ekki upp á slíkt.
Tónlist:
Ragnheiður Gröndal - Ást.
Declan McKenna - Slipping through my fingers.
Fleetwood Mac -Hold me.
GDRN - Parísarhjól.
Baggalútur og Una Torfa - Casanova.
Oasis - Little by little.
Hipsumhaps - Fyrsta ástin.
Memfismafían, Sigurður Guðmundsson og Jón Gnarr - Mannanafnanefnd.
David Bowie - Wild is the wind.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það var spennuþrunginn þáttur að þessu sinni þar sem Jóhann Alfreð og Halldór Laxness eða Dóri DNA mættust í spurningakeppni, titill Jóhanns var í húfi. Þar með var ekki öll sagan af spennu sögð, því næst var farið í Gosar gegn þjóðinni þar sem Andri var í heitasætinu og skíttapaði eins og svo oft áður.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-02-28
BRUNALIÐIÐ - Kæra vina.
Greiningardeildin, Bogomil Font - Sjóddu frekar egg.
BANGLES - Eternal Flame.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Elskar þú mig ennþá.
KINGS OF LEON - California Waiting.
THE WHITE STRIPES - Seven Nation Army.
MICHAEL JACKSON - Rock With You.
BOYZONE - No Matter What.
Swift, Taylor - Is It Over Now (Taylor's Version).
SPANDAU BALLET - To cut a long story short.
WHITE TOWN - Your Woman.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Krókurinn.
Sigga Ózk - Um allan alheiminn.
Parks, Arlo, Lous and The Yakuza - I'm Sorry.
BOB MARLEY AND THE WAILERS - Get Up Stand Up.
EMMSJÉ GAUTI - Þúsund hjörtu.
Grande, Ariana - Yes, and?.
Anita - Downfall.
SUGARCUBES - Walkabout.
THE ROLLING STONES - Not Fade Away.
Beyoncé - Texas Hold 'Em (Explicit).
Benni Hemm Hemm, Kórinn - Ljósið.
BILLY JOEL - Piano man.
YG Marley - Praise Jah In the Moonlight.
EMILÍANA TORRINI - To Be Free.
LAUFEY - California and Me.
PASSENGER - Let her go.
JÓNAS SIG & LÚÐRASVEIT ÞORLÁKSHAFNAR - Faðir.
Marvin Gaye - I Heard It Through The Grapewine.
Oasis - Champagne supernova.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Bandaríkjaforseti er vongóður um að vopnahlé náist á Gaza innan viku; hlé sem gæti varað framyfir föstumánuð múslima. Forsætisráðherra Ísraels segir að vopnahlé kæmi ekki í veg fyrir innrás í Rafah, heldur seinkaði henni.
8 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir undir Svartsengi. Miklar líkur eru á eldgosi næstu daga. Um þrjár mínútur tekur að rýma fiskvinnslu Vísis í Grindavík, þar sem tuttugu starfa nú, ef gýs á vinnutíma.
Ásgeir Jónsson verður seðlabankastjóri í fimm ár til viðbótar. Forsætisráðherra ákvað að auglýsa ekki stöðuna og því endurnýjast skipunartími hans sjálfkrafa.
Forseti Frakklands útilokar ekki að Evrópuríki sendi herlið til Úkraínu, til aðstoðar í stríði við Rússland. Talsmaður Kremlar segir óhjákvæmilegt að það hefði í för með sér stríð milli Rússlands og allra NATÓ-ríkja.
Neytendur eiga erfitt með að sækja rétt sinn vegna samkeppnisbrota. Reglugerð til úrbóta hefur legið óhreyfð í ráðuneyti í tíu ár. Þingmaður Viðreisnar segir stjórnvöld þurfi að jafna leikinn.
Grásleppuvertíð hefur verið flýtt um 20 daga, svo smábátaeigendur missi ekki af verðmætum páskamarkaði í Danmörku. Veiðar mega hefjast á föstudag.
Frumvarp forsætisráðherra um innlenda greiðslumiðlun vekur gjörólík viðbrögð í umsögnum. Neytendur og launþegar fagna en fjármálafyrirtæki eru full efasemda.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Siggi og Lovísa voru landamæraverðir í Popplandi. Árni Matt kíkti í heimsókn í Heimshornaflakkið, plata vikunnar á sínum stað, Ljósið og Ruslið með Benna Hemm. Söngvakeppnis lög og allskonar meira spennandi.
SÍÐAN SKEIN SÓL - Halló, Ég Elska Þig.
CMAT - Stay For Something.
THE BLACK KEYS - Gold On The Ceiling.
Systur, Bjørke, Kasper, Sísý Ey Hljómsveit - Conversations.
LED ZEPPELIN - Stairway To Heaven.
Ólafur Bjarki Bogason - Yfirhafinn.
FOREIGNER - Urgent.
Vampire Weekend - This Life.
Drugdealer, Bollinger, Kate - Pictures of You.
Daði Freyr Pétursson - I'm not bitter.
