16:05
Síðdegisútvarpið
14.mars

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Í dag kom út viðamikil úttekt á vegum Dýraverndarsambands Íslands (DÍS). Í úttektinni eru gerðar tillögur um bætt eftirlit með dýravelferð á Íslandi. Í skýrslunni birtist ríkt vantraust almennings gagnvart núverandi fyrirkomulagi og bent á leiðir til

úrbóta. Skýrsluhöfundurinn er Ágúst Ólafur Ágústsson, lögfræðingur og hagfræðingur, hann kemur til okkar á eftir og rýnir í þetta með okkur.

Við ætlum að fjalla um loðdýrarækt í þættinum og tala við Einar E. Einarsson formann búgreinadeildar loðdýra og spyrja hann út í stöðuna í greininni hér á landi en loðdýraeldi hér og víða annars staðar, sérstaklega í Evrópu hefur átt undir högg að sækja undanfarið.

María Sigrún Hilmarsdóttir og Arnhildur Hálfdánardóttir fréttamenn koma til okkar og segja okkur frá Kveiksþætti kvöldsins sem að þessu sinni er tvískiptur, annars vegar fjalla Arnhildur um rafbílavæðingu hér á landi og hinsvegar ræðir María Sigrún við ungan mann Ottó Bjarka sem á fatlaða foreldra.

Það verða heljarinnar tónleikar næstkomandi sunnudag í Bæjarbíó í Hafnarfirði til styrktar Alzheimersamtökunum á Íslandi. Við ætlum að heyra í Kristjáni Inga Gunnarssyni sem hefur verið að skipuleggja tónleikana og fá hann til að segja okkur frá tengslum við Alzhemier samtökin og auðvitað frá tónleikunum sjálfum.

Gígja Hólmgeirsdóttir verður með okkur að norðan. Hún mun til dæmis spjalla um sögu Pollsins á Akureyri við Hörð Geirsson deildarstjóra Minjasafnsins á Akureyri.

Við rákum augun í frétt á vefmiðlinum Austurfrétt þar sem að fjallað var um salernisaðstöðu eða öllu heldur skort á salernisaðstöðu í húsnæði Kjörbúðarinnar á Djúpavogi. Lengi hefur verið kallað eftir slíkri aðstöðu og er Múlaþing reiðubúið að koma að rekstri slíks salernis en þrátt fyrir það er ekki útlit fyrir að salernisaðstöðu verði komið upp fyrir gesti og ferðafólk. Á línunni hjá okkur er Gauti Jóhannesson fulltrúi sveitastjóra á Djúpavogi.

Var aðgengilegt til 13. mars 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,