12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 14. mars 2023

Útvarpsfréttir.

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Íslands sitja á fundi í Kænugarði með forseta Úkraínu. Í morgun virtu þær fyrir sér eyðilegginguna í Bododianka og Bucha, forsætisráðherra segir mikilvægt að hitta og ræða við almenning í Úkraínu jafnt sem ráðamenn.

Karlmaður um þrítugt var handtekinn í gær, grunaður um að hafa skotið af byssu á veitingastað í miðborg Reykjavíkur á sunnudagskvöld.

Lögreglan á Norðurlandi eystra rannsakar enn sprengingu sem varð í verksmiðju Pharmarctica á Grenivík í fyrra. Ár er liðið síðan tveir starfsmenn slösuðust alvarlega í slysinu.

Kærunefnd útlendingamála þurfti að sitja undir ásökunum um að hafa kostað skattgreiðendur marga milljarða á fundi með þingmönnum í morgun. Stjórnarandstöðuþingmenn segja að fundurinn hafi verið einn sá einkennalegasti í sögu Alþingis.

Fjármálaráðherra segir að það verði að virkja vindinn ef markmið stjórnvalda um að draga úr losun eiga að nást

Áform Evrópusambandsins um að banna bensín- og díeselhreyfla í farþegabifreiðum eftir 2035 virðast runnin út í sandinn, eftir að hópur aðildarríkja neitaði að staðfesta lögin.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,