Wings - Goodnight tonight.
Adele - Rolling In The Deep.
Royel Otis - Murder on the Dancefloor (triple j Like A Version).
Benni Hemm Hemm, Kórinn - Stökkið.
THE BEATLES - I'll Follow The Sun.
Jón Jónsson - Spilaborg.
LENNY KRAVITZ - Again.
ÁSDÍS - Angel Eyes.
Hera Björk - Scared of Heights.
Dua Lipa - Training Season.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Elskar þú mig ennþá.
HJALTALÍN - Love from 99.
Celeste - There will come a day.
Minnie Riperton - Les Fleurs.
Alanis Morissette - Hand in my pocket.
Murad, Bashar - Wild West.
STEVE BAND MILLER - Fly Like An Eagle.
Daniil, Frumburður - Bráðna.
Cage the Elephant - Neon Pill.
Bubbi Morthens - Serbinn.
HLJÓMAR - Tasko Tostada.
Thee Sacred Souls - Can I Call You Rose?.
Úlfur Úlfur - Myndi falla.
21 Savage - Redrum.
Ol' Dirty Bastard - Shimmy shimmy ya.
Gorillaz - Rock the house (Radio edit).
VÆB - Bíómynd.
eee gee - School reunion.
ROXY MUSIC - Avalon.
Benni Hemm Hemm, Kórinn - Frí.
ÁSGEIR TRAUSTI - Hringsól.
Jim Croce - Operator.
Teitur Magnússon - Fjöllin og fjarlægðin.
Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.
Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.
Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið að kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess að kynnast henni betur.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur að akstur vegna farsímanotkunar sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.
Allt bendir til þess að fólk sem notar síma við akstur sé fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra að fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. Nú hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið að hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt að tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.
Íbúar í Ölfusi eru að fara að kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig að mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið að boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.
Í gær heyrðum við í Hönnu Símonardóttur sjálfboðaliða og fósturmóður fylgdarlauss palestínsks barns en hún var stödd úti í Kaíró í Egyptalandi þar sem sjálfboðaliðar freista þess að ná hingað til lands fólki sem fengið hefur dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Von var á hópi hingað til lands í dag, aðallega börnum, og spyrjum við Hönnu um hvernig ferðalagið hefur gengið og gang mála ytra. Í dag heyrum við í Vésteini Sveinssyni sem er einn þeirra sem hefur aðstoðað við að koma fólkinu til landsins en hann er einnig staddur úti í Kariró og við fáum að vita hver staðan er í dag.
Á föstudaginn var undirritaður samningur um byggingu á nýrri fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna á Skarfabakka í Sundahöfn. Faxaflóhafnir efndu til samstarfssamkeppni vegna hönnunar og byggingar á fjölnota farþegamiðstöð á þessum stað og er aðstöðunni ætlað að þjóna öllum gerðum farþegaskipa, hvort heldur fyrir farþega sem hefja eða ljúka sinni ferð á Íslandi, sem og þeim sem eingöngu eru í dagsheimsókn. Gunnar Tryggvason er hafnarstjóri Faxaflóahafna hann kemur til okkar á eftir.
Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins er verulegur skortur á rafvirkjum á Íslandi og sá fjöldi sem útskrifast árlega með sveinspróf í rafvirkjuner langt undir áætlaðri meðalþörf fyrirtækja í rafiðnaði. Réttindi erlendra rafvirkja falla ekki alltaf að íslenskum reglum og í samtali við Morgunblaðið í dag segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI að þær tölur sem koma fram í könnuninni gera ekki ráð fyrir áhrifum þeirra metnaðarfullu áforma sem eru uppi hjá stjórnvöldum um að greiða leið orkuskipta og auka raforkuframleiðslu, og því er líklega þörf á mun fleiri rafvirkjum en könnunin gefur til kynna. Jóhanna kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.
Kvennalandsliðið í fótbolta mætti Serbíu í seinni leik liðanna í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar, Gunnar Birgisson lýsti leiknum í sjónvarpinu hann kemur til okkar og fer yfir úrslitin og stöðu íslenska landsliðsins eftir leikinn.
Við ætlum að kynna okkur efni Kveiks þáttar kvöldsins en til umfjöllunar er Rauða gullið -Blóðmerahald á Íslandi. María Sigrún Hilmarsdóttir er umsjónarmaður þáttarins og hún kemur til okkar ásamt Gísla Þór Þorkelssyni pródúsent.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins greindi frá því í hlaðvarpinu Þjóðmál fyrr í dag að hún hyggðist leggja fram frumvarp þess efnis að afnema jafnlaunavottun.
Ástæðuna segir Diljá vera þá að jafnlaunavottunarkerfið sé hrikalegt bákn og svo vitnað sé í orð Diljár þá segir hún Viðreisn ber ábyrgð á og það sé búið að sýna sig að þetta kerfi sé algjört rusl. Við hringjum í Diljá í þættinum.
