06:50
Morgunútvarpið
10. okt. - Áhrif óveðurs, Reykjanesvirkjun, Úkraína, íþróttir

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Norðanstormur gekk yfir landið í gær og í nótt með mikilli úrkomu. Þrjár rauðar veðurviðvaranir voru gefnar út vegna hvassviðris og úrkomu og enn eru appelsínugular veðurviðvaranir í gildi fyrir eystri helming landsins og miðhálendið þar sem enn eru víðtækar vegalokanir. Um 50 manns þurftu að bíða af sér óveðrið í fjöldahjálparstöðvum Rauða krossins í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarklaustri en ekki hefur verið eins mikið að gera hjá björgunarsveitum á Austurlandi og gera hefði mátt ráð fyrir. Við ræddum við Karen Ósk Lárusdóttur, verkefnastjóra hjá björgunarsveitunum, um verkefni sveitanna, foktjón og fasta bíla.

Umræða um virkjanir og orkuöflun er síkvik og við heyrðum af stækkun Reykjanesvirkjunar, en vinna við stækkuna er á lokastigi.

Tómas Sigurðsson, forstjóri HS Orku, kom til okkar og sagði okkur frá þessari stækkun og frekari virkjana áætlunum á svæðinu, auk þess sem við ræddum áhrif jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaganum á starfsemi og innviði HS Orku.

Það reyndi mikið á flutningskerfi Landsnets í óveðrinu. Bæði Laxárlína 1 og Kröflulína 2 fóru út en rafmagn fór ekki af, Kröflulína 3 hélt rafmagni á byggðalínunni. Við ræddum við Steinunni Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets, um stöðu mála nú í morgunsárið.

Um 300 fulltrúar frá tæplega 50 stéttarfélögum koma saman í dag þegar þing Alþýðusambands Íslands hefst. Við ræddum við Kristján Þórð Snæbjarnarson, fráfarandi forseta ASÍ, um forsetatíð sína, stöðuna á verkalýðshreyfingunni og kjaraviðræðurnar framundan.

Ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands varaði við aukinni skriðuhættu á Norður- og Austurlandi vegna óveðursins sem gekk yfir landið. Óliver Hilmarsson, sérfræðingur á sviði ofanflóða hjá Veðurstofunni, var á línunni hjá okkur.

Vladimír Pútín Rússlandsforseti ásakaði í gær leyniþjónustu Úkraínu um að standa að baki sprengjuárásarinnar á brúnni yfir Kersch-sund sem tengir Krímskaga við Rússland. Við fórum yfir áhrif þessa á stríðið í Úkraínu og stöðu þess almennt við Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðing í málefnum Rússlands.

Að venju fórum við yfir helstu tíðindi af íþróttum helgarinnar, auk þess að spá aðeins í landsleikinn mikilvæga á morgun hjá kvennalandsliðinu í knattspyrnu.

Helga Margrét Höskuldsdóttir tók stöðuna með okkur.

Tónlist:

Ragnar Bjarnason - Það styttir alltaf upp.

Sade - Flower of the Universe.

Lily Allen - Ldn.

Einar Ágúst - Þakka þér.

Lights on the highway - Ólgusjór.

Mannakorn - Ef þú ert mér hjá.

Hjálmar - Manstu.

Bríet - Sólblóm.

John Mayer - Daughters.

Var aðgengilegt til 10. október 2023.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,