06:50
Morgunútvarpið
27. júní - þungunarrof, hryðjuverk, TikTok

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum, snarpri og líflegri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Á næstu dögum verður farið í að loka fyrir rafmagnið hjá fólki sem hefur dregið að velja sér raforkusala í langan tíma. Dreifiveitum er óheimilt samkvæmt lögum að dreifa raforku inn á heimili og fyrirtæki ef ekki er til staðar samningur við sölufyrirtæki raforku. Það er á ábyrgð einstaklinga að velja sér raforkusala, en fjölmargir virðast ekki vita af þessu. Við fengum Lovísu Árnadóttur hjá Samorku til að fara yfir hverja þetta varðar og hvernig þarf að bregðast við.

Það er ekki endilega auðvelt fyrir hinar ýmsu ríkisstofnanir að ná að koma skilaboðum sínum áleiðis til unga fólksins - en Umhverfisstofnun er að takast það þessa dagana með vinsælum myndböndum á samfélagsmiðlinum Tiktok - sem fáar ef einhverjar aðrar stofnanir nota nú hér á landi. Við ræddum við Ástu Maack, sérfræðing í teymi hafs og vatns hjá Umhverfisstofnun, og Freyju Pétursdóttur, sérfræðing í Teymi lífríkis og veiðistjórnunar, um myndböndin.

Tveir létu lífið og yfir tuttugu særðust í skotárás á fjölfarinni götu í miðborg Osló um helgina - en svo virðist sem árásarmaðurinn hafi vísvitandi ráðist að fólki sem var þar að skemmta sér í aðdraganda gleðigöngunnar Osló Pride - sem var síðan aflýst. Árásin hefur vitaskuld mikil áhrif á íbúa borgarinnar - þar á meðal á þá fjölmörgu Íslendinga sem þar búa. Við slógum á þráðinn til Jónínu Margrétar Arnórsdóttur, kennara í Osló.

Um 5% af útgjöldum ríkisins til heilbrigðismála renna til geðheilbrigðis. Vakin er athygli á þessu í samantekt tryggingafélagsins William Russell sem setur Ísland í neðsta sæti 26 OECD ríkja þegar kemur að gengi í geðheilbrigðismálum. Við ræddum stöðu geðheilbrigðis hér á landi við Héðinn Unnsteinsson formann Geðhjálpar.

Viðsnúningur Hæstaréttar Bandaríkjanna í Roe vs Wade málinu, sem snýr að því hvort rétturinn til þungunarrofs sé varinn á alríkisstiginu í flóknu stjórnkerfi Bandaríkjanna, hefur vakið upp hörð viðbrögð um allan heim. Til okkar kom Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur sem búsett er í Bandaríkjunum.

Í lok þáttar fórum við yfir íþróttir helgarinnar með Gunnari Birgissyni, íþróttafréttamanni. Það var nóg um að vera í heimi íþróttanna um helgina - og margt sem hægt er að ræða nú þegar 13 dagar eru í EM kvenna.

Tónlist:

Í skýjunum - Stjórnin

Gypsy - Fleetwood Mac

You Make Me Feel (Like a Natural Woman - Aretha Franklin

Everything I Know About Love - Laufey Lín

Son of a Preacher Man - Dusty Springfield

En - Una Torfadóttir

Solsbury Hill - Peter Gabriel

Úlfur Úlfur - Berndsen og Bubbi

Var aðgengilegt til 27. júní 2023.
Lengd: 2 klst. 10 mín.
,