Orðin sem við skiljum ekki

Að kveðja hvítan risa

Höf og vötn þekja rúm 71 prósent alls lands hér á jörðu en þrátt fyrir hafið bæði djúpt og dularfullt þá er ekki þar með sagt það utan áhrifasvæðis mannsins. hnattræna hlýnun sem mannkynið hefur orsakað með bruna kolefnaeldsneytis er valda grundvallarbreytingu á eðli vatns á jörðinni. Bráðnun jökla hefur tvöfaldast á síðustu tuttugu árum, golfstraumurinn er veikari en hann hefur verið í þúsund ár og sýrustig hafsins er breytast meira en sést hefur í 50 milljón ár.

Í fimmta þættii þáttaraðarinnar sem byggð er á bók Andra Snæs Magnasonar Um tímann og vatnið, fjallar Þorvaldur S. Helgason um þau áhrif sem loftslagsbreytingar eru valda á hafi og jöklum. Viðmælendur þáttarins eru Hrönn Egilsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, og Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor í jöklafræði við Háskóla Íslands.

Umsjón: Þorvaldur S. Helgason.

Tónlist: Högni Egilsson.

Upplestur: Katrín Ásmundsdóttir.

Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason.

Frumflutt

8. maí 2021

Aðgengilegt til

7. júlí 2024
Orðin sem við skiljum ekki

Orðin sem við skiljum ekki

Orð geta verið stór og orð geta verið smá. Þau geta verið nógu kraftmikil til skapa heilan heim og þau geta verið svo hversdagsleg við tökum ekki einu sinni eftir þeim. Orð geta líka verið svo umfangsmikil það tekur heilu kynslóðirnar skilja þau til hlítar. Þetta eru orðin sem við skiljum ekki.

Í bókinni Um tímann og vatnið fjallar Andri Snær Magnason um þær grundvallarbreytingar sem munu verða á mannlífi og jarðlífi á næstu hundrað árum vegna hnattrænnar hlýnunar. Þessar breytingar eru „flóknari en flest það sem hugurinn er vanur fást við, stærri en öll fyrri reynsla okkar, stærri en tungumálið.“ Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Þorvaldur S. Helgason fjallar um tímann og vatnið, kafar dýpra í helstu umfjöllunarefni bókarinnar og ræðir við vísindamennina, heimspekingana og aðgerðasinnana sem hafa helgað líf sitt því rannsaka málefni sem eru stærri og flóknari en orð lýst.

Umsjón: Þorvaldur S. Helgason

Tónlist: Högni Egilsson.

Sérstakar þakkir: Andri Snær Magnason

Þættir

,