06:50
Morgunvaktin
Svindl í skák og Hið íslenska þjóðvinafélag

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í dag eru 50 ár liðin síðan Helgi Hóseasson skvetti skyri á alþingismenn og aðra sem gengu frá Dómkirkjunni til þingsetningarfundar í Alþingishúsinu. Með því vakti hann enn og aftur athygli á kröfu sinni um að skírnarsáttmáli hans yrði ógiltur með formlegum hætti. Honum varð að þeirri ósk sinni. Atburðurinn var rifjaður upp.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, var gestur þáttarins klukkan hálf átta. Rætt var um svindl í skák en bandarískur skákmaður að nafni Hans Niemann er grunaður um að hafa svindlað í a.m.k. eitthundrað skákum. Þá sagði hann frá Afmælishátíð Einvígis aldarinnar en síðar í mánuðinum fer fram keppni átta stórmeistara í Fischer slembiskák sem er nýtt afbrigði skákar, kennt við heimsmeistarann fyrrverandi. Meðal þátttakenda verður Magnús Carlsen heimsmeistari.

Vegurinn um Vatnsnes er með verri vegum landsins og áralöng barátta heimamanna í Húnaþingi vestra fyrir úrbótum enn ekki skilað sér í framkvæmdum. Unnur Valborg Hilmarsdóttir sveitarstjóri fór yfir málið. Hún ræddi líka um veðrið í gær sem ekki varð jafnvont og óttast var.

Hið íslenska þjóðvinafélag hélt afmælisfund á dögunum. Félagið var stofnað 1871 og er með elstu félögum landsins. Forseti þess, Guðrún Kvaran, prófessor emeritus, sagði frá sögu þess og starfsemi.

Tónlist:

Blue Moon - Ella Fitzgerald,

Nótt - Tríó Guðmundar Ingólfssonar.

Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 41 mín.
,