06:50
Morgunútvarpið
14. mars - loftgæði, formannskjör VR og bankahrun

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Austurfrétt greindi frá því á dögunum að framkvæmdir við síðasta hluta ofanflóðavarnargarða fyrir ofan byggðina í Neskaupstað muni hefjast á næstu misserum og að sá lokahnykkur verði verulega umfangsmikill. Að framvæmdum loknum munu alls fjórir miklir garðar þvera byggðina alla og fyrir ofan garðana tvöfaldar keiluraðir í þokkabót. Þá verður nýi þvergarðurinn aðeins í 30 metra fjarlægð frá innstu húsum við botn Hrafnsmýrar. Sömuleiðis er ljóst að þetta komi til með að hafa áhrif á bæjarbrag meðan á framkvæmdum stendur en framkvæmdasvæðið fer yfir tjaldsvæði bæjarins og blakvöll og veg þann sem þangað liggur. Við ræddum þessar framkvæmdir við Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóra Fjarðabyggðar.

Talið er að um 60 manns láti lífið vegna slæmra loftgæða á ári hverju hér á landi. Í frostþurrki eins og hefur geisað víða um land í viku er full ástæða til að ræða loftgæði á þéttbýlli svæðum landsins enda virðist sem þau skerði lífsgæði bæði fullorðinna og barna sem oft þykir ekki forsvaranlegt að senda til útivistar á leikskólanum vegna svifryksmengunar. Hjalti Már Björnsson sérfræðingur í bráðalækningum kom til okkar að ræða loftgæði en hann er einn þeirra sem fer fyrir nýstofnuðum samtökum lækna gegn umhverfisvá.

Og áfram með umhverfismálin. Því er velt upp á ráðstefnu Viðskiptafræðideildar HÍ hvort krafan um sjálfbærni sé að sliga íslensk fyrirtæki. Krafan um umhverfisvænan rekstur hefur aukist í takt við loftslagsbreytingar og pólitískan vilja til að bregðast við þeim. Við ræddum það hvort íslensk fyrirtæki ráði við breyttan veruleika við Ágústu Þóra Jónsdóttir, doktorsnema í Umhverfis- og auðlindafræði sem stýrir fundinum.

Formannskjöri VR lýkur á hádegi á morgun og við ræddum Ragnar Þór Ingólfsson, formann félagsins, og Elvu Hrönn Hjartardóttur, sem býður sig fram gegn Ragnari.

Við ætlum að halda áfram að ræða fall Silicon Valley bank og Signature Bank í New York í þætti dagsins. Virði hlutabréfa minnkaði um heim allan í gær. Til að mynda féllu hlutabréf ellefu félaga íslenska aðalmarkaðarins um tvö prósent eða meira og þá vakti athygli að í gær nam veltan á íslenska skuldabréfamarkaðnum 22 milljörðum króna, en dagleg velta hefur ekki verið meiri þar í þrjú ár. Fjárfestar virðast þannig nú sækja í öruggari verðbréf. Við ræddum áhrif þessara vendinga á bankamarkaði á bankakerfið og markaði við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital.

Guðmundur Jóhannsson, tæknispekúlant Morgunútvarpsins, kom síðan til okkar í lok þáttar.

Var aðgengilegt til 13. mars 2024.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,