22:05
Rokkland
Egill Ólafsson - Tu Duende, El Duende
Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.

Egill Ólafsson yfirþurs er gestur Rokklands í dag. Hann syngur ekki meir opinberlega segir hann, en hann syngur samt, semur, skrifar ljóð og sögur og lög. Hann var var að senda frá sér plötu á vinyl sem er eiginlega tvær plötur: Tu Duende og El Duende ? tvöfalt albúm þar sem sungið er á íslensku, ensku og spænsku.

Hann segir okkur frá og við hlustum á nýju plötuna í Rokklandi í dag.

Var aðgengilegt til 20. desember 2023.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
e
Endurflutt.
,