06:50
Morgunvaktin
Áhrif falls Silicon Valley bankans ná víða

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í upphafi þáttar var endurleikið viðtal síðan í desember við Björn Rúnar Lúðvíksson lækni um kulda og kuldaofnæmi. Fólk þolir kulda mis illa og sumt fólk er hreinlega með ofnæmi eða ónæmi fyrir köldu lofti.

Í spjalli um efnahag og samfélag ræddi Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, m.a. um fall Silcon Valley bankans og áhrif þess á fjármálalífið í heiminum. Virði hlutabréfa í kauphöllum víða um heim hefur lækkað og hugsanlega munu fleiri bankar fara sömu leið.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá hreyfingunni "Síðasta kynslóðin" sem hefur vakið athygli á umhverfisálum með umdeildum aðferðum. Hann fjallaði líka um þýsku kvikmyndina Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum sem hlaut fern Óskarsverðlaun í ár og kráarlífið í Þýskalandi sem á undir högg að sækja vegna breyttra lífshátta unga fólksins.

Fermingar eru framundan. Um þær og fermingafræðsluna var fjallað. Gestir voru Sigurvin Lárus Jónsson prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík, Margrét Lilja Vilmundardóttir, prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, og Kirstín Erna Blöndal tónlistarmaður sem starfar við kirkjurnar.

Tónlist:

That?s all I want from you - Nina Simone,

Die kleine kneipe - Peter Alexander,

Í löngu máli - Una Torfa.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,