20:35
Sumarmál
Brek, Safnahús Borgarfjarðar, færð á vegum, fuglinn og blómið

Ferðalög og útivist. Fróðleikur og skemmtun. Fólk og náttúra. Fugl dagsins, blóm, fjöll og firnindi. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar. [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir, Þórhildur Ólafsdóttir, Gunnar Hansson og Guðmundur Pálsson.

Við forvitnuðumst um ferðalag hljómsveitarinnar Brek um landið þar sem þau ætla meðal annars að spila fyrir heimilisfólk á dvalarheimilum aldraðra víðs vegar um landið, auk þess að halda fjölda tónleika. Þau segja að það hafi gefið þeim mikið að bjóða upp á list- og menningarupplifun á stöðum þar sem slíkt er ekki alltaf í boð. Hljómsveitarmeðlimirnir Harpa Þorvaldsdóttir og Jóhann Ingi Benediktsson komu í þáttinn og sögðu okkur meira frá þessu.

Í þættinum í sumar fáum kynnumst við söfnum landsins með safni vikunnar á mánudögum. Við byrjuðum á Safnahúsi Borgarfjarðar og fengum Guðlaugu Dröfn Gunnarsdóttur, sérfræðing á munasöfnum í þáttinn. Hún hvatti fólk sem á leið um Borgarnesið að taka vinstri beygjuna inn í bæinn og skoða það sem er í boði þar svo sagði hún okkur frá því hvað er í gangi hjá þeim í safninu í sumar, t.d. sumarsýningin, Hennar voru spor, sem stendur yfir og fleiru.

Við litum svo inn til landsins og skoðuðum hver staðan er á okkar helstu hálendisvegum, sem leiða okkur að mörgum fegurstu náttúrperlum landsins, en er búið að opna þá alla? Hvernig koma þeir undan vetri og hvernig er ástandið á þeim? Magnús Ingi Jónsson, þjónustufulltrúi hjá Vegagerðinni fræddi okkur um það.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað og blóm dagsins, eins og undanfarin sumur.

Tónlist í þættium í dag:

Ennþá man ég hvar / GÓSS (Andersen, Bjarni Guðmundsson)

Litla flugan / Brek (Sigfús Halldórsson / Sigurður Elíasson)

Here Comes the Sun / Beatles (George Harrison)

Mellow yellow / Abraham Mateo (Donovan)

Á venjulegum degi / KK band (Kristján Kristjánsson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ÞÓRHILDUR ÓLAFSDÓTTIR

Var aðgengilegt til 27. júní 2023.
Lengd: 55 mín.
e
Endurflutt.
,