23:00
Ólátagarður
Kruklið (1. hluti) og Dreymandi hundur

Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.

Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.

Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.

Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson, Katrín Helga Ólafsdóttir og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.

Í þessum þætti fékk Snæbjörn til sín í viðtal hljómsveitina Dreymandi Hund og ræddi við þá Ægir Sindra og Diego Manatrizio um tónlistina þeirra, væntanlegt tónleikaferðalag og rekstur á sjálfstæðum tónlistarrýmum. Bjarni Daníel tók á móti listahópnum Kruklið sem jöfnuðu um þrjátíu ára gamalt íslandsmet í útgáfu tónlistar á einu ári í sumar þegar þeir gáfu út 8 hljómplötur á tveggja mánaða tímabili.

Lagalisti:

Dreymand Hundur - Blind bisexual goose named thomas who spent six years in a love triangle with two swans and helped raise 68 babies dies at the ripe old age of 40

Dreymandi Hundur - Hawaiian winter song

Dreymandi Hundur - Yakdei wynewi

Flaaryr - A hole in the ground with trees and complete stillness

Kruklið - Púlla upp á klúbb

Kruklið - Dropsöngur

Kruklið - Bíllinn minn (brot)

Kruklið - Coda

Kruklið - Góður hestur

Kruklið - Intermezzo / skítugt dansgólfið

Kruklið - Jón Sigurðsson baðar þig ASMR

Kruklið - Ég er á klúbbnum

Kruklið - Heimkoma (brot)

Kruklið - Bíllinn minn

Kruklið - Púlla upp á klúbb (brot)

Kruklið - GP-91/2015A

Kruklið - 588-5522

Var aðgengilegt til 10. október 2023.
Lengd: 59 mín.
,