11:02
Þræðir
Sál til sölu og geisladiskabrennur í Vestmannaeyjum
Þræðir

Atli Már Steinarsson og Ingvar Þór Björnsson stjórna tímaferðalagi sem takmarkast ekki við neitt nema forvitni og hvort gamlar spólur séu orðnar of snjáðar til að hægt sé að spila þær aftur. Er hægt að taka upp eldgamlan þráð og vinna sig aftur til nútíðar? Geta hlutirnir sem við sögðum einu sinni, kennt okkur eitthvað í dag? Kannski.

En svo getur líka bara verið gaman að hlusta á gamlar sögur, skoðanir og hlæja að því hvernig allt var einu sinni. Hvort sem við missum þráðinn eða ekki.

Umsjónarmenn: Atli Már Steinarsson og Ingvar Þór Björnsson.

Atli Már Steinarsson og Ingvar Þór Björnsson þræða sig í gegnum söguna og rifja upp áhugaverð mál og umfjallanir sem hafa hreyft við þjóðinni. Þetta er önnur þáttaröð Þráða og nú er beint sjónum að níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Í fimmta þætti annarrar seríu:

- Geisladiska- og bókabrennur í Vestmannaeyjum

- Sál til sölu afhendist við andlát

Er aðgengilegt til 01. júlí 2024.
Lengd: 1 klst. 10 mín.
,