22:05
Rokkland
Jack Magnet, Langi Seli og Skuggarnir og Oscars-lögin

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Í Rokklandi í dag skoðum við lögin sem eru tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár, besta lag frumsamið fyrir kvikmynd en Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt í Los Angeles.

Jakob Frímann Magnússon kemur í heimsókn í seinni hluta þáttarins og segir okkur frá plötunni Jack Magnet sem kom út árið 1981 og hann ætlar að flytja í heild sinni ásamt frábærri hljómsveit í Bæjarbíói 25. mars nk.

Og svo er það hljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir sem fór næstum alla leið í Eurovison núna um síðustu helgi, lentu í öðru sæti á eftir söngkonunni Dilja sem fer til Liverpool fyrir okkar hönd. Við rifjum upp þegar hljómsveitin heimsótti std 12 árið 2019.

Var aðgengilegt til 13. mars 2024.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
e
Endurflutt.
,