20:35
Samfélagið
Twitterkaup, máltækni, málfar og leigjendaaðstoð

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

Netfang: [email protected]

Fyrirætlanir frumkvöðulsins og auðkýfingsins Elon Musk um að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter virðast aftur vera komnar á dagskrá eftir að hann dró til baka tilboð sitt upp á meira en 40 milljarða dala. Björn Berg Gunnarsson deildarstjóri greiningardeildar Íslandsbanka hefur fylgst rækilega með þessu máli.

Við tölum um máltækni og leiðir til að gera íslenskunni hærra undir höfði í ört vaxandi tæknisamfélagi. Vilhjálmur Þorsteinsson er framkvæmdastjóri Miðeindar, sem sérhæfir sig í máltækni og gervigreind.

Málfarsmínútan er á sínum stað í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur.

Í neytendaspjallinu ræðum við um málefni leigjenda. Kolbrú Villadsen lögfræðingur hjá leigjendaaðstoðinni ræðir málin.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,