
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Stór breyting var samþykkt á áfengislögunum um miðjan júní þegar tekin var ákvörðun um það að frá næstu mánaðarmótum megi selja áfengi frá framleiðslustað allra brugghúsa sem framleiða minna en 500 þúsund lítra á ári. Þessu var víða fagnað og óhætt að segja að margir bjórunnendur bíði spenntir eftir stóra deginum. Skammt er til mánaðarmóta og nú er svo komið að smá bruggh óttast að geta ekki hafið sölu á bjór út úr húsi þann 1. júlí eins og boðað var með breytingu á áfengislögunum. En hvað veldur? Hingað til okkar kemur Laufey Sif Lárusdóttir formaður Samtaka íslenskra handverksbrugghúsa.
Einn af fegurri stöðum á landi er án efa Þórsmörk. Sumir segja að það sé hreinlega ekkert sumar hjá þeim nema að koma amk einu sinni yfir sumarið í mörkina góðu. En hvernig er staðan í Þórsmörk núna nánar tiltekið í Básum ? Við hringjum þangað og heyrum í Óðni Arnarsyni sem er aðalkarlinn á svæðinu.
Klukkan hálfsex í dag hefst málþing um það hvernig tæknilegar lausnir geta stuðlað að auknum norrænum tungumálaskilningi, auk dæma um snjalltól sem aukið geta áhuga almennings, einkum barna og ungmenna, á tungumálum nágrannaþjóða sinna á Norðurlöndum. Jón Yngvi Jóhannsson er fundarstjóri á þinginu en hann er lektor í Háskóla Íslands við heyrum stutt i honum hér rétt á eftir.
Í Borgarnesi er unnið hörðum höndum að opnun upplifunargarðs í anda Latabæjar. Verkefnið LazyTown studio er í stuttu máli skilgreint sem upplifunarsetur heilsu og hollustu í anda þess boðskapar sem þættirnir um Latabæ boðuðu. Við ætlum að hringja í Borgarfjörðinn og heyra í Helgu Halldórsdóttur en hún er potturinn og pannan í þessu risa verkefni í Borgarnesi.
James Lawrence betur þekktur sem Iron Cowboy er kanadískur þríþrautamaður sem hefur slegið í gegn í ultravegalendum. Með þrjú Guinness heimsmet undir beltinu ákvað James árið 2021 að gera hið ómögulega. Klára 100 járnkalla á 100 dögum. Saga hans hefur vakið gríðarlega athygli um allan heim enda snýst þetta um miklu meira en íþróttir. James tókst á við eina af stærstu hindrunum okkar allra sem er baráttan við hugsanir okkar. James er á leið hingað til lands í ágúst en hér ætlar hann að halda fyrirlestur öðrum til hvatningar. Sonja Símonardóttir er ein þeirra sem James Lawrence hefur haft mikil áhrif á en hún barðist við erfið veikindi í desember 2020 og var vart hugað líf. Hálfu ári síðar kláraði Sonja hálfan járnkarl. Sonja kemur í Síðdegisútvarpið á eftir til að segja okkur sögu sína og ræða við okkur James Lawrence The Iron Cowboy.
Í síðustu viku var Ragna Árnadóttir skrifstofustj