Kvöldfréttir útvarps
Fjölmennur vinnuflokkur vinnur allan sólarhringinn á stórvirkum vinnuvélum við gerð varnargarðanna við Grindavík. Unnið er í kappi við tímann því búist er við eldgosi.
Joe Biden Bandaríkjaforseti virðist hafa verið fljótur á sér þegar hann taldi líklegt að vopnahlé næðist á Gaza næsta mánudag. Hvorki Ísraelsmenn né Hamas-samtökin telja slíkt mögulegt.
Sérsveitarmenn fylgja ráðherrum og þingmönnum Sjálfstæðisflokksins á hringferð um landið. Áhætta fólks í opinberum störfum var metin eftir að glimmeri var kastað á utanríkisráðherra.
Heimild til að skrá sig á heilsugæslu, óháð staðsetningu, er ekki hugsuð til þess að heilsugæslustöðvar geti opnað útibú víðar. Þetta segir forstjóri sjúkratrygginga.
Örplast fannst í öllum fylgjum kvenna sem rannsakaðar voru í nýrri bandarískri rannsókn.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér í dag sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar með sigri gegn Serbíu, 2-1, á Kópavogsvelli. Serbar höfðu undirtökin fram á 75. mínútu leiksins.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Drög að frumvarpi til breytinga á raforkulögum var kynnt fyrir ári. Markmið þess var að tryggja raforkuöryggi og framboð raforku, enda væri þetta grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. En nú hefur málið verið sett á ís.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti velti því upp í gær að það væri ekkert útilokað að senda hermenn inn í Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Við heyrum af viðbrögðum annarra evrópskra ráðamanna við því.
Joe Biden Bandaríkjaforseti var gestur í kvöldþætti NBC-sjónvarpsstöðvarinnar í gær og brá sér út á götu með þáttarstjóranum Seth Meyers til að taka upp dagskrárkynningu fyrir kvöldið. Hann sagðist þar vona að það yrði komið vopnahlé á Gaza næsta mánudag.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Lagalistinn
GKR, Tatjana - Þykir það leitt.
Torfi - Mánaðarmót.
Mollý Jökulsdóttir - Topløs på stranden.
Helga Nína Þórðardóttir - Stingur í hjarta mínu.
AGLA - Tíminn.
Dagmar Øder - Síðasta augnablikið.
Moskvít - Þú.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það er ný tónlist í aðalhlutverki á Kvöldvaktinni þetta þriðjudagskvöld þar sem Axel Flóvent, Zutons, Kanye West & Ty Dolla $ign, A Certain Ratio, Royel Otis, Iron and Wine, Dua Lipa, Kacey Musgraves, Fat Dog og fleiri.
Lagalistinn
Axel Flóvent - Have This Dance.
KINGS OF LEON - Pyro.
Black Keys, The - Beautiful People (Stay High).
KELIS - Friday Fish Fry.
Zutons - Creeping On The Dancefloor.
Arlo Parks, Lous and The Yakuza - I'm Sorry.
YG Marley - Praise Jah In the Moonlight.
Ice Cube - You know how we do it.
Ízleifur, Daniil - Bossed Up
Ty Dolla $ign, West, Kanye - Carnival
Ólafur Bjarki Bogason - Yfirhafinn.
Royel Otis - Murder on the Dancefloor
Santigold - Disparate youth
A Certain Ratio - All Comes Down to This.
Gossip - Real Power.
Lipa, Dua - Training Season.
GusGus - Rivals.
Presets - My people.
Fat Dog - All the Same
Iron and Wine - You Never Know.
Phoebe Bridgers - Garden Song
Kacey Musgraves, Kacey - Deeper Well.
Beyoncé - Texas Hold 'Em
Waxahatchee - Bored (bonus track wav).
Campbell, Isobel, Lanegan, Mark - Deus ibi est.
Pratt, Jessica - Life Is.
Goddard., Cat Burns - Wasted Youth.
Nia Archives - Crowded Roomz.
ADAM F - Circles.
Henderson, Ella, Rudimental - Alibi.
Þórunn Salka - Sumar í febrúar.
Christine and The Queens, MGMT - Dancing in Babylon
Klemens Hannigan - Don't Want to Talk About It.
Páll Óskar Hjálmtýsson - Elskar þú mig ennþá.
Romy - She's On My Mind.
21 Savage - Redrum
Gordon, Kim - Bye Bye.
Young, Lola - Wish You Were Dead.
Primal Scream - Burning wheel
Matching Drapes - Dramatic.
Elín Helena - Raunsæ rómantík
Sprints - Heavy
Diiv - Brown Paper Bag
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Rokkland verður Reggíland á sunnudaginn kemur, en þátturinn verður tileinkaður gosögninni Bob Marley; tónlist hans og arfleið. Freyr Eyjólfsson leysir Óla Palla af og fer yfir sögu þessa áhrifaríka listamanns og ræðir við Kidda í Hjálmum. Bob Marley í Rokklandi á sunnudag klukkan 16:00.