06:50
Morgunvaktin
Þjónusta við langveika, efnahagsmál og staða matvælaframleiðslu

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Björn Þór Sigbjörnsson, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Herdís Sveinsdóttir prófessor og deildarforseti hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands og Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, komu á Morgunvaktina og ræddu nýja og viðamikla rannsókn á þjónustu heilsugæslu víða um heim við langveikt fólk og um áskoranir í heilbrigðismálum.

Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum ræddi um rafmyntir eða rafeignir og um efnahagsástand heimsins.

Staða matvælaframleiðslu á Íslandi er alvarleg og hefur hópur sem matvælaráðherra skipaði lagt til tveggja og hálfs milljarða króna stuðning við bændur. Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, sat í hópnum og hún kom til okkar.

Umsjónarmenn Morgunvaktarinnar eru Guðrún Hálfdánardóttir og Þórunn Elísabet Bogadóttir.

Tónlist:

California dreamin - Mamas and Papas

Í hjarta þér - Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,