16:05
Síðdegisútvarpið
10.október

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Talsverð aukning hefur orðið í hópi þeirra sem glíma við offitu hér á landi. Þessu hefur fylgt margföldun á svokölluðum offituaðgerðum aðallega á einkastofum og einhver aukning í því að fólk fari í slíkar aðgerðir erlendis. Það nýjasta í meðferð offitu eru svokölluð stungulyf en þar hefur einnig orðið margföldun í ávísunum slíkra lyfja. Erla Gerður Sveinsdóttir læknir er yfirmaður í nýju kvenheilsuteymi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem sérhæfir sig í sjúkdómum tengdum offitu. Hún kemur til okkar í þáttinn í dag og fer yfir þessi mál með okkur.

Silli kokkur eins og hann kallar sig tók þátt í einhverskonar evrópumóti götubita í Þýskalandi um helgina. Silli rakaði til sín verðlaununum og lenti hann í öðru sæti í valinu á besta götubitanum. Borgarinn hans var valinn sá besti en hann lenti líka í öðru sæti í vali áhorfenda. Við heyrum í Silla á eftir sem enn er staddur í Þýskalandi og fáum að vita meira um sigurförina á hátíðina European Street Food Awards.

Hvern dreymir ekki um að sofa lengur þegar hann ferðast til útlanda og að mæta útsofinn í Leifsstöð einungis með vegabréfið og bakpokann við hendina. Brátt verður boðið upp á ferðatöskan þín verði sótt heim og henni komið fyrir á færibandi á leið í flugið þitt. Hingað kemur Ómar Brynjólfsson frá Öryggismiðstöðinni sem veit allt um þessi mál og segir frá.

Hljómahöllinn í Keflavík er allt í einu orðið eitt virkasta tónleikahús landsins sem býður upp á hverja veisluna á fætur annari. Það virðist vera stöðugur straumur flottra erlendra tónlistarmanna sem koma þar fram og að sama skapi bílalestin af höfuðborgarsvæðinu til Keflavíkur. Tómas Young framkvæmdarstjóri Hljómahallarinnar kemur til okkar á eftir.

Nemendum í 8-10 bekk í grunnskólum Suðurnesja býðst á morgun fræðsla í hinum ýmsu starfsgreinum. Af þeim starfsgreinum sem kynntar verða má nefna leikari, gítarsmiður, fatahönnuður, hárgreiðslumeistari, íþróttakennari, íþróttafréttamaður, skáld, ljósmóðir, bæjarstjóri og flugmaður, svo eitthvað sé nefnt. Hanna María Kristjánsdóttir er forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja við hringjum í hana.

Landsréttur stytti í dag gæsluvarðhald og einangrun yfir báðum mönnunum sem grunaðir eru í hryðjuverkarannsókn lögreglunnar. Í stað tveggja vikna voru mennirnir úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald og einangrun. Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, var kallaður til vitnaleiðslu í síðustu viku eftir að lögreglan komst yfir samskipti mannanna tveggja á Signal. Þar ræddu þeir um hvað myndi gerast ef annar þeirra myr

Var aðgengilegt til 10. október 2023.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,